Ég fékk sms frá Dagbjörtu í kvöld sem sagði: “eruði hjónin á leiðinni út á lífið í kvöld?”
Ég spáði í alvöru í það hvort ég ætti að skellihlægja eða gráta! HEHEHE Sendi henni til baka að við færum ekki neitt frekar en vanalega HAHAHAH but nice try Dagbjört! =) þú bjargaðir alveg helginni.
Í staðinn fyrir djamm á laugardagskvöldi, þá fórum við hjónin á Lokasýningu Ljósmyndaskólans hennar Anítu og skoðuðum fullt af flottum myndum. Fengum okkur svo einn sveittan á leiðinni út úr Hafnarfirði. Keyrðum svo sem leið lá upp að Kleifarvatni til að setjast í guðsgræna náttúruna og reyna að finna skjálfta
– en viti menn. Móðir náttúra lætur sko ekki segja sér fyrir verkum, ég fann einn oggupínu ponsaðan því ég lá á jörðinni, heyrði pínu drunur og vott af hristingi. (Lalli sat í stól og fann því ekkert!)
Talandi um að liggja í náttúrunni. Óboy hvað það var dásamlegt að finna ilminn af lynginu og villtri náttúrunni. Þvílíkt sem ég hlakka til sumarfrísins og að njóta náttúrunnar.
Svo byrjuðu að koma dropar, sem litu út fyrir að ætla að vera úrhelli sem og það varð nema því fylgdi einnig HAGLÉL… og það er júní eftir 26 klst! Djísúss blæst..
Frúin ég ætlar að fara á Dalai Lama á þriðjudaginn! Hlakka pínu til þó ég viti varla við hverju eigi að búast. Þetta verður svona once in a lifetime tækifæri. Spennó spennó!