Archive for November, 2009

Líf litla norska frænka

Sunday, November 29th, 2009

Þær voru með okkur í gær 3 litlar “norskar” frænkur mínar. Sóley, Sunna og Líf. Foreldrarnir voru í árshátíðarferð á Íslandi og tóku heimsókn á fjölskyldurnar í leiðinni. Þau voru hinsvegar í túristaferð, gullna hringinn og snjósleðaferð á jökul ofl skemmtilegt í gær meðan laufabrauðsskurðurinn og steiking fór fram. Systurnar 3 komu þó til okkar svo með stóru hálfsystur sinni og frænda. Stóru stelpurnar tvær tala nú alveg fína íslensku, enda heyra þær systur allar bara íslensku talaða heima. En norsku auðvitað í skólanum og með vinunum. En þær syngja íslenskuna eins og norskuna. Mjög fyndið. En Líf litla er … jiminn ég er ekki viss, 2ja? Kannski að verða 3ja. Hún syngur og talar mest megnis norsku – enn sem komið er. Amk gerði hún það þarna með okkur í gær. En við töluðum að sjálfsögðu íslensku við hana og hún skilur það alveg.
Svo sagði amma við hana: Líf, talaðu íslensku. Þá svaraði litla Líf: Det gjör jeg!

Það fannst okkur fyndið =)

Laugardagur til lukku

Saturday, November 28th, 2009

Laufabrauðin eru í steikingu – ég stakk af úr brælunni, er að fara í jólahlaðborð með Lalla og Valitor. Jólin eru svo sannarlega að skella á mér af fullum þunga. And I like it! Loksins loksins segi ég nú bara. Ég skreytti í gær, setti ljós í glugga, Gogga Jens í glugga, aðventuljós í glugga, jólasveinar útum allt og jóladagatal á vegg. Life is goooood.
En ég geymi samt slatta af dóti þangað til lengra líður á aðventuna. Ég er td ekki búin að skreyta jólatréð og ætla ekki að gera það nærri nærri strax. Með öðrum orðum, það geri ég sko ekki fyrr en í ALLRA fyrsta lagi á fjórða í aðventu. ALLRA ALLRA fyrsta lagi.
Ég á samt svolítið bágt. Ég er með mynd sem mig langar svo að hengja á vegg. Ég hengdi hana á nagla í fyrra sem var ónotaður. Síðan er ég búin að mála og ég á einhverra vegna svo erfitt með að taka annað niður til að hengja jóladótið upp. Þarf að herða mig upp í þessa athöfn. Ekki eins og þessar myndir hangi uppi í mjög langan tíma… bara mánuð og svo fer hitt upp aftur HAHA þetta er bara eitthvað svo fáránlegt. Ég er svolítið fáránleg og ferlega íhaldsöm hvað sumt svona varðar!

Kleinubakstur á þriðjudag og þá mega jólin bara fara að koma held ég HAHAHAHa.. Eða.. nei ekki fyrr en eftir Edinborgarferðina. Ég þarf að finna pössun fyrir Lallann minn. Hver býður sig fram til að bjóða honum í mat? :) Ég er búin að redda pössun fyrir 1 kvöld – 3 eru eftir.

Í gærkvöldi skreytti ég milli bökunarplatna. Nammi namm… þvílíkur myndarskapur hér á bæ.

??

Friday, November 20th, 2009

Ég set spurningamerki ? við bílstjóra þegar:
- gamli maðurinn verður að hjálpa gömlu konunni inn í bílstjórasætið og hún er með súrefniskút með sér. Ef hann er of lélegur, sjóndapur eða eitthvað slíkt til að keyra og hún getur ekki sest hjálparlaust í bílstjórasætið og þar að auki með súrefniskút þá set ég ? við það að fólk eigi yfir höfuð bíl?!?!?!?!… HVAR ER ÁBYRGÐ LÆKNA, ÆTTINGJA OG AÐSTANDENDA VEGNA ÞESSA FÓLKS????

Síðastliðin helgi kemur hér!

Thursday, November 19th, 2009

Um síðustu helgi bauð ég vinkonum heim í fondúboð. Obbosslega huggulegt og gaman hjá okkur. Borðuðum á okkur gat og sötruðum rauðvín. Fengum frábærar fréttir og slúðruðum. Eðal night!

Picture 029

Á laugardagskvöldið fórum við í ítalskt þemaboð til Hauks og Írisar ásamt Kristni, Guðrúnu og Ástu. Frábært kvöld með góðu fólki sem við hittum allt of sjaldan! Dæmigert..

Held ég geri þessari helgi ekkert mikið meiri og nánari skil. Bara vel heppnuð helgi með frábæru fólki. Við erum rík að eiga gott fólk að!
En nú er að koma helgi aftur og mikið um að vera á laugardag. Afmæli Harðar og Ástu ömmu Lalla, Söngvaseiður og svo bara leti smeti! :)

Ávaxtakarfan

Wednesday, November 18th, 2009

Fyrsta jólamandarínan komin í maga…. nammi namm hún var svoooooo góð! Keypti sem betur fer kassa :)

Talandi um ávexti. Ég keypti mér vínberjaklasa um daginn. Ekki eins og það sé það merkilegasta sem hefur gerst í mínu lífi lengi NEMA HVAÐ það var ógeðslega vond lykt af berjunum. S.s uppúr pokanum. Ég náttúrulega skola alltaf, ALLTAF berin áður en ég borða þau og ég var á stað um helgina þar sem ég gat ekki skolað, heldur setti vatn í glas og setti nokkur ber ofaní í einu og þurkkaði svo á servíettu og borðaði. Berin voru virkilega góð og ekkert þeirra ónýtt svo ég skyldi ekki hvaðan lyktin kom. Fyrr en ég sá vatnið í glasinu eftir skolunina!!! ÞAÐ VAR BRÚNT. Ýkju og grínlaust!! OJ BARASTA. Ég missti lystina og henti rest :( Svo ég hvet þig því til að skola alltaf vínber rosalega vel áður en þú borðar þau!!

Jólaundirbúningurinn er loksins að HELLAST yfir mig af fullum þunga – and I like it! Bakaði fyrstu smákökusortina í gær heima og hengdi upp seríur á samt eftir að kveikja á þeim.. geri það fljótlega!! :)