Lalli er lazarus þessa dagana. Með hita, beinverki, hálsbólgu og allan pakkann. Ég var nú að skamma hann fyrir að taka þetta út að sumri.. já sumarið er ekki búið – gærdagurinn gaf það skýrt til kynna!! Þvílíkt góður dagur. En ég vona að drengurinn (verðandi eiginmaðurinn) hristi þetta fljótt af sér. Nenni nú ekki að hafa hann svona lengi, þó þetta hafi orðið til þess að ég hafði hann heima í allt gærkvöld og að öllum líkindum í dag líka
Annars er ég að reyna að nota kjölsogið af síðustu skólahelgi við að vera dugleg að læra. Andinn kom allt í einu yfir mig. Ég finn þó að ég á rosa auðvelt með að detta í TV glápið en er að streitast á móti. Það gekk ágætlega í gærkvöldi, rumpaði af spurningum sem hafa legið á mér, náði ekki alveg að klára en það verður gert í kveld. Einbeitingin er á sveimi yfir mér og ég gríp hana stund og stund. Nota svo markmið eins og í gærkvöldi þar sem ég sagði við sjálfa mig; Ég ætla að klára þessa spurningu og næstu og svo fer ég í sturtu og að sofa. Fór svo í kapp við sjálfa mig og gerði 1-3 spurningar í viðbót!! Missti svo af sturtunni því þvotturinn í vélinni þurfti að komast á snúru. Hihii..
Þetta geri ég líka þegar ég fer að synda og er í stuði, en hausinn stoppar mig. Þá fer ég að hugsa; “Ég syndi 200 m í viðbót og næ þá 400 m”. Þegar ég er að nálgast 400 m þá hugsa ég, “ég get ekki synt 400 – það verður að vera 500″. Þegar ég nálgast 500 m þá hugsa ég með mér að ég eigi nú enn svolítið eftir og því væri ekki svo vitlaust að fara bara 800 m (sem er keppnisgrein og gott að miða við hana). Svona getur þetta haldið áfram jafnvel upp í 1.500 m ef vel viðrar í kollinum á henni Helgu Dröfn! Enn sem komið er hef ég nú ekki farið lengra en það síðan “égmanekkihvenær”.
Undirbúningur gengur vel, þetta er voðalega notalegt allt saman, ekkert stress eða rugl. Efnið í kjólinn komið – YEEEEEESSSSSSSSSS – þvílíkur léttir og þá getur maður haldið áfram. Dreg Lazarus með mér eigi síðar en á laugardag í búðir að útbúa einhverskonar gjafalista. Það er það sem mér finnst erfiðast. Getur fólk ekki bara komið? Þurfa að vera gjafir líka??? En ég veit að ég myndi vilja gefa gjöf! Það er víst það sem fylgir þessu…
Jæja það er greinilega skróp hjá mér núna – kl 8 að morgni – og næsta nudd ekki fyrr en kl 10!! Ég ætla að fleygja mér á bekkinn (gott að hafa svona rúm í vinnunni hehe) og reyna svo að finna mér eitthvað til dundurs þegar ég þoli ekki að liggja útaf lengur!