Archive for November, 2007

Jólagjöfin í ár….

Tuesday, November 27th, 2007

Típískur dagur í dag. Byrjaði kl 8 í morgun. Fékk reyndar smá pásu í dag sem ég notaði til að baða mig og synti í leiðinni. Alveg heila 500 m. Já kraftur í manni!!!! Vinnudegi lauk kl 18 en kl 19 ætluðum við nokkrar úr skólanum að hittast og sparka í rassinn hver á annarri. Fyrsti svona nemenda-náms-les-hringurinn sem ég mæti í. Og löngu kominn tími á það. En nóg um það. Það gekk vel en ég var orðin sybbin þegar því var lokið og langaði bara heim í sófann. Keyri alltaf Sæbrautina heim og þegar ég fer yfir ljósin framhjá Shell stöðinni við endann á Langholtsveginum sé ég að ég fæ bara flassið í augun :( helv umferðarmyndavél :( ég á ca 75-80 þar sem er 60 km/klst leyfilegt.. ohh geðveikt svekkjandi. Ég tek það fram að ég er mjög hlynnt auknu umferðareftirliti, hertari aðgerðum til að stöðva þá sem keyra of hratt, undir áhrifum, tala í símann og það allt en óboy hvað þetta er svekkjandi þegar maður lendir í þessu. Ég er líka mjög samviskusöm alltaf með að halda mig ekki of mikið yfir hámarkshraðanum,  gefa stefnuljós, vera tillitsöm og brosa :)   Á þessari mynd sem var tekin af mér (á fleygiferð) gat ég ekki einu sinni brosað. Var orðin hálf lúin eftir daginn…

Svo ég ætti að fá í jólagjöf sekt nú eða ég byrja nýja árið á að borga fyrir þetta glapræði. Hér með fer ég að ráðum ALLRA skilta í umferðinni. Keyri óþolandi hægt og verð ENN samviskusamari! Nú eða ég hætti að keyra og tek strætó.. (stundum amk)

Góða nótt ég vona að ég jafni mig á þessu fyrir jól.

Jólaskapið fundið?

Sunday, November 25th, 2007

Ég held að ég sé búin að finna jólaskapið :) Í morgun byrjaði að snjóa, ég fann hlýju jólasveinahúfuna mína og fór að raula jólalög….

… á milli þess sem ég raulaði “can´t walk away…” Við hjúin raulum þetta ekki að ástæðulausu þessa dagana því í gær, laugardagskvöld, fórum við í brúðkaup. Hebbi var sjálfur þar og í veislunni eftir ræðuhöld og brandara þá skellti hann sér upp á svið og sagði að fyrsta lagið væri tileinkað brúðgumanum og sagði því “Ingi you can´t walk away” og svo söng hann. Lárus hafði verið ákaflega neikvæður fyrir þetta brúðkaup, fannst hann ekki eiga heima þarna þar sem hann þekkti fólkið lítið…. en þarna fór hann að dansa hehehehehe og dró kellu sína út á gólfið :) Við tjúttuðum með Hebba nokkur lög og héldum svo heim á leið :)   Frábært kvöld.

Hálpuðum Lalla bró að flytja í dag. Allir að flytja :)   Annars fátt í fréttum.

Myndir komnar á gallery slepju

Friday, November 23rd, 2007

http://www.slepja.com/gallery/album187?page=1

Frá Hveravallaferðinni fyrir áhugasama. Einnig sá ég að sumarfríis myndirnar okkar hafa ekki fengið ferðasöguna svo ég hef verkefni um helgina. (nei ég á ekki heila helgi frí!! :) ) Sjáum til hvenær ég hef mig í það….

Góða helgi

Varahlutir á Skagaströnd

Thursday, November 22nd, 2007

Á laugardagsmorgun 17. nóv, fórum við af stað ásamt Þorra, Hófí og Smára norður á Skagaströnd að sækja varahluti sem Lárus VARÐ að eignast. Þetta var kostatilboð svo við ákváðum að gera ferð úr þessu. Við vorum nestuð fyrir mánuð og með kerruna í eftirdragi héldum við af stað í hífandi roki norður. Þegar á Skagaströnd var komið lentum við í blindbyl, skítakulda og sköflum (veturkonungur hitti norðurland). Við ákváðum að sjá hvort við kæmumst á Hveravelli því þar áttum við pantaða gistingu um nóttina. Leiðin þangað var greið enda vindurinn í bakið og snjórinn festi ekkert þarna uppi á hálendi.

Við komum á Hveravelli um 5 leitið og á móti okkur tók ísjökulkaldur skáli.. á þessu háhitasvæði!!! Vorum frekar svekkt og hafist var handa við að reyna að koma hita á kofann. Fljótlega skall á sólsetur og svartamyrkur. Kofinn hitnaði örlítið og mjög hægt – við kveiktum á kertum, hituðum vatn á fínu rafmagnseldavélahellunum og fengum okkur heitt kakó og te. Átum, sátum og spiluðum, fórum ótrúlega snemma í bælið og sváfum merkilega lengi. Þó með reglulegum vöknunum vegna veðurs, kulda og bakverkja (gamla fólkið)! Morguninn 18. nóv hófst með fallegri sólaruppkomu og meiriháttar veðri. Þó var mjög kalt!  Ákváðum að sjá hvort við kæmumst að eða uppá Langjökul upp Oddnýjarhnjúk. Það var lítið mál og endaði með því að við fórum ekki Kjöl heim heldur keyrðum við þvert yfir Langjökul og komum niður í Jaka og Húsafell. Með kerruna í eftirdragi!!!! :) Ekki víst að margir hafi farið með kerru þvert yfir Langjökul.

Þegar við komum niður í Jaka um kvöldmatarleitið var sólsetur og VÁÁÁÁ litadýrðin í háloftunum. Sáum náttúrulega allan himininn ósnortinn frá jökli og Váááá er eina “orðið” sem maður hefur yfir þetta.

Dásamlegt

Svekkelsi – eða hissa?

Thursday, November 22nd, 2007

ALDREI SLÍKU VANT, já aldrei slíku vant er jólastemmarinn eitthvað ekki að ná til mín. Kannski vantar bara snjóinn, en það hefur svo sem ekki verið snjór í okt, nóv og des síðustu ár. Kannski vantaði Ikea auglýsingarnar í okt – en ég hef nú ekki hlustað svo mikið á TV og útvarp í gegnum tíðina að ég ætti að láta það hafa áhrif…  Eða kannki bregðast krosstré sem önnur tré!!

Ég er oft sama sem búin með allar jólagjafir á þessum tíma. Núna er ég ekki hálfnuð og des á næsta leiti! Ég þarf að fara að rífa mig upp og gera eitthvað!! Þetta er ekki hægt. Ég enda líklega eins og hitt stressaða fólkið :( Á allt eftir korter í jól!

Ég sé kostinn við að hafa tölvuna í vinnunni á daginn. Á kvöldin þá tek ég hana oft ekki með heim og ef hún er með heima þá nenni ég ekkert að vera í henni. Jafnvel þó ég komist sjaldnast í að skoða heimasíður, blogg og annað á daginn þá er tölvan bara OFF á kvöldin. Sem er næs. Ég hef því lítið sem ekkert skoðað heimasíður barnanna, bloggin ykkar og allt hitt, svo ef þið eruð hissa á að ég sé “hætt að commenta” þá er það ekki það að ég sé hætt að skoða – ég geri það kannski bara ekki alveg jafn oft og áður! Það gæti þó allt breyst aftur til hins “betra” :)   Það fer yfirleitt mesti tíminn í að lesa og svara tölvupóstum – já maður er orðinn svo mikilvægur – og stundum gef ég mér tíma til að skoða MBL.IS. Annars hefur mér fundist talsverður bloggleiði yfir fólki. Lítið að gerast víða. En maður gæti farið á mis við eitthvað annað í staðinn.

Jæja farin að leita að jólaskapinu…