Rómarferðin
Fimmtudagur 28.sept 2006
Lögðum af stað til Keflavíkur kl 5:00 eftir að hafa skutlað KJ af við ÍSÍ. Hittum Magnús og Þorkel á flugstöð Leifs Eiríks. Flugið til París tók 3 klst + seinkun frá Íslandi. Við vorum nú orðin dálítið þreytt eftir það og sérstaklega Á.H. Höfðum frekar lítinn tíma í París vegna seinkunar og flugvöllurinn ALLT OF FLÓKINN. Kamilla leitaði upplýsinga fyrir hópinn svo við komumst á leiðarenda eftir strætóferð um flugvöllinn. Árni Hlynur spurði um farangurinn okkar en ég sagði honum að hann færi bara alla leið og við þyrftum ekkert að hugsa um hann. Við fórum síðan bara nánast beint útí vél. Reyndar þurftum við að taka rútu frá flugvallarbyggingunni og útí vél. Vélin var frekar lítil og léleg en kom okkur á leiðarenda á 2 klst. Sváfum örlítið í vélinni og fengum síðan crossant með kryddskinku og skrítnum smurosti. Merkilegast fannst HD að í Alitalia flugvélinni var ekki bara boðið upp á vatn að drekka heldur gátu allir sem vildu fengið með matnum, vatn, kók, hvítvín, rauðvín, eða safa.
Við komum loksins til Rómar kl 18:30 (að staðartíma) þreytt og ánægð. Alveg þangað til við komumst að því að töskurnar okkar voru ennþá í París. Fúlt…. Gleðin fór þá fyrir lítið. Fórum með rútu upp á hótel – sem betur fer, en töskulaus. Kristján og hans hópur fóru í vél stuttu á eftir okkur en við sáum þau koma til Rómar og sækja sínar töskur. Það fengu þó ekki allir töskurnar sínar í þeim hóp en flestir. Flest okkar fóru upp á hótelherbergi og beint út að borða. Við fórum á Pizzastað sem var bara hinummegin við götuna frá hótelinu okkar. Bara þangað sem styst var að fara J enda hungraðir úlfar þar á ferð. Sáum svo að íslendingarnir hópuðust þangað líka HAHAHA Gengum út á aðallestarstöðina og skoðuðum lífið sem var talsvert verð ég að segja miðað við dag og tíma. Gaurar úti á götu að selja töskur, sólgleraugu, hálsmen og fleira í þeim dúr. Árni Hlynur átti nú bágt með sig og langaði strax að kaupa og kaupa. Ætlaði að láta gaurana pranga inn á sig drasli. Bara HD að þakka að við sluppum við peningaútlát þar c”,) Fórum svo bara heim á hótel, kíktum aðeins á TV. Þegar við fórum að spá í svefninn þá komumst við að því að það voru engar sængur – bara lak. ÁH átti nú bágt með að skilja hvað var í gangi þangað til HD útskýrði að þetta væri svona vegna hitans. Fundum teppi inn í skáp og ákváðum að hafa það til fóta ef okkur skildi kólna útaf loftræstingunni einhvern tímann um nóttina. Blöðruðum eitthvað frameftir svo kl var orðin hálf 12 að staðartíma þegar við ákváðum að halda kj**** og sofna. Vorum ekki lengi að detta út. ÁH svaf eins og grjót en HD vaknaði eitthvað og átti erfitt með að sofna aftur. Enda ÁH að blaðra upp úr svefni á fullu.
Föstudagur 29. sept 2006
Vöknuðum við vekjaraklukku til að ná morgunmat og skreppa á fund vegna töskumáls og framhaldsins. Töskurnar ekki enn komnar en von á þeim í dag. Fengum að vita grófa dagsskrá og ákveðið var að fara saman á opnunarhátíð á morgun – amk þeir sem vilja fara saman í hóp. Ákváðum líka að fara saman í fjölskyldusentrið til að sækja kort af Róm og gjafir sem við áttum held ég að vera búin að fá frá þeim á Spec. Ol.
Þegar fundi var lokið ákváðum við ÁH að fara í labbitúr um næsta nágrenni og gengum framhjá nokkrum sölubásum á leiðinni á Santa Maria Maggiore. Fórum í túristaleik og tókum túristamyndir – af umhverfinu og hvort öðru J Sáum svo Citybus og ákváðum að stökkva bara um borð. Væri fínt að fara í smá bíltúr og átta sig á borginni. Meðan við biðum eftir að bussinn færi af stað þá sáum við Sólveigu, Gumma og Hrafnhildi og kölluðum á þau. Þau komu á hlaupum og ákváðu að skella sér bara með. Við fórum m.a út að Vatikani og ákváðum að hoppa þar út því við máttum stökkva inn og út gegn miðanum okkar hvenær sem er næstu 24 tímana. Mjög sniðugt. Held að við höfum sjaldan séð svona mikið af fólk samankomið á einum stað. Nenntum þó ekki að standa í MEGA löngum biðröðum enda hitinn ca 27°c og við í lokuðum skóm og sveittum og ógeðslegum ferðafötum. Röltum aðeins um og settumst niður í skugga til að kæla okkur meðan við biðum eftir strætóinum. Fengum okkur drykki og salt í formi pringles og popps sem krakkarnir gáfu dúfunum með okkur. Held að dúfurnar hafi fengið ca helminginn. Meðan við biðum þá komu talsvert margar kellur með jesúmyndir og voru að reyna að betla af okkur aura.
HD keypti sólgleraugu á 5 € sem áttu að kosta 7 € – “special price for you my friend” – virkar oft vel J
Á hótelinu biðu töskurnar okkar – þvílík gleði. HD var ekki lengi að drífa sig í sturtu. Unaður! Sátum aðeins og slöppuðum af upp á herbergi og drifum okkur svo út í sólina. Ákváðum að labba bara eitthvað og gefa ÁH að borða til að byrja með. Hann vildi endilega McDonalds, HD ekki jafn spennt! Eftir McDonalds ákváðum við að labba að Spænsku tröppunum. Á leiðinni þangað sáum við og skoðuðum Piazza della Repubblica og Basilica Saint Maria sem er ofsalega falleg kirkja. Komum á Piazza Barberini þar sem er fallegur risastór gosbrunnur, gengum upp Via Sistina að Piazza di Spagna þar sem spænsku tröppurnar frægu eru. Með stoppum og öllu þá vorum við ca 1 og ½ – 2 tíma að þessu. Fengum okkur ítalskan ís ( í annað skiptið í dag) og horfðum á mannhafið útum allt. Og talandi um það. Umferðarmenningin er stórfurðuleg. Allir keyra allstaðar og ef maður þarf að ganga yfir götu þá fer maður bara af stað. Bílarnir stoppa bara. Gera það ekki ef maður stendur á gangstéttinni og bíður eftir að þeir stoppi.
Gatan sem er við endann á spænsku tröppunum og göturnar þar í kring eru “hátískubúðir” svo sem Gucci, Versace og fleiri sem við sáum. Fundum skartgripabúð þar sem hlutir voru að kosta á milli 2000 og 8000€ Áts… Gengum svo til baka því við kunnum ekki á Metroinn. Það tók ekki svo langan tíma. Held að það hafi komið ÁH á óvart því hann var orðinn dáldið þreyttur. Þegar heim á hótel var komið hentumst við út uppí rúm og fórum að skrifa ferðasöguna.
Laugardagurinn 30. sept
Við vöknuðum eldsnemma og fórum í morgunmat. Hópuðumst öll saman niður í anddyri og fórum í lest á svæði Spec. Ol. þar sem við fengum gjafir frá keppnishöldurum. Morguninn var hrollkaldur í byrjun en hitinn fór hækkandi með tímanum. Við tókum fljótlega lestina heim á hótel og fengum okkur HUGE hamborgara og bbq ribs. Eftir það héngum við á hótelinu og spiluðum kapla (í tölvunni) og bættum við ferðasöguna. Kl 16 hittumst við niðri í lobbíi til að fara saman á opnunarhátíðina. Fórum í lest og sporvagni þangað og vorum mætt mjög tímanlega því hátíðin byrjaði ekki fyrr en kl 19:30. Sem betur fer var sól og blíða svo það var engu að tapa. Sýningin var ólýsanleg. Það getur ENGINN ímyndað sér hvernig svona er, fyrr en hann hefur prufað það. Þarna komu fram þekktir aðilar s.s ítalski Bubbi, Armani hljóp með kyndilinn og svo voru allskyns ræðuhöld, meira og minna á ítölsku og fæst túlkað. Þarna voru loftfimleikar í allskyns formi, danssýning ofl. Í lok sýningarinnar var ótrúlega flott flugeldasýning. Heim var haldið með sporvagni og strætó – áttuðum okkur á því að við áttum bara eftir að prufa taxi J
Sunnudagurinn 1.okt
Gátum sofið aðeins lengur, HD vaknaði þó við hárþurrkuna í næsta herbergi svo hún skellti sér í sturtu meðan ÁH svaf. Náðum tæplega í morgunmat því við ætluðum að ná Spec. Ol. rútunni sem átti að fara bara beint á svæðið. Við vissum ekkert hvenær KJ væri að keppa svo við ákváðum að mæta snemma svo við myndum ekki missa af honum. Rútan sem átti þó að fara frá aðallestarstöðinni kl hálf 10 var þó ekki komin kl 9:45 svo við tókum bara lestina. Erum farin að læra þokkalega á samgöngurnar hérna. Bongóblíða og grillandi hiti einkenndi keppnissvæðið. Sundlaugin er fín og mikið stuð á starfsfólkinu/sjálfboðaliðunum fyrir utan auðvitað áhorfendum. ÁH hitti KJ fyrir utan sundlaugina og KJ kom svo til okkar. Það var ofsalega gaman að sjá hann aftur – þó við höfum vissulega séð hann kvöldinu áður – nema þá var hann bara dáldið langt í burtu og hann sá okkur ekki þá jafnvel þó við höfum hrópað á hann c”,)
Allavega þá sátum við saman þarna vegna þess að KJ átti ekki að keppa þennan daginn, ekki fyrr en þann 2. okt. Þegar nálgaðist hádegi þá fór KJ aftur til hópsins og við ÁH ákváðum að fara að fá okkur að borða enda gátum við eiginlega ekkert borðað um morguninn og hitinn á svæðinu hreinlega óbærilegur. Við ákváðum að drífa okkur bara heim á hótel, borða og skreppa í Colosseum. Vorum bara max 30 mín þangað frá hótelinu okkar. Mjög þæginlegt. Fórum í guided tour um Colosseum og keyptum okkur minjagripi – ekta túristar!
Gengum heim á hótel aftur – dáldið þreytt vegna hitans yfir daginn og hálf dösuð. Héngum aðeins á herberginu, klæddum okkur upp og drifum okkur út á veitingastað. ÁH ákvað að prufa hinn þjóðarréttinn, þ.e pasta, hann var sko búinn að prufa pizzu oftar en 1x og líkaði vel. Hann fékk sér pasta með tómatsósu, chili og hvítlauk. Þetta fannst drengnum ekki slæmt – þangað til tungan fór að loga……
Með örstuttu stoppi á internetkaffi þá skutumst við heim á leið þar sem spilin biðu og svo draumalandið.
Góða nótt.
Mánudagurinn 2.okt
Byrjuðum daginn á rólegheitum. Við ákváðum að vera ekkert að fara á keppnisstað strax vegna þess að við vissum að KJ væri ekki að keppa fyrr en um hádegisbil. En við drifum okkur samt fljótlega á staðinn því við vildum ekki hætta á að missa af KJ synda. Tókum lestina og hittum alla hina óvænt. Þegar á keppnisstað var komið gengum við aðeins um og skoðuðum fleira en bara sundlaugina, og náðum okkur í drykki því að hitinn var strax orðinn óbærilegur.
Þurftum aðeins að bíða eftir að KJ keppti en þegar það kom að honum þá fögnuðum við ógurlega sem leiddi til þess að hann bætti sig um 2 sek.
Fengum okkur svo að borða í mötuneytinu og vorum svo með KJ eins og við gátum. Fórum svo með rútunni heim og pizzeria í kvöldmat!!!!!
Þriðjudagurinn 3. okt
Fórum alveg sjálf með strætó á Campo dé Fiori sem er markaðstorg þar sem m.a er selt grænmeti, ávextir, kjöt, fiskur, hnetur, krydd ofl ofl. Keyptum okkur jarðarber, hindber og hnetur. NAMMI NAMM…
Um kl 11 þá fórum drifum við okkur til baka til að ná að sjá KJ keppa því við vissum að hann ætti að vera í kringum hádegi. Það dróst þó eins og alltaf og við héngum og biðum sennilega til kl 14 eftir honum. Þá keppti hann í boðsundi 4×50 skriði, svo í 200 m. skriði og síðast í 100 m. skriði. Dagurinn var sem sagt langur og strangur hjá kappanum. Allt gekk þó vel þó að við kæmumst að því að hann YRÐI að fara að nota fæturnar betur. Þá gæti bætingin orðið enn betri J ekki það að hann bætti sig strákurinn um heilan helling. Hann bætti sig um 10 sek í 200 m. og 2 sek í viðbót í 100 m. Ekki slæmt það. Heim fór hann með 2x 4 sætið svo hann ætti nú að vera ánægður. Úrslit í boðsundinu eru svo á morgun svo þá kemur í ljós hvort það komi peningur inn eður ei!
Þegar degi fór að halla og við búin að fylgjast með síðustu verðlaunaafhendingu þá ákváðum við ÁH að fylgja foreldrum 2ggja sundkappa út að borða og að skoða Fontana di Trevi, sem er tjahh varla gosbrunnur – meira eins og handgerðir fossar sem koma úr veggnum á húsinu. Ótrúleg sjón. Það var reyndar nánast orðið myrkur en allt var upplýst svo við sáum undrið í heild sinni. Ætluðum svo að taka lestina heim aftur, en enduðum með ævintýraferð um götur sem við höfum ekki farið áður. Komum þreytt heim enda ÁH orðinn vel þreyttur eftir æsing síðustu daga útum allar trissur og hangs í grillandi hita á sundlaugarbekkjum.
Þegar heim var komið var boð um að hitta páfann eldsnemma morguninn daginn eftir og við sem ætluðum að sofa út þar sem KJ er ekki að keppa fyrr en um hádegi og við búin að sjá flest það sem okkur langaði að sjá. Við spiluðum nokkur spil og fórum svo í háttinn kl 22 og vorum sofnuð í síðasta lagi 22:30 enda dauðþreytt bæði. Stilltum klukkuna 6:15.
Miðvikudagurinn 4. okt
Þegar kl hringdi þá ákváðum við að sofa bara áfram – það væri vel þess virði. Fréttum svo af því í morgunmatnum að það hefðu verið fleiri sem nenntu ekki að fara.
Dagurinn hófst með rigningu!!!!!!!! Ótrúlegt en satt. Á afmælisdag prinsessunnar á bauninni.
Tókum því rólega fram að hádegi, spiluðum og höfðum gaman. Komum okkur síðan á keppnisstað og komumst að því að KJ átti ekki að synda strax. Horfðum á fimleika og skoðuðum okkur um á meðan við biðum. ÁH datt niður í orku svo við urðum að fara að borða. Sem betur fer fékk hann ekki mígrenikast.
KJ keppti í 4×50 m. skriði í úrslitum og hafnaði í 2 . sæti. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út meðal aðstandenda íslensku keppendanna.
ÁH&HD fóru eftir verðlaunaafhendingu með lestinni til baka til Termini og hlóðu batteríin á Mc.Donalds eftir að hafa ákveðið með foreldrum hinna íslenku sundmannanna að fara að sækja krakkana og sýna þeim borgina með okkar augum, á morgun.
Ákváðum einnig að fara út að eta með foreldrunum í kvöld í staðinn fyrir að fara á fjölskylduhátíð, því að henni var frestað og krakkarnir fara í staðinn í mat á íslensku ræðismannsskrifstofuna í Róm. Við hlökkum mikið til að hitta KJ á morgun og erum enn að ákveða hvert við eigum að fara með hann og hvað við eigum að sýna honum. Erum þó með ákveðnar hugmyndir sem við þyrftum eiginlega að bera undir hann.
Fréttum af því frá Camillu að hún hefði mætt í Páfagarð eldsnemma – (mæting átti að vera kl 8 og hann átti að mæta kl 10) – að það hefði verið brjálæðislega mikið af fólki þarna og aðstandendur Spec. Ol. hafi verið í langri röð og átt að fá sæti nær páfanum en þau snéru við vegna aðstæðna. Það var rigning og brjáluð röð… ekki alveg þess virði. Vorum því ofsalega fegin að hafa bara sofið út og notið morgunsins J
Fimmtudagurinn 5. okt
Fórum að sækja KJ kl 9 og fórum með hann í strætó í Vaticanið. ÁH var æstastur í að sjá það vegna þess að það var svona það eina stóra sem við áttum eftir að skoða. Biðum í hundlangri röð sem gekk ótrúlega hratt. Vorum líklega í 10 max 15 mín í röð. Þar fórum við í gegnum vopnaleit og svo bara inn. Þvílíkt magn af fólki sem kemst inn í þessa kirkju. Jiminn eini. Ætti eiginlega frekar að hleypa inn í hollum svo maður fái tíma og pláss til að skoða og njóta. En Péturskirkjan var ofsalega flott. Því verður seint neitað. Ég dró drengina líka í gegnum safnið og Capilla Sistina. Það var eiginlega frekar langur rúntur, of margt fólk og mann vantaði fróðleikinn með þessu. Svo við getum nánast sagt að við eigum þetta eftir. Við gáfum KJ pizzu að borða í hádeginu því hann hafði bara fengið pasta og meira pasta J. Við þurftum að koma KJ á hótelið kl hálf 4 því þau áttu að fara að borða kl hálf 6 og svo var lokahófið kl hálf 8. Við fengum að sjá herbergið hans KJ og hótelið og allt var ofsalega fínt. Alveg meiriháttar. Hann var á 3ggja stjörnu hóteli og við 4gra stjörnu en hans var mikið flottara, fínna og snyrtilegra. Við höfðum þó betri staðsetningu en hann. Við vorum rétt komin heim á hótel þegar við þurftum að sturta okkur og út aftur til að fara á lokahófið.
Lokahófið var svo bara eins og opnunin að því leiti að það var allt á ítölsku og við skyldum ekkert J Reyndar virtist þetta fyrst og allra fremst vera hugsað fyrir keppendur svo við stoppuðum stutt við, enda þreytt og örmagna eftir þessa viku. Áttum eftir að pakka og drífa okkur í bælið því við þurftum að vakna snemma morguns/nætur til að komast upp á völl.
Föstudagurinn 6. okt
Heimferð! Rútan okkar kom of seint. Við vorum komin upp í rútu, dótið okkar komið inn og við sama sem til búin að fara af stað þegar bílstjórinn sagði okkur að við værum í vitlausri rútu. Við út aftur og dótið rifið út og annar hópur settur inn. Rútan okkar kom svo seint og síðar meir og við orðin mega stressuð og viss um að við myndum bara missa af fluginu (kom þó bara ca 20 mín of seint). Þegar við komumst loksins á flugvöllinn, þá var bara ein gella að tékka okkur inn. Og það var komin rosa löng röð á eftir okkur. Þá týndust loksins hinir starfsmennirnir í vinnuna og þá fór þetta allt að ganga. Við komumst á réttan stað fljótt og allt gekk eins og í sögu. Flugum til London og gátum aðeins spókað okkur um í fríhöfninni þar, HD keypti sér böns af Cadburys súkkulaði (elska það!), sjampó og hárnæringu J híhíhí..
Komumst upp í flugvél á réttum tíma en þá var bara heljarinnar töf frá Heatrow. Fyrst vegna umferðar og svo vegna veðurs. Enda var þoka og rigning og fúlt. Endaði svo með því að töfin varð klst. Voða gaman að sitja inn í vél í klst lengur en annars! En loksins komum við heim í kuldann og sólina. Var nú nettur hrollur í okkur verð ég að viðurkenna en við vorum sátt og sæl. Heima er best!