Archive for March, 2008

Vælið alltaf í manni

Monday, March 31st, 2008

Ég ætla samt að halda áfram að væla!

Veit einhver hvar er hægt að fá viljastyrk í flösku? Mig vantar dass af viljastyrk til að sparka í rassgatið á sjálfri mér :)

Snemma að sofa

Monday, March 31st, 2008

í framhaldi af síðustu færslu vill ég benda á að ég fór snemma að sofa í gær – ótrúlega snemma. Slökkti á TV þegar Dexter var að byrja og skreið upp í rúm. Var eitthvað svo sybbin eftir annars ótrúlega nærandi og langa sundferð í sólinni. Very nice. Kannski bara leti líka hehehe.. Samt var ég löt og sybbin í morgun. Jafn löt og sybbin og vanalega! Og þar hafiði það

Farin að sinna gjaldkerastörfum hér í félaginu. Best að hætta þessu hangsi og gera eitthvað!

Af hverju?

Wednesday, March 26th, 2008

… fer maður alltaf of seint að sofa. Núna er kl 23:20 og ég er búin að vera að velta fyrir mér of lengi að drífa mig í bælið. Ég er enn ekki farin.

ýmislegt í gangi framundan hjá okkur hjúum. Samt ekkert stórkostlegt. Lárus jeppakarl er svona að fikta í Lill´Cruser og undirbúa hann undir meiriháttar aðgerð! Jebb nýjir fætur eru ekkert smá mál!!

Vorið kemur á endanum. Þó það sé sjúklega kalt þessa dagana. Meiraðsegja ég finn það! Þá er kalt. Jafnvel þó mælirinn segi annað.

Skóli, vinna og fleira þvælist fyrir frítímanum að vanda. Páskarnir fóru þó ágætlega þegar tekið er tillit til afslöppunar og afkasta (andstæður? nei nei) Ferming, heimsóknir, jafnvel út á land, slökun, göngutúrar, hangs, ofl. Þó komst ég ekki yfir helminginn af því sem var á “plani” Einfaldlega dugðu þessir frídagar ekki til alls. Ég lærði EKKERT fyrr en á mánudagskvöld, smá! Svo heimsótti ég EKKI alla sem ég ætlaði að heimsækja, ég tók EKKI raindrop meðferðirnar sem ég stefndi á, ég þreif EKKI íbúðina – sem ber þess enn merki…. og svo mætti lengi lengi telja. Ég sem sagt setti mér of mikið fyrir en ég er sátt við “fríið”. Ég setti mér ýmislegt fyrir svo ég gæti valið og tekið það sem var allra mest aðkallandi og flæðið leyfði. Spilaði það eftir getu, orku, tíma og veðri. Það sem varð útundan verður að bæta síðar. Og hana nú. ´

Ég er farin í bælið

Drengur fermdur og drengur fæddur

Thursday, March 20th, 2008

Þá er Árni Hlynur fermdur. Flott athöfn, góð veisla. Veislan hófst kl 14 og á sama tíma og gestirnir streymdu inn (14:10) þá eignuðust Siggi og Berglind Rut “lítinn” dreng. Hvorki meira né minna en 18 merkur og 52 cm. Hahh ég vissi að þetta yrði strákur. Ég varð alveg sérstaklega þrjósk með að þetta hlyti að vera strákur þegar ég heyrði hvað Siggi og Steinunn systir hans voru þrjósk með að þetta væri stelpa heheehhee.. Kominn tími á dreng hjá þeim. Þó Katrín vildi bara aðra systur. En ekkert slæmt að fá bróður sagði hún, en þá verður bara að koma önnur systir seinna!! Sjáum til hvað foreldrarnir gera með það… hihihi..

Innilega til hamingju með drenginn. Þið eruð hálfnuð með minn systkinafjölda – ekki svo mikið eftir til að ná því hihihiihihi….

p.s ég er búin að setja myndir inn á galleryið undir “Hátíðir”

Er mjólk góð?

Monday, March 17th, 2008

Ég veit það ekki … ég drekk ekki mjólk! segja horaðar og illa útlítandi hengilmænur og stara daufum, líflausum augum framan í myndavélina í auglýsingaherferð MS. Þar er fullyrt að mjólk sé rík af allskyns vítamínum og bætiefnum. Skilaboðin eru þessi: Ef þú neytir ekki mjólkur þá verður þú vesalingur.Samt er það nú svo, að heimalningar sem aldir eru á mjólk úr fernu, deyja innan fárra vikna fái þeir ekkert annað. Gerilsneydd og fitusprengd mjólk er með öðrum orðum enganveginn sambærileg við þá mjólk sem kemur beint af skepnunni. Sú síðarnefnda er vitanlega lífsnauðsyn öllu ungviði – sú fyrrnefnda er það alls ekki.

Hið “ríka” vítamín-innihald unninnar mjólkur, hvert er það? Á nýmjólkurfernunni í ísskápnum mínum er það gefið upp: B-1 og B-2 vítamín, kalk og fosfór (fyrir svo utan kolvetni og prótein). Ekkert annað. Aðrar mjólkurvörur geta haft A og/eða D vítamín, að sagt er. En varla getur það talist “ríkt” vítamín innihald.

Mjólkuróþol er vaxandi vandamál – sem stafar líklega af allt of mikilli mjólkurneyslu okkar Vesturlandabúa. Í Asíulöndum þekkist ekki mjólkurneysla meðal fullorðinna – hún er vestrænt fyrirbæri. Samt er beinþynning mun alvarlegra vandamál hér á Vesturlöndum heldur en á austrænum slóðum. Nýlegar rannsóknir benda til þess að mjólk næri krabbameinsfrumur.

Er þá hægt að segja að mjólk sé góð?

Kannski getur mjólk verið góð í hófi - en hún hentar alls ekki öllum. Fyrir suma er hún beinlínis heilsuspillandi. Ég efast því satt að segja um að þessi markaðssetning mjólkur sem hollustuvöru fái staðist ströngustu siðakröfur um framsetningu auglýsinga.

Auglýsingin er í besta falli stórkostlegt ofmat á mjólk sem hollustuvöru. Í versta falli eru hún aum blekking sett fram í gróðaskyni.

Þetta er tekið af bloggi Ólínu Þorvarðardóttur sjá hér og ég er henni hjartanlega þakklát að koma með þetta svona málefnalega :)   Ég er henni í flestu ef ekki öllu sammála í þessari grein. Bing bang bú..