Archive for June, 2008

Eggjafýla

Sunday, June 29th, 2008

Í gær laugardag fór ég sem “leiðsögumaður” með Dagbjörtu og dönsku ljósmóðurina hennar (Lykke) um suðurlandið. Dagbjört þóttist ekkert þekkja neitt á suðurlandinu og þar var besta spáin svo ég dreif mig bara með. Ekkert annað að gera þegar maður á svona laugardagsfrídag með engin plön! Þetta var bara þrælgaman enda frábærar stelpur á ferð. Var mun betra plan en að sitja inni í sólinni og læra eins og ég var að reyna að telja mér trú um að ég myndi ætla mér að gera þann daginn!

Við skoðuðum nýja hverasvæðið í Hveragerði. Geggjað stór gýgur sem myndaðist og margar minni holur allt í kring. Ótrúlegt alveg! Dagbjört talaði um prumpufýlu (hvað annað!!) og Lykke eins og margir útlendingar sem eggjafýlu :)  Sjá hér  (Lykilorð hægt að fá td á hd @ slepja . com). Stoppuðum svo í Þrastarlundi til að gefa þeirri dönsku “Wikiwakapulsu” (ísl: SS pylsa). Kerið varð á vegi okkar, en hún hafði nú séð það áður á ferð sinni um landið – líklega í gullna hringnum – og svo ákváðum við að kíkja í Sólheima. Ég hafði nú aldrei komið þangað áður en lengi lengi ætlað mér það. Það var því gráupplagt að skella sér þangað í sólinni. Þangað var alveg svakalega gaman að koma, jafnvel enn skemmtilegra en ég bjóst við. Kíktum í Gallerýið þar sem sýning stóð yfir. Málverk, keramikverk og keramik myndir. Hefði verið til í að vera með örlítið fleiri seðla á mér og styrkja þennan listamann. Kíktum svo í búðina þar sem fleiri verk voru til sölu. Tréverk, ofnir löberar, slæður, kerti og svo mætti lengi telja. Og svo má ekki gleyma lífrænt ræktaða grænmetinu.

Eden fékk svo heimsókn frá okkur þar sem Dagbjörtu langaði svo ægilega mikið í Soft Ice á heimleiðinni. Klassískur túristastaður! :)

Þegar heim var komið hófst “undirbúningur” fyrir tónleika kvöldsins. Maður neyddist til að klæða sig vel þó þessi gula léti sjá sig þá var hvass norðangaddur eins og landsmenn vita. Við hjúin hittum gott fólk í Laugardalnum og þvílíkur fjöldi… holy moly! En mesta furða samt hvað var hægt að ramba á fólk. Þið sem við hittum. Takk fyrir síðast :) hinir – það var leiðinlegt að hitta ekki á ykkur! Gengur vonandi næst.

Jæja fyrst það gula lætur ekki sjá sig í dag þá ætla ég að læra svolítið áður en stórfamillían í kóp lætur sjá sig í grilli.

Lítil fröken fædd

Friday, June 27th, 2008

í dag 27. júní kom í heiminn í Eskilstuna, Sverige, lítil dama Gulladóttir og Söndru. Ég var handviss (þrjósk) um að þetta væri strákur – af ýmsum ástæðum! :) En ekkert annað en ágiskun samt. Svo ég er léleg í spádómum hihihihi… Ætli ég grafi ekki þá “iðn” eftir þetta!

Innilega til hamingju með skvísuna. 

Ég hef bara einu sinni verið handviss – og hafði rétt fyrir mér. Það var þegar Kristján brósi fæddist. Svo gat ég ekki meir :) Vissulega bara 50% líkur svo ég hef stundum giskað á rétt. En í þetta eina sinn var ég bara viss, enda ekki farin að efast um fyrstu hugsun á þeim aldri!

Aukavinna

Monday, June 23rd, 2008

uhhhh… hvar gæti maður fengið aukavinnu í sumar? Þá meina ég vinnu sem er helst ekki um helgar. Bara hluta úr degi einhverja daga vikunnar. Td 2-3 morgna í viku og jafnvel fram til kl 14. Dáldið vesen sko hehe – tími nefnilega ekki að missa seinnipartana í nuddinu. En núna yfir sumartímann er örlítið rólegra enda fólk á flakki um landið og heiminn.

Allar hugmyndir vel þegnar :)

Sumarið hafið

Sunday, June 22nd, 2008

Jæja - fyrsta útilegan búin sem þýðir að sumarið í mínum huga er hafið takk fyrir. Loksins. Fórum með tjaldvagn tengdó austur fyrir fjall um helgina á mini-ættarmót hjá föðurfjölskyldunni minni. Rosa gaman. Kristján fékk að gista með okkur í vagninum og mamma, pabbi, hin börnin og bíllinn fóru heim. Árni Hlynur var að keppa í kef og Tómas Snær í útilegu í Viðey. Brjálað að gera hjá stórfjölskyldunni svona stuttu eftir heimkomuna að utan. Dæmigert!

Þetta verður stutt og tilgangslaust í bili – verið sæl að sinni

Seytjándi júní

Tuesday, June 17th, 2008

hæ og hó og hæ og hó og hí…   nú eða; hæ hó jibbí jeijj og jibbí jeiijjjj….

Engin ný blogg ekkert spennandi um að vera. Hér sit ég á þjóðhátíðardegi Íslendinga og les blogg.. fer blogghringinn góða. Búin að lesa helling nýtt hjá Ástu í Odense. Jeijj… Alltaf gaman að fá fullt af nýjum færslum og fréttum. Svo eru aðrar síður þar sem nægir að fara inn á 2x á ári. Alveg spurning um að fara að taka til hér í linkasafninu til hliðar. Var þó að bæta inn fullt af börnum sem ég átti víst alltaf eftir að setja inn. Gleymdi því alltaf. Flest börnin eru þó læst inni á síðunum sínum!

Dagurinn í dag: -fer líklega í hangs í góða veðrinu. -hugsanlega bóna ég bílinn. -hver veit nema maður kíki í bæinn í sínu fínasta pússi! -upplagt væri að fara að hjóla eða ganga, hita upp fyrir Laugavegsgönguna í júlí. -ég er að reyna að passa mig á að fara ekki í Bónus í dag(ég fer samt ekki í bónus daglega til að leiðrétta þann misskilning strax), mér finnst skandall að allar bónusverslanir séu opnar í dag. Ef þær eru allar opnar, hvað er þá ekki opið? Hefði ég kannski átt að nudda bara í dag? Af hverju fær þetta aumingjans fólk ekki frí? er það kannski af því að það er flest allt útlendingar og “ætti því ekki” að fagna “okkar” þjóðhátíðardegi? Hvað gengur fólki til með þetta? En ég þyrfti nú eiginlega að fara í bónus í dag…

Brúðkaupsundirbúningur er að malla í hausunum á okkur. Lítið gerist en þó eitt og annað smálegt sem maður hefur verið að ákveða og jafnvel kaupa. Say no more. Dagsetning er nánast ákveðin, en verður ekki gefin upp fyrr en allt er klárt með það.

Jæja best að klæða sig upp og sjá hvort veðrið sé glugga eða alvöru gott. Adios amigos