Life goes on!

Þetta ár ætlar að fara hratt af stað, janúar er hálfnaður – hafi það farið framhjá einhverjum hér!

Fáar fréttir af okkur svo sem. Lalli vinnumaður vinnur út í eitt þessa dagana og vikurnar. Ef hann er ekki í þessari hefðbundnu 8-4 vinnu, þá vinnur hann yfirvinnu þar aðallega um helgar en einhver kvöld hafa farið í það líka. Þegar hann á tíma frá þeirri vinnu þá er hjólhýsasmíðin á fullu.

Ég er hinsvegar farin að undirbúa næstu jól… eða þannig hehehee.. Aníta og Sólrún saumakonur skelltu á alvöru saumaklúbb, þar er lítið skrafað og slúðrað (ennþá amk) því við óvönu (ég og Aníta) erum svo einbeittar að við getum eiginlega ekkert annað gert en að sauma. Amk bara annaðhvort sauma EÐA tala! :) En þetta gæti verið komið fyrir næstu jól! Við erum s.s að sauma jóladúka undir jólatréð og jólapóst (ég ákvað að hita mig upp með auðveldara stykki :) ) Svo er bara spurning hvort þessi góði fyrirvari dugi hehehehhee…

Annars allt við það sama hjá okkur. Avatar í kvöld, já rosa menningaleg :)
Góða helgi

2 Responses to “Life goes on!”

  1. Siggalo says:

    Ég er sko ánægð með þig min kæra. Það er ekkert eins gott fyrir sálina eins og að hafa eitthvað skapandi milli handanna!!!

  2. Helga Dröfn says:

    já alveg þangað til ég fæ alveg nóg hehehehe ég endist aldrei með neitt svona milli handanna lengi.. en sjáum til hvað verður núna! Kannski er maður þroskaðari með aldrinum.. :)

Leave a Reply