Archive for April, 2007

Nýfæddur hvolpur

Monday, April 30th, 2007

Já við hjúin drögum andann ennþá.

Eins og nýfæddur sonur Guðrúnar Önnu frænku og Óla Róberts hennar. Drengurinn lét loksins sjá sig eftir 42 vikna meðgöngu og var hann stór eftir því. 16 og 1/2 mörk og 57 cm. Það er bara eins og hálfs árs krakki hehehe – nei okey ekki alveg. En stór og þrælmyndarlegur er hann. Hvað annað?

Ágætt að fá frí á morgun. Vont reyndar fyrir biðlistana.. en það venst. Höfum áhyggjur af því síðar.

Ekkert að frétta, svo ég segi bara bless og ekkert stress

Óhæf skrifstofudama?

Thursday, April 26th, 2007

Ég get eiginlega ekki sinnt einföldustu skrifstofuverkum. Ég er nánast óhæf. Ég er búin að komast að því  að það hefur gleymst að þróa mig með tölvunum. Þar sem ég vinn bara sem nuddari og þar af leiðandi aldrei í tölvu í tengslum við vinnu þá hef ég ekki getað fylgt þróuninni. Einu sinni var ég ágæt á word og kunni aðeins á excel. Núna kann ég eiginlega bara að opna word og excel og skrifa – thats it! Ég ætti líklega að fara á námskeið með gamla fólkinu – læra að kveikja á tölvunni and so on. Þegar ég hugsa út í það þá geri ég ekkert nema fara inn á msn, internet explorer og kapal :)   Silly me

Það sem bjargar mér er að ég á ótrúlega kláran verðandi seðlabankastjóra. :) (ólíkt Dabba kóngi þá kann hann á tölvur). Svo Lalli greyið fær að vinna soldið fyrir mig stundum híhíhí… Hann á eiginlega hluta af laununum mínum. Lalli þú getur sótt um launastyrk til mín HEHe

CRUSTY

Dáldið álag sko

Tuesday, April 24th, 2007

Lítið að frétta enda er hugurinn allur í að koma saman fréttabréfi fyrir nuddfélagið og uppfæra heimilisföng, koma út félagsskírteinum and so on…

Ég er svo mikið á bólakafi í þessu verkefni að ég hef rétt gluggað á nokkrar heimasíður en lítið sem ekkert kvittað fyrir mig – sem er óvanalegt. Biðst afsökunar á því – bæti úr því eftir viku eða svo :)    Svo er ég víst að gera hluti sem gætu verið mér svo mikið auðveldari, ef ég kynni almennilega á word, excel og það sem þarf til..

Jæja hef ekkert um þetta eða annað að tala svo ég segi bara farvel í bili.

Seðlabankastjóra frúin….

Í fréttum er þetta helst..

Friday, April 20th, 2007

Jæja já, allir spenntir að bíða eftir fréttum :) það er ánægjulegt að vita að einhverjir hafa áhuga á því sem er að gerast í lífi manns.

Fréttirnar eru þær að ég er búinn að ráða mig sem Seðlabankastjóra (lesist Seðlabankanetstjóra). Byrja þar fljótlega, dagsetningar ekki alveg komnar á hreint. Já, maður er aftur kominn hring í þróuninni, en það er skemmst frá því að segja að tölvumannaferill minn hófst einmitt í tölvudeild seðlabankans það herrans ár 1998.

Endalaust gaman :D

Skrifstofudaman

Monday, April 16th, 2007

ég… er í skrifstofuvinnunni núna :)

Verst er að ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að gera. Er búin að öllu sem ég get gert þangað til ég fæ aðgang að blessuðum heimabankanum. Það gerist á morgun. Svo er ég búin að biðja um leyfi til að taka kompuna í gegn. Ég þoli ekki svona óskipulag! Guð minn góður hugsa ég í hvert sinn sem ég voga mér þangað inn. Vanalega er ég fljót að koma mér út aftur því það er ekki nokkur lifandi leið að finna nokkurn skapaðan hlut þar inni. Ef ég yrði læst þarna inni þá myndi ég annað hvort fá nervus breakdown eða bretta upp ermar og taka til     HEHEHEHE

Fyrir þá sem ekki vita þá er ég að vinna 2 daga í viku í 2 og 1/2 tíma í senn á skrifstofu Félags íslenskra Heilsunuddara. Alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt, fá smá tilbreytingu í lífið! Ég minnkaði þó ekki nuddið neitt að viti! Stytti aðeins hjá mér fimmtudaginn, kannski tek ég bara aukavaktir á Loftleiðum í staðinn ….

Sumardagurinn fyrsti á fimmtudag – ví ví ví ví.. hvenær skyldi sumarið hefjast samt? Eða skyldi það hefjast yfir höfuð? Einhverjir fróðir menn telja að það verði ekki skárra sumar en var í fyrra. Í fyrra var ekki hlýtt fyrr en í ágúst og þá varð ekkert svakalega hlýtt. Ekki eitthvað sem tekur því að nefna! Reyndar var voðalega hlýtt í Róm um mánaðarmótin sept/okt en það upplifðu ekki allir ;) bara ég,  ligga ligga lái…   Vonum að þessir fróðu menn hafi ekkert vit um þetta! Eða skjátlist alveg hrapalega. Væri alveg til í gott sumar. Amk um helgar! Leiðist reyndar ofsalega að vinna fyrir innan suðurglugga í miklum hita og sól. Það getur verið svakalega erfitt..

Jæja nú fer ég að verða búin að vinna hérna. Best að fara að hætta þessari endemis vitleysu.

Ég kasta boltanum til Lalla – hann hefur fréttir að færa…