
Hvar er þessi mynd tekin?

Hvar er þessi mynd tekin?
Þetta ár ætlar að fara hratt af stað, janúar er hálfnaður – hafi það farið framhjá einhverjum hér!
Fáar fréttir af okkur svo sem. Lalli vinnumaður vinnur út í eitt þessa dagana og vikurnar. Ef hann er ekki í þessari hefðbundnu 8-4 vinnu, þá vinnur hann yfirvinnu þar aðallega um helgar en einhver kvöld hafa farið í það líka. Þegar hann á tíma frá þeirri vinnu þá er hjólhýsasmíðin á fullu.
Ég er hinsvegar farin að undirbúa næstu jól… eða þannig hehehee.. Aníta og Sólrún saumakonur skelltu á alvöru saumaklúbb, þar er lítið skrafað og slúðrað (ennþá amk) því við óvönu (ég og Aníta) erum svo einbeittar að við getum eiginlega ekkert annað gert en að sauma. Amk bara annaðhvort sauma EÐA tala!
En þetta gæti verið komið fyrir næstu jól! Við erum s.s að sauma jóladúka undir jólatréð og jólapóst (ég ákvað að hita mig upp með auðveldara stykki
) Svo er bara spurning hvort þessi góði fyrirvari dugi hehehehhee…
Annars allt við það sama hjá okkur. Avatar í kvöld, já rosa menningaleg ![]()
Góða helgi

Þá skrapp ég í smá bíltúr með foreldrum og flestum systkinunum í skííítakulda en yndislega fallegu veðri. Alveg meiriháttar. Við fórum hinn hefðbundna túristahring “the golden circle” – alltaf jafn flott og að sumri til, ekki síður í klakaböndum, heiðskýru og miklu frosti.
Myndir má finna Hér

Aðfangadagur, jóladagur, gamlársdagur og nýársdagur í einni beit í einu albúmi. Go nuts

Vantar þig aðgangsorðið eða finnurðu ekki út hvernig þú loggar þig inn? Sendu mér þá póst á hd @ slepja . com
Mér fannst það nokkuð gott. Mjög beitt. En hvar var sjálfstæðisflokkurinn í gríninu??? Gleymdist að gera grín að þeim?? Eða er höfundurinn hluti af sjálfstæðisflokkinum? Maður bara spyr sig!
Styttist í myndir á slepjugallery frá hátíðunum öllum (jól og áramót) sem og bíltúr á sunnudaginn s.l the golden circle með mor, far og börnene. Skyldi Lalla eftir í bænum með skúrningarnar (hjólhýsasmíðina!) Æðislegt að sjá Gullfoss í klakaböndum og það var ruddalega kalt þarna uppfrá – jossuss minn. Ég fæ hroll við tilhugsunina….. brrr
Annars byrjar árið bara eins og í fyrra. Mjög vel. Mér finnst það reyndar líða full hratt. Fyrstu mínúturnar / klst liðu ROSALEGA hratt. Skil ekki hvað gerðist eiginlega. Og núna er strax kominn 5. jan! Svakalegt alveg. Þessi áratugur ætlar s.s að líða hraðar en sá síðasti. Og mér fannst hann líða rosalega hratt samt.
En það þýðir ekkert að nöldra um það. Tíminn er hlutur sem við ráðum víst lítið við, líkt og veðrið. Við verðum að taka þessu og gera jafn gott úr því og hægt er. S.s nú er kominn tími til að nota tímann vel. =) gott mottó?
Held ég láti það vera “áramótaheitið” mitt þetta árið hehehehehe…