Archive for September, 2008

Ný leikföng!

Friday, September 26th, 2008

Við fengum ýmsa góða gripi sem gaman verður að leika sér með í nánustu framtíð og helst má þar nefna nýja þvottavél sem er alger snilld, því gamla vélin var orðin svo léleg. Nú setur maður bara helgar-lærið í þvottavélina, stillir á suðu og mallar kryddblönduna í þvottaefnishólfið. Verst hvað kjötið verður þurrt eftir 1400 snúninga vindukerfið, en við hljótum að finna leið framhjá því fljótlega :)
þvottavélin

Hérna er ég að taka út handverkið… völundarsmíð alveg!

Meðal annara fallegra gripa má nefna þetta kosta-grill sem okkur áskotnaðist og nýtist einstaklega vel til sokkaþurrkunar þar sem grillflöturinn er næstum 1.5 fermetrar. mikið snilldarpródúkt!!

Nýja grillið

þess má geta að ég þarf ekki að raka mig næstu daga eftir þessa tilraun.

kærar kveðjur,
Lalli litli og Helga Dröfn

Takk fyrir okkur!

Saturday, September 13th, 2008

Hjónin
Kæru vinir og vandamenn, Við hjónin viljum þakka kærlega fyrir okkur á frábærum brúðkaupsdegi. Takk kærlega fyrir að mæta og gera þennan dag að ógleymanlegu ævintýri og við viljum þakka kærlega fyrir allar gjafirnar og heillaóskaskeytin sem okkur hafa borist. Hér með fylgja 2 myndir, en það er aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal :) stay tuned!
fíflagangur

Lárus Rafn og Helga Dröfn HJÓN!!!!!!!!

Föstudagur

Thursday, September 11th, 2008

og allt tilbúið sem getur verið tilbúið á þessari stundu. Ég trúi því varla sjálf. Mér finnst ég hljóta að vera að gleyma einhverju stórkostlega stóru og mikilvægu!! En ég er svo heppin að eiga svo ótrúlega marga að sem vilja allir ólmir fá að gera eitthvað og ég var svo dugleg að þiggja hjálpina þegar hún barst að ég er núna bara heima kl 18:30 daginn fyrir brúðkaup að þrífa heimilið í rólegheitum!! Er næstum með samviskubit – yfir að vera svona róleg HAHAHAHA

Ein sem er að vinna með mér spurði í dag; “bíddu ertu ekki að fara að gifta þig á morgun” jú jú svaraði ég. “hvað ertu að gera í vinnunni?” uuuuu hvað annað en að vinna?? HAHAHA. Þá sagðist hún hafa verið alla vikuna fyrir sitt brúðkaup í stresskasti í fríi að reyna að redda hinu og þessu HAHAHA… þess vegna er ég með samviskubit. Eru allir hinir þarna úti í með hnút í maganum yfir að komast ekki yfir verkin sem ég setti þeim fyrir? Ég vona ekki!!

Morgundagurinn byrjar þá bara á góðu baði eftir langan nætursvefn (engir baugar takk..) svo er bara greiðsla, förðun, klæða sig og byrja! Lúxus segi ég nú bara :)

Get ég hjálpað einhverjum þarna úti?

Um daginn..

Wednesday, September 10th, 2008

Nánar tiltekið að morgni laugardagsins 30. ágúst ruddist inn á heimilið okkar verðandi hjóna hópur giftra og ógiftra ungra manna með hávaða og læti. Gjallarhorn var notað – til skilgreiningar á því hvernig hávaðinnvar. Flassljós og læti vöktu okkur hjú af værum fegurðarblundi (ég lá reyndar vakandi því ég var farin að bíða eftir þeim.. ) og rak okkur framúr. Lalli var svo heppinn að þeir ákváðu að sleppa því að vekja hann með því að hella yfir hann ísköldu vatni í bælið. Þeir eru líka heppnir að hafa ákveðið að gera það ekki því annars hefðu þeir verið teknir af gestalista… og ég hefði aldrei talað við þá aftur hehehhee.. Hefði verið frekar pisst að sofa í blautu rúmi næstu DAGANA!! Á Lárus var settur mexíkanskur hattur og “teppi” slá eða hvað þetta heitir í mexíkönskum stíl. Hann var svo dreginn út í rútu og bara af stað.. þar sem leið þeirra lá norður í land í bústað og River Rafting í Skagafirði. Hann fékk svo óvænt það skemmtilega verkefni á leiðinni að laga 1 stk rútu ásamt Þorra og þeim fórst það verkefni vel úr verki HAHA en ekki hvað? Strákarnir létu svo karlangann í BORAT-skýlu margumtalaða OG EKKERT ANNAÐ. Það fannst þeim fyndið þegar þeir voru að skipuleggja, en áttu ekki beint von á að Lalli myndi taka sig til og fara í hana – og ekkert annað – og glenna sig svo framan í þá HAHAHAHAHAHA þá fannst þeim þetta ekki fyndið lengur!!

Þar sem ég var ekki á staðnum get ég nú ekki farið út í “díteils” svo ég segi bara að þeir hafi komið ansi lemstraðir, þreyttir og með harðsperrur heim daginn eftir. Og brosandi út að eyrum! :)

2 dagar….

Á föstudaginn var…

Sunday, September 7th, 2008

.. skutlaði ég Lalla í vinnuna, dagurinn hjá mér var tiltölulega rólegur svo ég var að útrétta svolítið, ætlaði svo að sækja Lallann minn um kl 4 þegar hann væri búinn. Ég fór svo aðeins í Melbæinn eftir að hafa þurft að vesenast á Höfðanum og datt í blaður við hana múttu mína meðan ég var að bíða eftir að kl nálgaðist 4! Allt í einu var kl orðin 4 og ég varð að REYNA að slíta mig frá blaðurklúbbnum í Melbænum. Þegar ég brunaði svo af stað þá var kl orðin rétt rúmlega 4 og ég lúsaðist áfram í umferðinni. Lalli hringdi svo kl ca 10 mín yfir 4 og sagði “JÆJAAAA hvar ert þú eiginlega?” – Ég sagðist nú bara hafa skroppið á Selfoss en væri á leiðinni hihihihii… Leiðrétti mig svo og sagðist vera að keyra framhjá Húsasmiðjunni en ég kæmi eftir MAX 10 mín. Það stóðst. Þegar ég svo kom og hringdi og sagði verðandi eiginmanninum að ég væri komin og biði fyrir aftan hús þá aulaðist hann til að tilkynna mér að honum seinkaði augnablik, gæti ekki slitið sig frá verkefni og hvort það væri ekki laust stæði! Ég kom mér fyrir og dró upp skipulagsbókina og fór að skoða næstu viku og svona bara dúllast eitthvað. Þá verður mér litið upp og sé plastgæs fyrir utan farþegahurðina. HAHAHAHA og hugsaði hvaða krakkar væru að leika sér AHAHAHa hló upphátt og allt. Mér fannst þetta rosa sniðugt. Sá svo annan “krakka” fyrir aftan gæsina í hliðarspeglinum. Horfði svo aðeins betur og þóttist þá þekkja andlitið. STEINUNN MARGRÉT! Hvað er hún að gera þarna!! Lít framfyrir bílinn og þá eru Aníta og Lalli með myndavél og vídjócameru og allir fara að hlæja. Það lá við að ég setti í bakkgír og færi bara HAHAHAHAHA… En ég s.s var rekin út úr bílnum og sett í borat skýluna hans Lalla… utanyfir fötin mín reyndar. Kúrekahattur á höfuðið og gæsin undir hendina. Ég var látin setjast inn í bíl og mér afhentar þrautir meðan ég var skömmuð fyrir að vera svona ægilega sein hihihi.. Ég sem væri aldrei aldrei aldrei sein!

Jæja eftir að hafa hringsólað um Þingholtin, þá var ákveðið að leggja í stæði og stelpan hélt að hún væri jafnvel að vara að þramma niður Laugarveginn með tilheyrandi æslagangi!! En nei ég var dregin inn í húsasund þar sem Kramhúsið blasti við. Ég var neydd til að vera í borat áfram og með kúrekahattinn.. og þarna lærðum við frábæran ABBA-dans. Það var geggjað gaman. Og við vorum flottastar!! Jahh – kennarinn var reyndar sjúklega flott HAHA.. Hún var í bláum samfestingi, með kúlu-krulluhaus, með gerviaugnhár og í silfurlitum skóm. AWESOME!! Spurning hvor hefði unnið tískusýninguna, ég í borat með kúrekahatt, eða hún í þessu!! :D

Eníveis… þegar við vorum orðnar mellufærar í dansinum (sumar fljótari að læra en aðrar..) og búið að taka okkur upp í bak og fyrir á vídjókameru og “filmu” þá þökkuðum við fyrir og fórum. Þá lá leið okkar í Lambaselið þar sem uppádekkað borð beið, ég var sett í almennileg föt (mín eigin) og grillaðir voru hammarar og öl þambaður. Skálað, blaðrað, myndir skoðaðar, skandalasögur af HD ofl ofl ofl… Meiriháttar að sjá allar þessar stelpur samankomnar. TAKK FYRIR MIG STELPUR, þetta var æði :*

Núna eru allt í einu bara 5 dagar til stefnu. Það er ekki laust við að ég fái hnút í magann af og til þegar ég man það. Allur undirbúningur er þó á réttri leið og mér finnst ég vera búin að koma mér ansi vel undan þessu satt best að segja HAHAHA.. Þó þarf maður alltaf að hugsa, samþykkja, kaupa eitthvað sem vantar osfrv. Og nú eru að bresta á hlutir sem hefur ekki verið hægt að gera fyrr. Svo ég gæti mögulega orðið pínu stressuð þegar líður á vikuna!! :) En hjálpin er ómetanleg allstaðar frá. Allir til í að hjálpa við ALLT! Dásamlegt líf.

Ég efast ekkert um að þetta verði meiriháttar dagur í lífi okkar.

Kann einhver að skrautskrifa?