Archive for July, 2007

Dimma

Sunday, July 29th, 2007

Það er farið að dimma talsvert úti á kvöldin og nóttunni – mmm ég hlakka til að geta farið að kveikja á kertum.

Ég er búin með eina skólabók, man ekki hvort ég var búin að skrifa það hérna. Og búin að panta fleiri á netinu – víhaaa… ein alveg komin á blússandi siglingu í enskunni og lestrinum. Hr. Orðabók (Lalli) er þó nauðsynlegur áfram! Vonandi hættir hann ekki að hlusta á mig og nenna þessu hehehehe… þá er eins gott að ég komi mér upp netaðgangi á orðabók.is.   Já ég er svo í beinu framhaldi af lestrinum á þessari skólabók að fara að hefja Self healing hluta skólans. Ég er aðeins byrjuð en ekki á meðferðinni sjálfri. Skólinn byrjar svo helgina 31.ág – 2. sept. Segi betur frá þeirri stóru helgi síðar.

Fyrsta vinnuvikan eftir frí á morgun, mánudag – kvíði dáldið fyrir því að vakna og vekja Hr. Orðabók…. úff.. hehehehe.  Verð líklega ekki skemmtileg á húsfundinum annað kvöld, geyspandi og annars hugar! Jæja sjáum til.

Símasamband og útvarp

Saturday, July 28th, 2007

Í sumarfríinu okkar og á ferðalaginu þá komumst við að því að það er ekki bara símasamband sem er lélegt um landið. Það var algjört happa glappa hvort við heyrðum einhverjar útvarpssendingar yfir höfuð. Nema þá eitthvað svo truflað og óáhlustandi að það var ómögulegt að heyra hvort það væri verið að spila lag eða tala. Skrítnast fannst mér þó að komast að því að við auðveldast var að heyra í Lindinni 105.1, það hélt ég ekki að væri mikilvægara en að heyra Rás 1 eða 2 eða eitthvað sem sendir þá út almannavarnir og aðrar stórfréttir! Lindin náðist ansi víða verð ég að segja.

Komin heim

Thursday, July 26th, 2007

Hæ þið öll – dyggu og kæru lesendur!!!

Við erum komin heim og nú getiði farið að lesa ALLAR færslurnar sem berast. Við keyrðum af stað föstudaginn 13. og gistum á Klaustri eina nótt í fína tjaldinu okkar. Pökkuðum saman fyrir hádegi og skoðuðum Laka og Lakagíga. Meiriháttar svæði að skoða. Myndir munu berast um leið og hr. tölvufræðingur er búinn að laga galleryið okkar. Þessi útúrdúr okkar var svakalega langur og vorum við því ekki komin í bústaðinn fyrr en um miðnætti. Það var allt í lagi því við gátum sofið eins lengi og okkur langaði.

Dagarnir okkar voru vel nýttir eins og okkur einum er lagið. Firðirnir þræddir frá Breiðdalsvík og að Vopnafirði. Þar með taldir Loðmundarfjörður og Mjóifjörður sem eru nú ekki beint í alfaraleið. Kárahnjúkar, Kverkfjöll og síðasta nóttin á Akureyri. Nenni ekki að fara í nánari ferðalýsingu og því verðiði að koma í heimsókn til að fá meiri upplýsingar :) Velkomin bara anytime. Ferðin var sem sagt æðisleg, mikið sofið (einum of), lesið og haft það nice. Gott veður og gott frí.

Annars voru Sólrún og Trausti að eignast son. Annað barnið þeirra. Til hamingju kæru hjón.

Árni Hlynur litli bró er byrjaður að blogga aftur, þeir sem hafa áhuga geta kíkt – linkurinn er hérna hægra megin.

Bætti líka við linknum að síðunni hennar Valsdóttur og Anítu. Áætluð koma hennar er 1. ágúst. Svo við bíðum spennt. Dóttir þeirra og sonur Sólrúnar og Trausta hljóta að verða kærustupar. Með svona stuttu millibili c”,)

Meira síðar HD

Ungamamma og 18 barna faðir í Álfheimum

Saturday, July 7th, 2007

svona næstum því!! Við erum hérna með krakkana þessa helgina. Frá 7 ára og upp í 18 ára. Þetta er nú gott mál þar sem þetta gengur orðið sjálfala. Fórum í sund í Borgarnesi – brjálað stuð. Hittum óvænt Dabba og Aðalheiði. Þau eru að hefja hringferðalagið sitt og gistu í Húsafelli og böðuðu sig í Borgarnesi – akkúrat á sama tíma og við :) Ekki leiðinlegt.

Fátt að frétta að vanda. Maður er jafn hlessa og landinn með veðrið. Þó verð ég að segja að ég er bara dáldið hress með að það séu dropar að falla úr lofti. Vonandi verður það ekki lengi þó. Bara rétt til að vökva gróðurinn og okkur með.

Ég er að fara í 3 ára nám í haust. Rosalega spennandi. The School of Natural Medicin in Iceland – SNMÍ. Hægt að finna helstu upplýsingar um hann á www.heilsubankinn.is  undir “skólar og námskeið” og þar í “nám í náttúrulækningum”. Þetta er ekki fullt nám svo ég get stundað vinnu af hörku áfram meðan ég get lesið á kvöldin ;) Meira og minna allt námsefni á ensku svo ég verð orðin sultusleip í enskunni að loknum þessum 3 árum. Amk ætti ég að hafa heilsuorðaforðann á hreinu HAHAHAHAHA Þá fer ég kannski að verða samræðuhæf – aðeins meira en oft áður amk! Vonandi skulum við segja. Ef ekki þá hef ég gugnað á þessum skóla :D   Ég er búin að borga staðfestingagjald og fá fyrstu bókina svo ég ætla að demba mér í hana í sumar svo ég verði örlítið komin af stað þegar skólinn byrjar. Fyrsta skólahelgin er svo 31. ágúst, 1. sept og 2. sept. Þorbjörg vinkona og Gummi ákváðu svo að gifta sig þann 1. sept n.k svo ég þarf að finna einhverja leið til að vera á báðum stöðum í einu…. Það hlýtur að reddast.

Látum þetta nægja í bili. Bless