við skulum athuga eitt: hvaða ástæðu sjá Norðmenn fyrir því að ganga ekki í ESB? jú, fyrst og fremst til að missa ekki yfirráð yfir sínum helstu auðlindum sem eru 2: fiskur og olía.
Finnist olía í vinnandi magni hér við land tel ég ágætt að við ættum hana bara sjálfir en ekki evrópusambandið. Norðmenn vita að ef þeir færu í ESB þyrftu þeir að borga gríðarlegar upphæðir til sambandsins af olíugróða sínum vegna góðrar stöðu. þar fyrir utan ætti EU réttinn á að skipa fyrir hve mikið er unnið af olíu og hvenær.
þótt kvótakerfið okkar sé ekki það besta er það helvíti mikið skárra en fiskveiðistjórnuarkerfi Evrópusambandsins sem hlustar lítið á rannsóknir vísindamanna og stundar arðræningjaveiðar í lögsögum félagsins án þess að þjóðirnar sem eru svo óheppnar að eiga lögsöguna þar sem þetta er gert fái rönd við reyst.
Hér yrðu erlend fiskiskip EU að veiðum og við fengjum aðeins brotabrot ef ekki brotabrotabrot af úthlutuðum kvóta til eigin veiða… sem myndi þýða fjöldagjaldþrot fiskveiðifyrirtækja og aukið atvinnuleysi.
villt þú bera ábyrgð á því?? ég bara spyr.
Ég segi nei við ESB af tvennum ástæðum aðallega:
NEI, höldum fullveldi landsins og vinnum okkur sjálf útúr skítnum sem við komum okkur í.
NEI, ég vill ekki gefa Evrópusambandinu auðlindir landsins.
Kveðja,
Lárus