(Lalli tölvugúrú fann hvert vandamálið var – það var einhver diskur fullur sem gerði það að verkum að allt fór í rugl, en engir hakkarar á ferð. Sem betur fer!)
Það eru þónokkrir haustboðar farnir að líta dagsins ljós. Fyrir utan að ágúst er að verða búinn, þá er veðrið farið að láta okkur vita af haustinu með tilheyrandi hitalækkun – allt í einu er maður farinn að sjá einsstafa tölur – rok/lægðir osfrv. Rökkrið er orðið allsráðandi á kvöldin sem og myrkur á nóttunni. Svo merki ég haustið einnig með öllum dauðu flugunum sem ég er að finna útum allt hús. Geri ekki annað en að taka upp dauðar hrossaflugur og húsflugur á ólíklegustu stöðum. Þarf greinilega að fara að grípa mér ryksugustút í hönd og skríða um íbúðina, teygja mig á bakvið allt og uppá allt til að losa mig við þennan kirkjugarð.
Þó er ég ekki enn farin að sjá haustliti á trjám, en trúi því að þeir fari að láta á sér kræla áður en við vitum af.
Gleðilegt haust. Mér finnst þetta frábær tími. Allar árstíðir hafa sinn sjarma.