Hæ hó jibbí jeijj og jibbí jeijjjj, það er kominn 17. júní! Jahh það eru reyndar 20 mín í það – en hverjum er ekki sama um díteils??
Morgundagurinn verður mjög hátíðlegur. Hann hefst á æfingu kl 10! Ójá – nú er mín að taka þetta með rosa trompi. Byrjuð að sanka að mér hlutum til að detta ekki út í sumarfríinu. Það er stranglega bannað. Stefni á fjallgöngur, sipp, armbeygjur, situps, hnébeygjur og allt það sem hugurinn girnist. Lofa því þó að ég mun líka sitja róleg og vera í fríi…
En fyndið að í gær var ég low power. Í dag var ég í low power – alveg þangað til ég fór á æfingu, eftir æfinguna varð ég óð. Alveg trítilóð. Eirðalaus í öllu veldi og var komin á það að hlaupa bara út að djamma HAHAHAHHA… endaði með að taka upp tuskuna og byrja að þurrka af og skipta á rúmunum
Ekki vit í neinu öðru!! Ég veit ekki hvernig ég verð um jólin þegar þetta kort mitt rennur út!?!? Ef ég er svona orkumikil í dag eftir æfingarnar – úff verð þreytt við tilhugsunina um hvernig ég gæti orðið þá. En það verður spennandi að sjá.
Það hefur verið nóg að gera í vinnunni. Thank god. Varla að maður þori í frí c”,) og eins og staðan er núna þá hef ég sko engan tíma til að fara í frí. En þar sem það er ekki alveg komið að því þá fer ég nú ekki að örvænta, og þó það verði enn kreisí þegar þar að kemur þá bara bíður fólk í þessa daga sem ég er í burtu. Varla svo aðkallandi mál á dagskrá
Jæja farin með alla þessa orku í draumaheima. Vona að ég verði svona orkumikil í fyrramálið á útiæfingunni. Hef aldrei farið á svoleiðis og vona að það verði ekki kreisí rigning mér til heiðurs í brekkum Ártúns kl 10:00.
Veriði sæl