Þetta er að koma – vona ég!
Amk þegar ég fór að sofa um miðnætti í gærkvöldi þá hugsaði ég… já, nú held ég að ég geti sofið fyrir geltinu í sjálfri mér. Ekki alveg jafn mikill pirringur og kláði í hálsinum og undanfarna daga. Ég nefnilega vaknaði þarna um daginn kl 6, næstu nótt á eftir kl 4 og þá þriðju kl 2. Fór fram í 1-2 klst, spjallaði við Dagbjörtu á msn sem virðist vera búin að snúa sólarhringnum við og jafnaði mig af hóstaruglinu. Skreið svo aftur upp í rúm í þeirri von um að Lalli hafi getað sofið eitthvað á meðan ég hóstaði frammi.
Nóttin í nótt var hinsvegar svona: ég vaknaði kl 2, 4, og 7 – vei… Nema hvað ég hóstaði mest kl 7, annars var þetta meira bara svona smá kláði, eitt-tvö gelt og súpa vatnsglas og/eða hóstasaft og svo bara halda áfram að sofa. Það var sko NICE. Stefni s.s á að næstu nótt vakni ég max 1x og gelti álíka lítið og í nótt og þarnæstu nótt sofi ég í einni beit. Sounds like a plan!
Annars er af okkur að frétta að við erum ekkert smá ánægð með jólin. Þetta er alltaf jafn yndislegur tími. Á vorum við bara heima fram að hádegi. Þ.e ég því Lalli fór í sund með Gumma kl 11 ca. Fórum svo í leiðangur með pakka og jólakort. Komum svo heim og elduðum okkur hamborgarhrygg sem Valitor gaf Lalla í jólagjöf. Við vorum búin að borða, ganga frá og setjast niður kl rétt rúmlega 7 um kvöldið og lágum á meltunni í nokkrar mínútur. Ákváðum svo að byrja bara á jólakortunum því annar eins bunki hefur varla litið dagsins ljós hérna áður. Þegar húslestrinum var lokið opnuðum við pakkana og vola við vorum búin að öllu milli hálf 8 og 8
– þó við værum að reyna að lesa kortin hægt, opna pakkana hægt osfrv. En það er bara nice. Sátum og skoðuðum afrakstur þessara jóla með gleði í hjarta. Flettum í gegnum Súkkulaðiástina og Lærðu að elda indverskt, afvelta af mat en samt tilbúin að demba okkur í aðal og eftirréttina sem eru svooo girnilegir í þessum bókum NAMM!
Við fórum svo rúmlega 8 í eftirmat í Melbæinn og pakkaflóðið á þeim bænum var ca hálfnað. Þar áttum við nokkra pakka í viðbót. Ofsalega huggulegt. Komum heim um/eftir miðnætti eftir rólegheit og spjall við pútta og múttu.
Jólaboð og fleiri jólaboð. Jólasteikur og enn meira salt og reykur. Hversu gott getur þetta orðið?? I love it.
Laugardagur í dag, vinnudagur á hinn. Og svo aftur löng helgi. Men hvað það verður hræðilega erfitt að mæta í fulla vinnuviku fyrstu vikuna í janúar. Jésús það verður ROSALEGT.
Jæja farin í göngutúr í fallega veðrinu. Enn og aftur gleðilega hátíð allihopa