Fer eitthvað lítið fyrir heimsóknum og öðru þessa dagana.. Vetrartíðin er skollin á okkur hjónum með tilheyrandi þéttskipaðri dagskrá. Ætla nú ekki að þreyta menn og konur með svoleiðis fréttum endalaust.
Það var sundmót um s.l helgi. Árshátíð þá næstu, kleinukennslubakstur annað kvöld á Skaganum og sitthvað fleira.
Gaf mér reyndar tíma til að skella mér í bíó í kvöld. Stelpubíó. Fór með Dagbjörtu, Berglindi Rut, Halldóru og 2 vinkonum Dagbjartar. Sáum The ugly truth. Ágætis afþreying ef maður fer með zero væntingar. Ég hafði satt best að segja ekki einu sinni séð auglýsingar… Ágætis kvöldeyðsla.


