Archive for May, 2007

Hætta eða halda áfram?

Thursday, May 31st, 2007

That is the big question!  oftast ætla ég bara að hætta þessu. Nú var ég að spá í að láta þessa síðu bara deyja út. Allir eru í sumarskapi og enginn nennir að lesa blogg – right? þó það sé ekki 25°c úti á Íslandi eru allir svo þyrstir í sól að fólk liggur bara úti, í sundi eða hvar sem hægt er að sleikja gullmolann heita. Meiraðsegja ég, Helga Dröfn, er komin með smá freknur vei vei veiiiii… Vona að þær vaxi saman að loknu sumri. :) Bjartsýn.

Jæja það hefur svo sem ekki margt drifið á daga okkar síðan síðast. Það sem er hæst á baugi er kannski það að frökenin á heimilinu er að spá í skólavist í haust. Skólavistin er þó ekki eins og fólk á að venjast. Þetta er ekki fullt nám eins og vanalega heldur er kennt í períódum mest í sept og maí samt bara helgar og svo eru svokallaðir námsfundir þar sem nemendur hittast með kennara til að bera saman bækur og fá nánari upplýsingar and so on. Þetta ætti þó ekki að taka mikinn tíma frá vinnu frá mér. Vonandi ekki – ég má ekki hafa minna að gera!! Ég er reyndar að fara í þetta svolítið blindandi því þetta er kennt svona í fyrsta sinn á Íslandi. The school of Natural Medicin á Íslandi. Hægt að skoða nánar hér

Mæli reyndar með því við alla sem hafa áhuga á heilsu að skoða heilsubankann. Það eru áhugaverðir pistlar þar og ýmislegt að finna.

Bið annars að heilsa ykkur í bili – og Gulli ég verð að standa mig fyrst þú ert að standa þig :)

 

Risessan á listahátíð

Sunday, May 13th, 2007

Ég fór eins og nánast allir íbúar höfuðborgarsvæðisins niður í bæ í rokinu í dag og sá Risessuna hitta pabba sinn. Mér finnst þetta ævintýri frábært. Dúkkurnar eru rosalega flottar miðað við stærð og hreyfingarnar eru merkilega liprar og góðar.

Setti inn myndir á http://www.slepja.com/gallery/album179 af herlegheitunum :)

sól og blí-h-íða

Friday, May 11th, 2007

úti var glampandi sól og þurfti að vinna rúmri klst lengur en vanalega á föstudögum. Um það leiti sem ég var að klára að ganga frá og drífa mig út dró fyrir sólu. Reyndar er svona hálfskýjað en ekki það sem ég var búin að hlakka mikið til að upplifa í sundi :( – ekta ég!

Jæja ætla nú samt í sund. Sjáumst bæ

Skrifað 2,5 klst síðar:

Fór í sund í sól – veiiiiii – hjólandi – veiiiiii-. Prufaði þar með nýja hjálminn og lásinn :) Dugleg? Mér finnst það, sérstaklega með tilliti til síðustu daga. Ég er búin að sukkkkkkkka svo hryllilega síðustu daga að ég gat ekki keyrt í sund. VARÐ að hjóla. Jiminn það sem maður getur sukkað.. ohh my… Kökur, súkkulaði og della dag eftir dag í vinnunni. En gott var það :) mmmmm.

Kosningar á morgun, vinna og svo kosningavaka/júróvisíjón. Efast reyndar um að ég/við vökum eftir kosningunum, enda missir maður víst ekkert af niðurstöðunum.

Júró/kosningar

Thursday, May 10th, 2007

Sit hérna heima, horfi á eurovision og les mér til um stjórnmálaflokka – 2 ólíkir hlutir sem skipa ákaflega ólíkan sess í huga mínum og sjálfsagt allra.

Ég ákvað sem sagt að blogga bara frekar en að lesa…. um að gera að tefja lesturinn.

Við erum með nýjar rúður í stofugluggunum okkar – veiii     ótrúlegt hvað það munar miklu. Reyndar voru gömlu rúðurnar MJÖG skítugar. En maður sér núna hvað þær hafa verið orðnar “þreyttar”   Það er sem sagt verið að vinna í framhliðinni á húsinu okkar ef einhver að spá í af hverju við vorum að skipta um rúður. Tókum þá bara rúðurnar í leiðinni.

Sem sagt rosalega margt að frétta af okkur :)    Jæja ákvörðunin er óumflýjanleg. Best að fara að lesa…

{spam}

Wednesday, May 9th, 2007

Það sem rennur inn í commentakerfið af kynlífs-linkum og viagra auglýsingum! Snake-sex with people – hvernig fer það fram? Það fékk mig næstum því til að kíkja en sem betur fer lét ég ekki undan forvitninni :) Not intressed

Jæja ætlaði nú ekki að fara að blogga langloku um þetta merkismál.   Maður er orðinn svo agalega fullorðinn að maður er á fundi kvöld eftir kvöld. Reyndar finnst mér allir vera alltaf á fundum. Eða er þetta tískuorð? Eða eru allir bara orðnir svona mikilvægir og merkilegir að þeir eru alltaf á fundum?

Ert þú alltaf á fundum?

Já okey ég var á fundi v. nuddfélagsins í gær, reyndar ekki stjórnarfundi og svo var húsfundur í kvöld hehehhee rosa mikilvæg manneskja.

Hef enn ekki ákveðið ég ætla að kjósa, það skýrist vonandi á næstu dögum – það eru ekki svo margir dagar til stefnu. Þarf að fara að prenta út lesefni fyrir kvöldin.

later skater