Archive for February, 2009

EF…

Saturday, February 21st, 2009

…ég ætti pening á lausu núna þá væri KJÖRIÐ tækifæri að skreppa til Birkis í Kuala Lumpur, fara þaðan til Önnu Margrétar í Kína og frá henni til Ástu Sigrúnar í Ástralíu. Svo myndi ég fara í “leiðinni” til Nýja Sjálands fyrst ég væri komin á þessar slóðir. Nú er tækifærið að heimsækja þessar slóðir – en hvar er peningurinn??

Til Ástu Sigrúnar

Sunday, February 8th, 2009

Því hún vildi ekki sjá þunglyndislegt ESB lengur. En ég nenni eiginlega ekki að skrifa neitt hérna í bili enda hef ég sjaldnast nokkuð að segja svo það er nú kannski ekki mikill skaði skeður!

Óska hér með Ástu Sigrúnu góðrar ferðar til Ástralíunnar með von um mikla skemmtun og heilmikla reynslu. Hlakka til að lesa fleiri blogg frá þér en koma hér á eftir á slepjunni (þarf ekki mikið til reyndar). Og eins gott að við fáum þetta documenterað alla leið hingað á klakann – hinummegin á hnettinum!