Allir sem þekkja Lalla að einhverju viti þekkja hann svona:
HRÚTUR 21. mars – 19. apríl
Hvers vegna að leggja fyrir? Það er miklu skemmtilegra að eyða peningunum! Þú ert í stuði til að trúa á eigin ríkidæmi og heldur áfram að eyða.
Ef einhver þekkir mig rosalega vel líka veit hann að þetta er svolítið lýsandi fyrir mig:
VOG 23. september – 22. október
Fáir skilja hvað fyrir þér vakir. Þótt fólk bjóðist til að aðstoða þig, þá ertu sá eini sem getur framkvæmt hugmyndir þínar. Ekki reyna samt að vera fullkominn.
HAHAHAHAHAHAHAHAHA ég fékk hláturskast þegar ég las þetta í morgun….
Nú er afmælismánuður að detta í hlað. Raunar allur “hrúts”mánuðurinn. 28. mars áttu afi Kalli afmæli og Anna Katrín, 30. mars áttu Óskar og Dabbi afmæli, Guðrún Anna 31. mars, 4. apríl mor, 5. apríl Auðbjörg, Lalli 10. apríl, Valur 13. apríl, Trausti 15. apríl, Kristinn 17. apríl, pabbi (50 ára!!) 20. apríl. Þá eru hrútarnir upptaldir(þó pabbi sé á mörkunum-samkv mbl er hann Naut reyndar). Svo eru það nautin í apríl, Hrönn 23., Kata Jóns 24. og Róbert Alvar 28. apríl
Ég held að ég hljóti að vera að gleyma einhverjum… Anyone?
Æði. Farin að vinna fyrir afmælisgjöfum – ADIOS..