Archive for October, 2007

Rosalegur dagur

Saturday, October 27th, 2007

Gleðilegan vetur kæru vinir – í dag er fyrsti vetrardagur ef það hefur farið fram hjá einhverjum. Við hér fyrir ofan snjólínu (þá tala ég bara fyrir okkur Lárus) værum alveg til í rosalega harðan vetur :) Harðan vetur með miklum snjó – já rosalega miklum. Væri til í að geta gengið beint út af svölunum og út á snjóskafl :)  Það væri geðveikt. En okey – borin von!

Dagurinn í dag er frekar stór. Þó nokkrar útskriftir úr HÍ – eins og kom fram í fréttum. Vetrargleði FÍHN (félag ísl heilsunuddara), Halldóra er með grímuballspartý í tilefni af útskriftinni sinni, Anna Margrét frænka var með smá boð og Dísa hans Dabba með partý.

Þetta átti að vera eitthvað rosalegt blogg….. en ég man EKKERT hvað átti að standa í því – svo ég læt þetta duga.

Vonandi geriði eitthvað skemmtilegt í tilefni þessa fyrsta vetrardags þessa veturs :)

Væmin þakkarfærsla

Tuesday, October 23rd, 2007

Vegna undanfarinna færslna og commenta þá langar mig að þakka ykkur kæru vinir, kunningjar og umfram allt ættingjar, fyrir skilning gagnvart mér og þá náttúrulega á ég við gagnvart td náminu mínu sem er frekar framandi hehehe.. Ég veit það að að sjálfsögðu finnst fólki eðlilegt að styðja sitt fólk og jafnvel vera opið fyrir þeirra hugmyndum. En ég verð að segja að miðað við fólkið sem raðast í kringum mig og ég vel í kringum mig þá er dáldið fyndið að ég skuli vera að “ströggla” í þessu. Synda á móti straumnum. Það er nefnilega alveg merkilega fyndið hvað það eru margir læknanemar í kringum mig, sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfræðinemar og jafnvel vísindamenn! Og í kúnnahópnum mínum, fólkið sem ég tala mikið við er oft fólk í þessum stéttum líka HAHAHA..  Og jafnvel þó þið/”þetta fólk” séuð efasemdafólk um náttúruvísindi og finnist margt af þessu eða jafnvel allt vera tóm þvæla þá dáist ég að því að þið nennið að hlusta á þetta “raus” í mér. Reyndar er ég nú ekki þannig manneskja að ég sé endilega að þröngva upp á fólk hlutum sem ég “aðhyllist” eða trúi á en ég man eftir samræðum við t.d Ástu – frænku Lalla/læknanema og fleiri þar sem ég hef alveg opnað mig með þessi mál og fengið skemmtileg og góð viðbrögð til baka.

Takk þið öll fyrir að vera yndislegt fólk og góðir vinir

Champinn

Saturday, October 20th, 2007

Ég kíkti örstutt á Championsfield til Anítu og Vals áðan. Malen Ósk lét í sér heyra – aldrei slíku vant – væll í henni greyinu. Við vorum að “grínast” með það að annað hvort væri þetta vegna þess að þau hjónin ætluðu út að borða síðar um kvöldið og prinsessan ætti að vera í smá pössun á meðan. Eða þá að ÉG væri orsökin. Því hún lætur aldrei í sér heyra. Lítið sem ekkert amk. Jæja, þar sem ég ætlaði nú bara að stoppa stutt þá ákvað ég að standa við það og leyfa þeim að dekra við litlu skvísuna sína. Haldiði ekki að stelpan hafi hætt um leið og ég lokaði hurðinni! Aníta hringdi í mig skellihlægjandi og sagði að hún væri bara farin að hjala..

Manni getur nú sárnað ;)

grænar geimverur?

Sunday, October 14th, 2007

Vog: Jimmy Carter, sem einnig er Vog, var forseti sem sagðist hafa séð fljúgandi furðuhlut. Þú ert fulltrúi fyrir þennan anda að vera opinn fyrir öllu. 

Mbl.is styður mig greinilega í þessum “andans” málum. Ég veit ekki með geimverur. En hver veit?

Af hverju ekki?

Friday, October 12th, 2007

Hvers vegna getur Reykjavíkurborg – nú eða borgarbúar öllu heldur, ekki fundið sér borgarstjóra sem situr út tímabilið. Hvað er að hjá okkur? Við skiptum um borgarstjóra eins og tröllskessa um nærbuxur. Þvílík della. Hvert tímabil er nú ekki svo langt að þeir eigi ekki að geta setið þar stóráfallalaust. Ég á ekki til orð yfir þessum #$%&

Ég tek það reyndar fram að ég fyldist ekkert með þessu rugli öllu, sá bara allt í einu bregða fyrir á mbl eitthvað um að einhver annar borgarstjóri hefði verið valinn… Man jú reyndar eftir að hafa heyrt af einhverjum umræðum að hann ætti að segja af sér… Sumt fólk