Archive for March, 2009

Helgin búin..

Sunday, March 29th, 2009

Kl er 22:46 þegar ég byrja að skrifa og ég var að enda við að ljúka helgarverkunum! Í upphafi liðinnar viku leit þessi helgi út fyrir að vera róleg og þægileg. Pylsupartý í tilefni 84 ára afmælis afa á laugardegi og fermingarveisla Einars og Halldórs í dag sunnudag, en dagarnir annars rólegir. Ég ákvað því að nota tímann og sósíalera svolítið með þeim sem maður hefur ekki hitt lengi og bauð í mat og eitthvað og eitthvað. Þegar sunnudagurinn var hálfnaður þá áttaði ég mig á að við erum bara búin að vera á fullu alla helgina. Hvernig þetta getur breyst!! En góð helgi að baki samt. Hlakka til næstu vinnuviku/fyrstu gymæfinganna og 2ja aðalfunda þar sem ég læt af stjórnarstörfum á báðum stöðum! =) Svo frelsið tekur við!

Sundtaska

Wednesday, March 25th, 2009

Þetta hljómar ekki jafn merkilegt og það í alvöru er. En ég var að kaupa mér nýja sundtösku.
En eins og allir vita sem þekkja okkur þá erum við mjög MIKIÐ í sundi. Líklega að meðaltali annan-þriðja hvern dag. Gamla Nike sundtaskan / bakpokinn var keyptur í Glasgow… eða Edinborg, líklega Edinborg í ágúst 1997. Jebb sundtaskan mín svona mikið notuð er orðin rúmlega 11 ára og 7 mánaða gömul í minni eigu! Hún hefur ferðast með mér hingað og þangað um heiminn, útum allt land og í hinar ýmsu sundlaugar. Hún hefur verið í dauðatygjunum lengi lengi og ég hef s.s ákveðið að leyfa henni að eiga friðsamlegt andlát. Hún hefur verið leyst frá störfum hér með.
Ég hef því eignast nýjan ferðalang, nýju Nike töskuna (eins og nýji Landsbanki!) sem er ekki bakpoki heldur hliðartaska fyrir þá sem vilja vita það hahahahaha..
Ég er strax orðin hrifin af henni. Þetta hljómar eins og ég sé Nike-nörd en þetta er eingöngu tilviljun að ég fann aðra Nike tösku.
Spurningin er hvort nokkur þekki mig með nýju töskuna???

Vorið

Tuesday, March 24th, 2009

Fyrsti vorboðinn er kominn í Dalselið. Húsflugan birtist í dag! Lalli sá skugga og sagði “vó, hvað var þetta?”
Greinilega soldið langt síðan maður sá vorboðana síðast!! HAHAHAHa…

Crossfit

Monday, March 23rd, 2009

Jæja nú er ekki aftur snúið, ég var að greiða fyrir aftökuna. Bumbuna burt! Stefni á fjallgöngur og fjör í sumar! :) Þá þarf þokkalega að bæta í þolið… jííhhaaa…. Verð vonandi komin á rjúkandi siglingu í hreyfingu í byrjun maí! Eins gott að maður nái að halda sér við eftir þetta námskeið.

Strætóferð

Monday, March 23rd, 2009

Já nú skal sko bloggað HAHAHAHA…

Ég hef verið að taka strætó alltaf af og til síðustu mánuði enda ekkert smá einfalt að taka strætó að heiman og í vinnuna. Sem er svo sem ekki frásögufært, nema í dag þá lenti ég á almennilegum bílstjóra, það telst til frásagnar! Hann beið meðan gamla konan kom sér í stæti en þrumaði ekki bara af stað um leið og hún var búin að borga eins og þeir ótrúlega margir. Aksturinn var ljúfur en samt á tíma. Hann brosti út í annað og bauð góðan dag ólíkt sumum sem gera það ekki einu sinni þó maður bjóði góðan dag að fyrra bragði hátt og skýrt.
Svo ég er ekkert smá hamingjusöm í dag HAHAHAHAHa… hef verið að blóta þeim mörgum undanfarið. Stundum er maður með æluna í hálsinum því þeir keyra svo fruntalega :(

= boðskapur dagsins, það þarf lítið til að gleðja frú Helgu Dröfn