Archive for December, 2007

Seðlabankastjóri hættir

Monday, December 31st, 2007

Lárus lætur af störfum í Seðlabanka Íslands… NÚNA. Kl er 12 og hann er að ganga út. Ekki á morgun heldur hinn heldur hann á nýja vinnustaðinn, Valitor, þar sem hann mun (vonandi) eiga góðan, ánægjulegan og langan starfsframa.

Til hamingju Lárus.

Áramótin nálgast. Ég ætla að reyna að vera rosalega dugleg að læra í dag svo ég geti sagst hafa verið rosalega dugleg að læra 2007. Amk einn dag! :)    Í gærkvöldi var ég orðin voða þreytt eins og yfirleitt þegar kl er orðin meira en 22:00. Rúmlega miðnætti fórum við gömlu í bælið og ætluðum nú að snúa bökum saman og fara að hrjóta. Það endaði með því að eftir bull, þvaður og blaður gátum við loksins sofnað þegar kl var að ganga hálf 2. Lalli í vinnu kl 9 og ég ætlaði í ÁTVR í tilefni dagsins. Ætlaði að vera mætt á slaginu 9 svo ég þyrfti ekki að standa í margra kílómetra röð. Frökenin vaknaði kl 7 og beið eftir að klukkan hringdi, sparkaði karli framúr og kreisti augun til að geta sofið ögn lengur. Það tókst eftir dúk og disk og ég náði nokkrum mínútum í viðbót. Fór í ÁTVR og lenti í kílómetralangri röð! VEI.

Þetta er dagurinn til að sofa lítið, en ekki ósennilegt að þetta sé merki um að maður hafi náð upp svefni yfir jólin, enda höfum við sofið talsvert…  Vonandi verður maður glaður eitthvað fram á nótt…. þrauka Helga Dröfn þrauka…

Gleðilegt ár kæru sveinar og meyjar

Californiacation

Sunday, December 30th, 2007

…. búið! Hvað eigum við að gera? Jæja við höfum enn House, thank god!

Langjökull…

Sunday, December 30th, 2007

Bara því hingað hafa borist símtöl og áhyggjur af því hvort séra Lárus sé á Langjökli að bíða björgunarsveitarmanna… Nóbb hann er heill á húfi í Reykjavíkinni :) Hann er nógu skynsamur til að drífa sig heim nógu tímanlega fyrir veðrið. Segir meirað segja að hann myndi ALDREI láta björgunarsveitina sækja sig… en við skulum spara stóru orðin. Maður veit víst aldrei HEHEHE..

Gleðilegt óveður kæru vinir og farið varlega.

Næsta bók!

Saturday, December 29th, 2007

Harðskafi búin, Þúsund bjartar sólir núna. Var í Afganistan nánar tiltekið Kabúl í dag. Þar leið tíminn hraðar en hér á klakanum í nútímanum, bókin hleypur á árum.. Góð bók annars. Slær ekki Flugdrekahlauparanum við en kemst nálægt því. Góðar og flottar lýsingar sem gefa manni ansi skýra mynd af staðarháttum og menningu. Ég er hamingjusöm kona að búa á óveðurslandinu Íslandi. Takk fyrir!

Fátt að frétta. Lalli fór á Langjökul í dag. Ég var heima. Hafði hugsað mér að skella mér á Hellu í útskriftarveislu en hætti við vegna veðurspár. Hefði svo alveg getað farið….. Jæja maður veit það ekki fyrirfram. Kabúl var fín….

2008 á næsta leiti. Magnað! Þegar ég var ekki svo mörgum árum yngri þá fannst mér 2010 svo fjarlægt. Nú eru það 2 ár!!

Hefðbundinn dagur?

Thursday, December 27th, 2007

Jæja þá er maður kominn til vinnu aftur. Síðustu 2 dagarnir á þessu ári fyrir mig amk. Í dag og á morgun. Dagarnir eru þó ekki með hefðbundnu móti þar sem ég er að fá fullt af “nýju fólki”. Nýtt fólk er fólk sem kemur ekki alltaf vikulega/hálfsmánaðarlega og á sama tímanum heldur kemur það kannski 1x -2x á ári. Og svo eru einhverjir sem koma reglulega en á nýjum tímum – grínlaust það er ótrúlega skrítið þegar maður er fastur í rútínu!

Hrökk upp við klukkuna kl 6:50 í morgun… jiminn hvað það var snemmt. Ég reyndar viðurkenni að ég vaknaði eins og skot því mér brá svo! En þreytan sígur á mann.. verður gaman að sjá hvort ég verði komin með svefngalsa seinnipartinn hehehehe…

Harðskafi er að klárast. Var ansi dugleg að lesa í gærmorgun/dag. Fórum svo í jólaboð til tengdó seinnipart og þá þurfti ég að kveðja Joe Boxer og Arnald. Þegar heim kom hlunkaðist ég fyrir framan TV og bókhald.. gaman!! Held áfram í kvöld með Arnald og Joe fylgir sko með!