Jæja – fyrsti skóladagurinn var ekki svo slæmur
eiginlega var hann bara mikið betri en ég var farin að halda að hann yrði. Farida Sharan – skólastýran frá USA er bara alveg ferlega afslöppuð og hlý. Alltaf hlæjandi. 65 ára kella.
Við vorum bara að spjalla, kynnast og sjá afrakstur skólastarfsins hennar í gegnum tíðina. Fengum svo 3 bækur og þykka möppu. Ég hef nóg að lesa í lithimnufræðum fram yfir jól!! held ég þurfi ekki bækur þessi jólin – ég sem er alltaf að biðja um bækur HAHAHA fljótt skipast veður í lofti. Jú ætli það verði nú ekki bara gaman að lesa eitthvað annað en þessar þrjár í lithimnufræðum/iridology.
Jæja þið þurfið að fara að passa ykkur þegar ég fer að stara í augun á ykkur og lesa eins og opna bók! (jeahh right)
Skóli á morgun og Brullup Þorbjargar og Gumma um kveldið. Sjáumst síðar