Snæfellsnesrúntur á afmæli Kristjáns

July 4th, 2010

Sumarrúntur var tekinn þann 3. júlí á afmælisdegi Kristjáns um Snæfellsnes með stórfjölskyldunni. Stórfjölskyldan telur; ömmu, afa, mömmu, pabba, Kristján, Árna Hlyn, Tómas Snæ, Hörð, Ástu Kristínu, Magnús móðurbróður og Siggu hans frú, Ástu Sigrúnu frænku og náttúrulega okkur Lalla. S.s 3 fullir bílar!
Náðum nú bara að fara sunnanvert nesið því mikið var stoppað og skoðað, enda margt fallegt að sjá á Snæfellsnesinu.
Við stoppuðum meðal annars á Arnarstapa. Þar var tekinn hádegismatur og afmælissöngurinn sunginn fyrir Kristján og afmæliskakan fékk sko að fljóta með vestur í veisluna! :)

Á Arnarstapa var yndislegt veður, að sjálfsögðu var hífandi rok á Snæfellsnesinu en náðum okkur í þokkalegt skjól þarna. Rokið nýttum við í flugdrekasvif og skemmtilegheit.

Síðan fórum við niðrá höfnina þarna á Arnarstapa að skoða flott “göt” í klettunum, ófleyga mávaunga, flotta klettadranga útí sjó ofl. Söngklettur var næsti viðkomustaður, þar fékk Kristján annan afmælissöng, enda við hæfi. Þaðan lá leiðin niðrað Hellnum þar sem krakkarnir skoðuðu sig mest um og síðast en ekki síst fórum við niður í Djúpalónssand þar sem mesta lognið var og rosa blíða og tekist var á við ölduna sem og steinana, Amlóða 23 kg, Hálfdrætting 54 kg, Hálfsterkan 100 kg og tjahh varla hægt að segja að Fullsterkur 156 kg hafi verið reyndur, enda Hálfsterkur nógu þungur samt.
Eftir þessar aflraunir var haldið heim á leið enda dagur að kveldi kominn.

Fleiri myndir má sjá hér eða á undir “Dagsferðalög” á bls 2 á slepjugallerýinu okkar.
Ég fékk lánaða æðislega linsu sem gerir myndirnar margfalt betri en í síðustu ferð. En ég á enn eftir að læra soldið betur á lýsingar ofl… Þú tekur bara viljann fyrir verkið!!
Ég fer á námskeið í haust að læra á vélina :) þá batnar þetta vonandi helling.

Sumarsólstöður

June 22nd, 2010

Fór á tónleika Páls Óskars og Moniku á Kaffi Flóru í Grasagarðinum á sunnudagskvöld. Tónleikarnir byrjuðu kl 23:00 og var lokið kl 00:30 ca. Frábærir tónleikar & notaleg stund með Ástu Sigrúnu súperfrænku minni, sem var að flytja heim á klakann aftur eftir að hafa verið í 4 ár í Edinborg (og smástund í Ástralíu líka).
Ég heimsótti hana nú út loksins í desember s.l. – væri sko til í að gera það aftur. En í staðinn heimsæki ég hana bara hérna á klakanum og vonandi mun oftar en ég fór til Edinborgar í heimsókn til hennar :þ

En yfir í tónleikana. Palli er auðvitað alltaf jafn mikið æði. Svo einlægur og hlýr. Og þar að auki var hann með “sögustund” milli laga, til að útskýra hvers vegna hann valdi hvert og eitt lag í dagskránna. Það var algjörlega til að toppa þetta. En hinsvegar til að gagnrýna eitthvað þá fannst mér hann taka einum of mikið af lögunum sem búið er að nauðga í útvarpi síðustu mánuði. (Truflaði væntanlega lítið “útlendinginn minn” hana Ástu Sigrúnu) Ég hefði verið til í að heyra önnur lög þar sem harpan hefði getað notið sín enn betur. Maður heyrði eiginlega alltaf útvarpsútgáfuna í gegn. :-/ En eins og ég segi, Palli er snillingur, lögin voru frábær og flutningurinn góður.
Ég vissi svo sem ekkert út í hvað ég var að fara :-) og ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum þrátt fyrir ofannefnt.

Nýjar myndir

June 20th, 2010

Gleymdi alltaf að setja inn eldgosamyndir – þær má sjá hér – eða með öðrum orðum á www.slepja.com/gallery undir “Dagsferðalög” bls 2 :)
Sjá dæmi hér..

Lalli frussar í Jökulsárgljúfrum…

Og svo eru myndir frá ferðinni okkar á Mývatn og nágrenni núna um liðna helgi. Tókum okkur extra langa helgi og skelltum okkur norður í bongóblíðuna! Sjá hér (Myndir má einnig finna í gallerýinu undir “Lengri ferðalög” bls 2). Frábær helgi og mann langar bara ekkert að vera “búin í fríi” :)

P.s sé það núna að linsan okkar er skítug :( Svo allar myndirnar bera bletti og ég kann ekkert á photoshop eða annað til að laga þetta – geri það þegar ég læri á það! Vonandi getiði horft framhjá þessum mistökum.

Skrítin

May 23rd, 2010

Ég á við vandamál að stríða. Þetta vandamál veldur nú ekki miklum skaða, en getur verið frekar hvimleitt til lengdar, ekki síst fyrir Lárus.

Ég vaknaði kl 9, ótrúlega spræk hlakkaði til að fara út í góða veðrið svo ég dreif mig á fætur og í morgunverkin (pissa og bursta tennur) en varð frekar súr þegar ég leit út um gluggann og sá að það var bara skýjað og hálf dimmt yfir. Lalli vaknaði svo og spurði mig hvað ég væri að vilj´upp á dekk?? Það væri nótt! Þá varð mér litið á klukkuna og sá að hún var aðeins 3 um nóttina. Svo ég skreið uppí aftur og hélt áfram að sofa þó hann væri búinn að hlæja heil ósköp að mér….

Ég held ég hafi nú skrifað um þetta einhvern tímann áður. En ég hef þennan hvimleiða “vana” að vakna upp kl 1 á nóttunni (þetta með að vakna kl 3 í nótt var frávik) og halda að ég væri of sein í vinnuna. Það gerist mjög reglulega, en kemur í svona syrpum. Ég er s.s búin að vera mjög slæm af þessum -kvilla- undanfarið.
Vona að þessi tími fari að líða undir lok. Lalli fer ábyggilega annars að henda mér út ef svona heldur áfram HEHEHEHe..

AAAAaahhhhhh

May 20th, 2010

Fór ásamt Anítu -afmælisbarni s.l helgar – í Blue Lagoon spa í Hreyfingu í gær miðvikudag, eftir vinnu. Hrikalega huggulegt og gæti sko VEL vanist slíkum munaði :) Við fórum í Kísilnudd og Fljótandi djúpslökun. Kísilnuddið var frábært. Svo gaman að láta koma sér á óvart. Ég (vanþakkláti nuddarinn) átti von á léttu slökunarnuddi og var bara búin að gíra mig inn á það, en nei þetta var bara fínasta nudd og ég brosti bara hringinn. Ég átti svo ekki von á að fara í djúpslökunina, hélt við hefðum ekki pantað það fyrir mig, bara fyrir Anítu. En ég setti mig ekkert upp á móti því þegar hún benti mér á að fara inn.
Í fljótandi djúpslökuninni þá fórum við inn í dimmt lokað herbergi, byggt utanum grunnan pott. Í pottinum var 70% vatn og 30% salt :) Stelpan sagði að það væri eiginlega erfiðara að sitja í honum heldur en að ligga. Það voru orð að sönnu! Hrikalega fyndin upplifun. En ég myndi ekki kaupa mig dýrum dómum í þetta aftur. Var mjög gaman að prufa en ég náði ekki eins mikilli slökun þarna og ég átti von á. Hugsanlega myndi maður samt ná því með tímanum.