sem bíða frá miðvikudeginum síðasta. Í dag er sunnudagur. Þvílík árás á slepjuna!
Við hjú vorum að koma af Laugarveginum. Landmannalaugar – Þórsmörk. Ef einhver er að hugsa núna hvort við höfum bæði labbað – þá geturðu gleymt því! Lalli keyrði farangurinn okkar milli skála ásamt Dabba. Ferðin var frábær. Sól alla dagana og stundum hálfskýjað seinnipartinn. Demba um kvöldið í Hrafntinnuskeri en annars bara frábært veður. Geggað heppin með það. Misjafn svefn á nóttunni enda er maður ekki vanur að heyra svona margar mismunandi útgáfur af hrotum og andardráttum á hverri nóttu. Síðasta nóttin var kannski skást, þá var maður að venjast þessu. Þá vaknaði ég “föst” undir súð í Skagfjörðsskála í Langadal. Lalli tók aðeins meira pláss í rúminu og ég komst ekkert!
En ég slapp fljótt úr þessari krísu hehe
Reyni að koma með myndir fljótt – kannski bara strax í kvöld?
Heböb