Archive for March, 2010

Páskafrí ójá!

Monday, March 22nd, 2010

Ég er farin að þrá þetta páskafrí.. verst hvað það er alltaf stutt þegar á hólminn er komið! :) En frí it is… Og svo öll fimmtudagsfríin framundan – þessi frídagar eru kærkomnir – en pínu vafasamt frí samt þegar maður vinnur með tímapantanir og reglulega tíma fólks. Þá er þetta oft spurning um að vinna meira hina dagana í staðinn og þá er alveg spurning hvort það sé ekki betra að halda rútínunni bara frekar :)

En við höfum nú ekki enn sett okkur plön um páskana annað en að gleðjast með múttunni minni sem verður fimmtug á páskadag. Skyldi rigna yfir hana páskaeggjum í tilefni dagsins? Hugsa að hún yrði nú ekkert svekkt með það samt HAHA

Nöldur

Friday, March 19th, 2010

Ég var búin að skrifa föstudagsfærslu – fannst hún svo hroðalega mikið nöldur að ég eyddi henni.
Sorry – þurfið að bíða aðeins lengur eftir nýrri færslu!

Góða helgi
Helga Dröfn

Letihelgi að baki

Tuesday, March 9th, 2010

og það var alveg dásamlegt. Engin stórkostleg plön, boðið í bröns á sunnudag (m.ö.o ég þurfti ekki að hugsa um mat á sunnudag fyrr en um kvöldið – jíha!)

Lalli fór í smá jeppaferð í leit að snjó á sunnudaginn. Gekk nú ekki svo vel, ekki svo mikill snjór á hálendinu. En fékk smá jeppatúr út úr þessu samt.

Ég var að klára Stieg Larson tríólógíuna. Hroðalega eru þetta góðar bækur. Jiminn, ég var við það að taka mér frí í vinnunni suma dagana. Horfðum svo saman hjónin á mynd númer 2 – Stúlkan sem lék sér að eldinum – í gærkvöldi. Hmmm við skiljum eiginlega hvorugt hvernig fólk sem ekki hefur lesið bækurnar, skilur myndirnar. Bók vs mynd er bara svooo ólíkt að hægt er eiginlega að segja að þetta sé sitthvor sagan byggð á sömu hugmynd. Og ég geri mér fulla grein fyrir að það er ekki nokkur leið að koma 600 bls bók í 2ja klst mynd. No way. Ekki nema verið sé að teygja lopann eitthvað á hverri blaðsíðu sem er alls ekki í þessum bókum. Þær eru reyndar allar frekar hægar í fyrrihlutanum. Ekki langlokur beint, en margar persónur og miklar flækjur. En þær hafa allar tilgang í sögunni.
En ég hvet alla sem hafa gaman af myndunum að lesa bækurnar, núna eða seinna. Just do it!

Annars er það bara same as ususal. Vinna-borða-sofa rútínan hér. More later…