Archive for April, 2009

Hjúkk kosningum að ljúka

Saturday, April 25th, 2009

Ég verð ekkert smá fegin. Það var þungu fargi af mér létt þegar ég steig út úr kosningaklefanum í morgun. Fór sko þangað strax um kl 10! En vissulega er svo kvíðvænlegt hvað tekur við. Mér er eiginlega alveg sama hver tekur við það er allt hálf kvíðvænlegt.

En nenni ekki að velta mér upp úr þessu meir. Ég þarf ekki að pæla í þessu meira.
Montsaga: ég fór á æfingu í gær og svo beint í göngutúr kringum Rauðvatn eftir það.
Eftir kosningu í morgun fór ég ásamt mömmu, Herði og Ástu Kristínu á Úlfarsfellið. Hrikalega dugleg maður minn =) Verst að ég gleymdi myndavélinni því það var yndislegt veður, alveg ekta gönguveður. Logn hálfskýjað og sæmilega hlýtt. Gola uppi og pínu köld, en ekkert ægilegt samt.

Var að setja inn myndir frá Sumardeginum fyrsta. Myndirnar má finna hér: http://www.slepja.com/gallery/album211 munið svo bara að senda okkur póst ef þið vitið ekki lykilorðið.

Gleðilegt sumar by the way og takk fyrir veturinn

Holy krap – kosningar

Thursday, April 23rd, 2009

Ég hringsóla fram og aftur með þessar blessuðu kosningar. Ég vill eiginlega ekkert af þessu “drasli” öllu! Allt jafn ómögulegt. Ég mun líklega taka endanlega afstöðu í kjörklefanum.

Æfingafrétt dagsins: harðsperrur fyrir ofan mitti og fyrir neðan mitti. S.s all over!

Allt gott af okkur annars. Bara same shit. Jeppó alveg að verða skoðunarhæfur – jíha..

Á batavegi

Tuesday, April 21st, 2009

Sem svar við athugasemd við síðustu færslu.

Ég er á góðum batavegi. Ég er mesta furða orðin virkilega góð. Ekki best en mjög góð. Hef ýmis verkefni tengd þessari áhugaverðu reynslu næstu vikurnar og líklega alla ævina, en þetta gekk vægast sagt hraðar en ég átti von á. Dýrð sé guði og öllum hinum englunum =) HAHAHa

Takk fyrir stuðninginn kæru vinir og vandamenn! :)

Allt á réttri leið

Saturday, April 18th, 2009

Já held þetta sé að koma. Af því að ég var svo stillt! Jebbs það borgar sig sko…
Ég verð ekkert orðin laus á mánudag, en verð orðin mikið betri.
Fór á æfingu í gær – föstudag, en bara til að mæta, horfa, gera fáar, léttar æfingar og teygjur. Það var fínt

Trausti hélt upp á þrítugsafmælið sitt í gær. Man ekki hvenær ég borðaði jafn mikið og einmitt þar! Jésús minn. Betra nautakjöt held ég ekki að ég hafi smakkað og lambið var þrusu gott líka. Súkkulaði bomban í eftirmat var 3x of stór (Val að kenna, hann skammtaði mér!) en shæt góð var hún!! En ég var AFVELTA þegar ég kom heim. S.s sem betur fer fór ég í ræktina úff…. =) Þarf að fara að setja saman betri máltíðir næstu vikurnar.

Föstudagur

Friday, April 17th, 2009

Jæja Frú Helga Dröfn er búin að vera í veikindafríi í 4 daga, með öðrum orðum þetta er fjórði dagurinn. Mér hefur varla gefist tími til að láta mér leiðast – mesta furða.
En í gær og í dag þá fannst mér ég vera komin á rétta slóð. Húrraahhh…
Ég á án efa enn soldið langt í land, kem til með að eiga í þessu í einhvern tíma, en ég held bara að ég fari að koma mér til vinnu á mánudag. Reyni að taka mér styttri daga og fara vel með mig. Taka léttar æfingar í ræktinni til að byrja með. Ég er eiginlega svekktust yfir gymminu. Fúlt að vera kominn af stað og vera svo tekinn úr umferð. Ok sá alfarið um það sjálf!!
En ég sé fram á bjartari tíma – jeijjjj og þá er bara að halda áfram að fara vel með sig og vinna með þetta allt saman á góðu róli.

Góða helgi – ég held ég verði þreyttari eftir helgina en góðu hófi gegnir, en það kemur í ljós