Ohhh þegar maður á að láta sér detta eitthvað í hug þá dettur manni EKKERT í hug! Dæmigert. Ég er að reyna að finna eitthvað að gera fyrir vinnufélagana, einhverskonar “árshátíð” fyrir okkur saman.
Eina hugmyndin sem ég hef fengið er að fara á Kryddlegin hjörtu www.kryddleginhjortu.is á föstudagskvöldi á bongókvöld. Það er rosa gaman og mjög hollur og góður matur þar. En vill hafa fleiri hugmyndir til að velja úr. Svo ef þú lumar á góðri hugmynd – endilega skildu hana eftir hér fyrir neðan.
Takk
Archive for October, 2009
Skemmtun
Friday, October 30th, 2009Evrópumeistaramótið
Friday, October 23rd, 2009er búið í mínum huga. Ég er búin að standa mína plikt – þó sú plikt sé ekki jafn mikil og margra annarra.
Verð að segja að frá mínum bæjardyrum séð þá var þetta svakalega flott mót. Allt gekk rosalega vel og var mjög vel að þessu öllu staðið. Sama segir yfirdómarinn sem er að ég held bresk lady. Hún sagðist heyra í öllum hornum, frá öllum aðilum að þetta væri mjög vel gert að öllu leiti.
Sem er mikið hrós fyrir skipulagshóp og aðra sem að þessu komu því þetta er í fyrsta sinn sem svona stórt sundmót er haldið á Íslandi.
Gaman að hafa verið hluti af þessu ævintýri öllu =)
Er samt alveg búin að fá nóg og ætla sko að sofa ÚT á morgun
bannað að hringja og vekja mig (ef þið verðið vöknuð á undan mér þ.e.a.s hehehe)
Skjaldbreiðarvegur 18.okt´09
Sunday, October 18th, 2009Fyrsta ferð vetrar farin í dag. Vonandi fyrsta af mörgum til að bæta upp fyrir fáar ferðir síðustu 2 vetur
Við fórum sem leið liggur frá Höfuðborginni á Þingvelli inn Kaldadalinn upp á Skjaldbreiðarveg alla leið að afleggjaranum upp að Hagavatni þar sem við ákváðum að keyra en urðum að snúa við vegna lélegs vegar, áfram Skjaldbreiðarveg alla leið niður í Haukadal framhjá Gullfossi, stopp á Geysi og svo í Borg óttans aftur. Fínn dagtúr. Lögðum af stað um hádegi og vorum að koma í bæinn líklega um 16:30. Rosa gaman.
Það var reyndar ekki mikill snjór á leiðinni, en nóg til að kæta okkur svolítið og minna okkur á að taka með hlý föt og svona
Erum ALVEG dottin úr æfingu með það greinilega hihihi..
Við fórum með þrítugsafmælisgjöfina mína =) Ég fékk þrítugsafmælisgjöfina mína AÐEINS 11 mánuðum og 17 dögum of snemma. En hver kvartar yfir því?? Og svo kannski verður Lalli búinn að STEINgleyma því eftir 11 mánuði og 17 daga að hann hafi verið búinn að gefa mér þessa afmælisgjöf og þá kannski fæ ég aðra … Allt útpælt
Ef ekki þá verð ég bara sátt samt!!
Viltu vita hvað það er? Já einmitt það er alvöru myndavél. Duttum niðrá eina notaða á góðu verði og ákváðum að stökkva á það bara. Eins og ekkert sé!!! Við erum alveg ægilega ánægð og nú er bara að læra almennilega á hana… amk fyrir þá sem fékk hana í afmælisgjöf.
Jæja mjög langur og strangur mánudagur að renna upp. Sem minnir mig á það.
Kristján brósi er að koma á morgun ásamt karli föður okkar frá Special olympics á Mallorka. Mér skyldist að það væri búið að ganga vel og vera gaman en soldið strembinn tími – fyrir þá báða feðgana! Þetta er of stuttur tími fyrir hópinn. Einum of mikill kreppubragur á þessu öllu hjá þeim. En fyrir öllu að það sé búið að vera eftirminnilegt.
Og ég er að fara að dæma á Evrópumeistaramóti fatlaðra í Laugardalnum í vikunni. Ætla nú ekki að vera alla vikuna. Ég læt mér nægja að taka 4 hluta, þetta er svolítið spennó – að vera á svona “alvöru” stórmóti. Því ég reikna nú ekki með að keppa á svoleiðis móti sjálf úr þessu og því gaman að geta sagt að maður hafi samt staðið á svona móti í öðru en sem áhorfandi. Maður fær alveg allan búninginn og alles gefins. Aðeins öðruvísi en litlu innanfélagsmótin sem ég er eingöngu búin að vera á undanfarið. Tjahh eða ekki alveg innanfélagsmót, en samt bara þessu venjulegu ármannsmót með fleiri félögum. Bara ógildingamiðarnir eru MIKIÐ MIKIÐ flóknari en maður á að venjast. Ég held bara svei mér þá að ég muni ekki dæma neinn ógildan.. það er of mikil skriffinska hehehehehe.. Annars eru þetta náttúrulega bara þeir sem hafa náð lágmörkum. Svo þetta eru topp sundmenn allt saman og þeir EIGA að kunna að gera allt gilt. En maður veit hvernig þetta er… það getur alltaf eitthvaða komið uppá – eða einhver er að sjá hversu langt hann kemst ![]()
Reglurnar eru þó örlítið frábrugðnar enda ekki hægt að dæma handalausa manneskju úr leik fyrir að koma ekki með báðar hendur í bakkann í bringusundi…. Eins og gefur að skilja.
Jarðskjálftar og debetkortaruglingur
Friday, October 16th, 2009Dreymdi í nótt að við Lalli værum á árshátíð Valitor á Hótel Selfossi (vorum þar í fyrra). Í miðjum matnum kom jarðskjálfti. Byrjaði fyrst bara svona eins og einhver væri aðeins að hrista stólana okkar, ekkert stórkostlegt neitt en varði í talsverða stund. Fólk var smá stund að átta sig á að þetta væri jarðskjálfti (einhverjar sekúndur). Svo komu öldur, þ.e jörðin gekk í bylgjum og fólk hélt sér í borðin. Komu kannski 2-3 öldur og svo hristumst við aftur eins og fyrst. Það trylltist enginn neitt en fólk andaði léttar eftir að þessu lauk. Þetta var ekki það slæmt að allt færi í rúst en ansi góð hreyfing á jörðinni samt.
Daginn eftir var Lalli einhverstaðar (veit ekki hvar) og ég fór niður til að borga fyrir matinn og nóttina (sem starfsmannasjóður greiðir vanalega) þá dreg ég upp debetkortið og þarf að fylla eitthvað út með kennitölu og eitthvað. Ég blokkerast og ætla að skrifa kennitöluna eitthvað kolvitlaust og allt í bulli og hún fer eitthvað að leiða mig áfram miðað við kennitöluna á kortinu en það ruglar mig bara meira. Þangað til ég hætti að tala og skrifa kennitöluna rétt niður – ég hafði sko verið að tala við hana allan tímann og greinilega ekki stemmd til að múltítaska þennan morguninn. Jæja nema hvað hún verður eitthvað skrítin og ég fer að horfa á kortið sem ég rétti henni og sé að þetta er eitthvað kolvitlaust kort. Sparisjóðskort og ég er hjá Landsbankanum!! Kíki á kortið og það er sko ekki mitt. Kristinn eitthvað einhversson (man ekki lengur allt nafnið!) Og ég alveg WHAT?!?! og kennitalan sko 1105… (man ekki meir). Ég eitt spurningamerki! Hvernig í ósköpunum a) náði ég í þetta kort b) hvarf mitt kort ?? Og vísakortið á sínum stað í næsta “vasa” við debetkortið í veskinu. Stórkostlega skrítið mál allt saman. Man svo bara að ég hugsaði að ég yrði að hringja til Valitor þjónurstuvers 525-2000 og kanna hvort það hefðu einhverjar færslur farið af kortinu sem ég kannast ekki við nýlega…
Hvað segir þetta manni eiginlega???
a) jarðskjálftinn – en engar skemmdir
b) kortaruglingurinn? Og hver er þessi Kristinn??
Pirr pirr
Thursday, October 15th, 2009Ótrúlegt hvað litlir ómerkilegir hlutir sem skipta engu máli geta farið í taugarnar á manni þegar maður er þreyttur og svangur og langar ekkert heitar en að koma heim og hvíla sig og borða góðan kvöldmat.
Ég lenti í þessu í strætó á leiðinni heim eftir langan vinnudag! Strætó fór ekki rétta leið því það er lokuð gata á leið vagnsins. Búhú… og þegar ég fattaði að hann færi ekki hina hefðbundnu leið þá langaði mig til að stökkva frammí til bílstjórarns og segja “hey, hleyptu mér út þarna mörðurinn þinn svo ég þurfi ekki að labba (aðeins) lengra en áður” Þetta er nefnilega bara örlítið lengra… En ég sat á mér og hugsaði “hvað er að þér manneskja??”..
Fór svo þegjandi út á næstu stoppistöð og velti því fyrir mér hvað það var yndislegt að labba örlítið lengra heim í þessu dásamlega veðri..