Kristinn spurði í síðasta pistli:
“Qué pasa?
Hvað hefurðu fyrir þér í þessum ályktunum um að olíu og fisk verði ráðstafað af Evrópusambandinu?
Ég er þér alveg sammála, en mér hefur verið tjáð að þetta atriði sé gjarnan tekið úr öllu samhengi við raunveruleikann af andófsmönnum ESB.”
Svar:
Ég hef reyndar lítið fyrir mér í þessu annað en einmitt þetta, orðið á götuni. En sé þetta rangt ætti að vera auðvelt fyrir Evrópusinna að kveða niður þennan þráláta draug.
það er ekki nóg fyrir mig að Evrópusinni segi þetta slitið úr samhengi við raunveruleikann. ég þarf að fá betri -sönnun- fyrir þessu. fyrst þetta er svona útúr korti hlýtur að vera auðvelt að sýna fram á þetta svart á hvítu. Samt hef ég aldrei séð það gert…..
Við skulum líka athuga eitt.. EU er ekki einhver klúbbur með ársgjöldum. ef við göngum í þetta bandalag þá er ekki hægt að hætta við. Allavega er það orðið á götuni. Ég er ekki tilbúinn að fara þarna inn nema eftir gríðarlega yfirgripsmiklar umræður þar sem allir kostir og gallar koma í ljós, þar til það hefur farið fram hafna ég gersamlega öllum hugmyndum um “hraðmeðferðir” og slíkt kjaftæði. Ég tek ekki þátt í þessu nema vita að þetta hagnist landinu í heild.
Það þarf að kveða niður marga EU drauga. Umræðan þarf að fara fram og allt þarf að koma upp. vellta þarf hverjum steini… það tekur tíma, meiri tíma en “hraðmeðferð” (sem að öllum líkindum er ekkert í boði hvort eð er) býður uppá.
Stækkunarstjóri Evrópusambandsins hefur margítrekað að það sé ekkert til í EU sem heita sérsamningar eða undanþágur. Aðeins er hægt að semja um AÐLÖGUNARTÍMA-SAMNINGA. Eftir það erum við bara ofurseld því valdi sem býr í Brussel.
Hver mun stjórna hversu mikið verður veitt hér? verður það vald í Brussel eða á höndum fiskifræðinga og stjórnar á Íslandi? þetta þarf að koma skýrt fram og vera staðfest.
Hvernig verður þessum kvóta skipt? fá öll aðildarríki sem það vilja part í kvóta hér? getum við sagt til um hvað stórum hluta aflans verður landað hér til vinnslu? Einnig þarf þetta að koma fram og vera staðfest.
Verði þetta ekki í okkar höndum og fari þessi störf úr landi, fáum við einhver störf í staðin?? eða Styrki úr sjóðum EU?
Eins með orkuöflun og sölu… er raunhæft að selja orku héðan um sæstreng til Evrópu? Munum við ráða því hvað verður virkjað og hvað ekki? eða færist það vald til Brussel? munum við hafa nægilegt úrslitavald til að stöðva orkuöflunarframkvæmdir til verndar náttúruperlum ef meirihluti þjóðarinnar vill það???
EU er ekkert ókeypis heldur. Vel stæð ríki EU borga mun meira til sambandsins en þau fá til baka fyrir að vera í EU. Hversu mikið vega þær upphæðir íslendinga í málinu? Græðum við meira á að vera í tollabandalagi EU en þessu nemur?
Ég vill fá skýr svör við þessum spurningum og fleirum, ég viðurkenni að ég hef ekki verið duglegur að leita mér upplýsinga um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið og hef fallið í þann pytt að grípa kanski upphrópanir andstæðinga á lofti og gera að mínum eigin…. en umræðan í dag býður bara ekkert uppá annað. því miður.
vonandi breytist þetta og maður getur tekið upplýsta ákvörðun. Ég mun hafna inngöngu í EU þangað til.
Lalli