Archive for September, 2007

Fyrsta jólagjöfin í hús

Sunday, September 30th, 2007

Jeeeeeeeessssssssssss ég náði fyrstu jólagjöfinni í september og búin að ákveða aðra – nokkurnvegin. 30. sept HAHAHA rétt slapp í sept :) Alltaf gaman að því.

Ég sit hérna við borðstofuborðið heima og horfi út. Það er svakalega feitur krakki sem greinilega býr hérna einhverstaðar. Þetta er strákur ca 6-7 ára á að giska, hann er rosalega mikið úti, hleypur, hjólar og leikur við krakkana. En hann er svo skelfilega leiðinlegur að ég er viss um að foreldrarnir eru rosalega fegnir að vera lausir við hann og foreldrar krakkanna hérna í nágrenninu hljóta að vera rosa fegnir hvað þau eru mikið úti krakkarnir. Hann er alltaf með hávaða, öskrandi aftur og aftur, ef einhver hlær að honum þá gerir hann aftur og meira og hærra.. okey þetta er barn, en ekkert hinna barnanna gerir þetta. Hann er alltaf að gera eitthvað sem ögrar, hann veit að hann má ekki, eitthvað sem gæti auðveldlega slasað einhvern og helst eyðilagt í leiðinni. Þá er ég viss um að þegar eitthvað svoleiðis gerist þá bendir hann á aðra og segir “ég gerði þetta ekki – þetta var hans hugmynd”

Róleg helgi heimavið..

Sunday, September 30th, 2007

Já – loksins, loksins, loksins.

Skírn í gær; Valsdóttir fékk nafnið Malen Ósk – fer henni vel falleg stelpa með fallegt nafn. Að öðru leiti er bara heimavera hjá mér þ.e.a.s. Lárus vinnur þegar ég er í fríi…. er það ekki típískt? Fastur í breytingum niðrí Seðlabanka. Já stjórinn þarf að vera til staðar til að skipa fyrir HEHEHEHE… e

Þokkalegur sunnudagur í mér í dag. Kl 12:40 og ég er í náttbuxum og ljót, með gúmmíhanska og tusku á lofti, og þvottavél í gangi. Jahh sveii…

Superbad var súperBAD

Saturday, September 29th, 2007

Mæli ekki með henni – alls ekki borga 900 kr fyrir hana í bíó.. nema þér finnist gaman að heyra “fuck – dick - fuck – dick dick dick… fuck” og nánast ekkert annað fyrir hlé.. Eftir hlé var pínu skárra! Ég fröken forvitin var næstum farin út í hléi. En forvitnin – eða heimskan hehe varð til þess að ég sat áfram. Leiðist svo svona lið – eins og feiti gaurinn í myndinni – sem talar ekki eins og venjulegt fólk heldur hrópar hann alltaf allt sem hann segir. Jaðrar við að hann öskri. Óháð því hvort þetta átti að vera svona eða ekki. Það komu atriði sem voru skondin en heildarmyndin er ekki nógu góð :(

Astrópía var hinsvegar góð.. mæli með henni. Kom mjög skemmtilega á óvart. Veðramót kannski á morgun. :)    Já við fórum í bíó líklega fyrir áramót síðast, sáum þá Mýrina. En nú ætla ég að ná 3 á einni viku HHHAHAHAHAA ýmist í ökkla eða eyra.

Vogin

Friday, September 28th, 2007

Stjörnuspá Moggans segir þetta um mig í dag:

Vog: Þú lifir í heimi möguleikanna. Þú sérð þrisvar sinnum fleiri valmöguleika en aðrir gera. Það tekur þig því lengur að gera upp hug þinn. Ekki flýta þér. ‘

Það hlaut að vera – ég get ekkert að þessu gert :)

Forfalladagurinn mikli

Tuesday, September 25th, 2007

Annar dagur í annarri viku heilsunuddarans ætlar að vera frekar fúll. 3 forföll af 8 nuddum er ekki gott!! En þá verður maður bara að nota tímann og lesa og læra fyrir skólann, ekki satt? Jú ég held það

Í gær sat ég og skrifaði blogg – sem betur fer ekkert ógurlega langt. En það virðist hafa farið fyrir ofan garð og neðan. Spurning hvort ég hafi gleymt að ýta á “publish” og ýtt á sign out í staðinn… ég nennti amk ekki að skrifa það aftur, þó það hafi verið frekar stutt.

Ég er sem sagt orðin nettengd í vinnunni. Svo nú er von á 2 tómlegum bloggum á dag, ef tími gefst til þ.e.a.s. Ég er líka nokkuð viss um að kvöldhangsið á netinu fari minnkandi – ég bind miklar vonir við það.