Archive for June, 2007

Rvk-Þjórsárdalur-Skógar-Þórsmörk-Rvk

Monday, June 25th, 2007

Lögðum snemma af stað á föstudags vegna misskilnings sem ekki verður útskýrður hér. Snemma er þó ekkert rosalega snemma því við fórum af stað úr Rvk um kl 14:30. Skruppum í sund í nýju lauginni á Stóru-Borg í Grímsnesinu og keyrðum svo í Þjórsárdal, fundum tjaldsvæði, grilluðum borgara og biðum eftir Sigga, Berglindi, Sigurgeiri, Silju og börnum. Þau komu svo eftir að hafa leitað að okkur í Þjórsárverum þar sem allt var troðið af fólki á ættarmóti :) Smá misskilningur hérna huhumm.. en það var pláss í Þjórsárdal :)   Nóttin var köld – brrrrrr og laugardagurinn var hvass en hlýrri. Við fórum í sund (hvað annað??) í Aratungu (brings up old memories) og svo þegar við komum aftur á tjaldsvæðið tókum við upp tjaldið og fórum á Skóga. Á leiðinni þangað var hífandi rok, sandfjúk og rugl. Ákváðum að panta okkur gistingu á Hótel Eddu og sofa í almennilegu rúmi og ekki vakna í háloftunum þegar rokið væri búið að draga okkur þangað upp. Reyndar lægði hressilega stuttu eftir að við keyptum okkur herbergið HAHA típískt? Auk þess tók Lárus upp flugdrekann sem hann VARÐ að kaupa sér á Ebay og hann flaug honum á túninu hjá rollunum á Skógum :) Rosa gaman! Hann og Dabbi voru búnir að reyna að finna stað og stund til að fljúga drekunum sínum en það varð logn þegar flugdrekarnir komu til landsins.. HEHE En þarna loksins kom tækifærið.

Morguninn eftir komu pabbi, Kristján, Árni Hlynur og Tómas Snær til okkar á Skóga og við löbbuðum Fimmvörðuhálsinn. NICE very nice. Við pabbi vorum við það að draga síðasta andardráttinn en strákarnir höfðu nánast ekkert fyrir þessu. Við vorum ROSALEGA heppin með veðrið, algjört logn og skýjað, passlega hlýtt. Best í heimi. Við komumst þetta – lifandi! Lalli var svo sætur að taka á móti okkur, grilla ofaní okkur þreytta og svanga fólkið.

Mjög notaleg og góð helgi. Dagurinn í dag fór í að skröltast um eins og hundgamall ellismellur. Með strengi og harðsperrur á háu stigi í dag, hvernig verð ég á morgun??? get ekki hugsað til þess.. ohhh..

Ekki meira í dag. Hej då

Slepjan loks aftur heima

Saturday, June 16th, 2007

Já, loksins náði ég að henda upp slepjuni góðu aftur hérna heima eftir nokkur góð ár í “útlegð” hjá Snorra nokkrum í Basis. Þakka ég honum mikið fyrir vistun vélarinnar.

Slepjan er farin að keyra í rólegheitum hérna uppá skáp hjá mér, kominnn tími á að vera heima um sinn, slappa af í góðum félagsskap vefja eins og www.andmenning.com og www.heilsunuddarinn.com, og síðast en ekki síst, www.fjallabilar.com. já, ég er orðinn nokkuð umfangsmikill í vefhýsingu :)

Alltaf gaman að því.

Kveðja,
Lalli

Brjálað eirðaleysi

Saturday, June 2nd, 2007

Af hverju stafar þetta hrikalega eirðaleysi mitt? Mig langar að gera eitthvað en ég veit ekki hvað og á mörkunum að ég nenni neinu hehe erfið staða! Ég snýst í hringi í kringum sjálfa mig og bíð eftir að þvottavélin klári að þvo. VEEEIIIIII….

Held ég verði bara að fara út úr húsi. Bless