Archive for October, 2008

Lazyass

Sunday, October 26th, 2008

Þetta er búin að vera LETI HELGI hjá mér. Og það var yndislegt. Enda er ég letirass

Gærkvöldið fór reyndar í Carusomat og Hálfvitarugl á Rósenberg með heilsunuddurum. Það var frábært.

En af því að ég er svo löt að þá ætla ég ekki að skrifa meira í dag.

Bless

22.okt 2008

Wednesday, October 22nd, 2008

Eins og mér einni er lagið þá er ég pollýanna í gegnum þessa erfiðleika í þjóðfélaginu / heiminum. Þetta hefur held ég komið víða fram á netmiðlum! Ég syndi á móti öllum þessu þungu orðum og svartsýnu spám. Ég er samt ekkert að reyna að halda því fram að það séu ekki alvarlegir tímar heldur hvernig við horfum á hlutina. Hvað hef ég uppúr því að vera fúl og pirruð yfir þessu daginn út og inn? Ég get lítið gert nema gleðja sjálfa mig og aðra í kringum mig. Allavega, svona var stjörnuspáin mín í dag á www.mbl.is : hihihi.. mér fannst það lýsa einmitt mér þessa dagana…

Vog: Það er tilgangslaust að argast út í það sem er. Það veitir frelsi að sætta sig við hlutina. Til að öðlast hamingjuna, þarftu að elska raunveruleikann.

Eirðaleysi

Monday, October 20th, 2008

Ég er svo hrikalega eirðalaus þessa dagana. Held að ég hafi of mikinn tíma að spila úr – aldrei slíku vant!! Ég næ að gera allt sem ég þarf að gera á virkum dögum um miðjan dag. Helgarnar eru því nokkuð lausar hjá mér svo ég er ekkert á miklu útstáelsi þá. En alltaf finnur maður sér verkefni :)

Sem dæmi um eirðaleysi mitt þessa dagana þá er komið skipulag á flesta skápana hjá mér, ég er búin að taka til í skápnum mínum og fara með 3 innkaupapoka í rauðakrossgáminn go 1 í ruslið, henda skóm og ég veit ekki hvað og hvað! Ég er búin að gera það sem ég get í ruslaherberginu okkar. Lalli byrjar reglulega að taka til þar.. en það sér ekki högg á vatni. Þar er sko draslið hans (allt utan bíladótsins!!) og ég á smá, en það er náttúrulega allt rosa vel skipulagt inni í skáp eða uppá skáp hehehe… Svo er eitt og annað sem þarf að fara í gegnum þar sem við höfum hummað fram af okkur lengi lengi. En nú er tíminn og ég er byrjuð að bretta upp ermarnar og fara í gegnum þetta. Úfff.. Næst er það s.s bara geymslan hihihi.. Ef ég kemst fyrir þar fyrir húddi, bílahurðum og bílasætum!! Ég legg samt ekki í bílageymsluna. Það er ekki minn vettvangur. Svo þegar ég er búin með íbúðina mína og geymsluna á ég þá að koma til þín??

Afmælishelgin

Monday, October 13th, 2008

Jæja já, Valitor fólk var svo almennilegt að bjóða mér á Hótel Selfoss í gistingu, mat og tjútt á afmælinu mínu. Ekki amalegt það! Það var svakalega gaman. Við vorum þar frá föstudegi til sunnudags. Veðrið á fös og lau var náttúrulega BARA DÁSAMLEGT. SNJÓ hef ég sjaldan séð á afmælinu mínu – ef einhvern tímann – og það var náttúrulega bara til að toppa helgina. (ég veit, ég veit, það eru ekki allir sammála mér!!!) Snjór, heiðskýrt og kalt.. já og reyndar leiðindarrok sem gerði kuldann frekar mikið kaldan! Ég nenni nú ekki að fara í díteila hérna með helgina. Þetta var bara ofsalega gaman. Þvílíkt næs að komast aðeins útúr bænum. Einhverra hluta vegna þá fórum við nánast EKKERT í allt sumar. Og ég sem sá sumarið fyrir mér útúr bænum helst ALLAR helgar. Það varð lítið úr því (fyrst og fremst því jeppagreyið er búið að vera inni í skúr síðan í vor einhvern tímann!! og það átti að vinna í að gera hann reddý FYRIR sumarið, en hann er enn inni!!!)

Brúðkaupsmyndir og -sagan eru komnar inn á slepjugallerýið. Senda bara á mig ef ykkur vantar lykilorðið – hd @ slepja . com

Við eigum einmitt eins mánaðar brúðkaupsafmæli í dag 13. okt – jeiiiiiijjjjjjj HAHAHHAHAa maður ætti náttúrulega að gera eitthvað stórkostlegt úr þessu. Við höfum enn ekkert rifist og heill mánuður er liðinn! Ekki að það megi skilja það sem svo að við séum alltaf að rífast – ég er ekki viss um að það hafi nokkurn tímann gerst… Það hefur þá amk verið afskaplega léttvægt og á mörkunum að það kallist rifrildi hafi það nokkurntímann átt sér stað :)  

Vona að þið hafið það öll gott þarna úti. Atvinnulaus eða ekki - brosum, því þetta gæti verið svo miklu miklu verra!

TAKK

Saturday, October 4th, 2008

allir fyrir kveðjurnar í gegnum sms, facebook, meil og annað. Nánari útlistun á deginum kemur síðar. ADIOS AMIGOS