Voðalega er ég stuttorð þessa dagana. Hér eftir fylgja lýsingar á nokkrum staðhæfingum frá fyrri færslum
Í gær fögnuðum við með Dabba (eða grétum) því að hann væri orðinn þrítugur. Lalli var að spá í að mæta með bindi!!!!! því það gerir hann BARA í jarðaförum
Hann var eitthvað að spá í að svekkja Dabba. Svo gafst ekki tími til að fara eitthvert að fá lánað bindi því Séra Lárus býr ekki svo vel að eiga eitt slíkt sjálfur. Hmm þarf eitthvað að bæta úr því er ég hrædd um. Það var múgur og margmenni hjá Dabba og talsvert magn af áfengum drykkjum, mat og gúmmilaði.
Í dag mættum við svo í skírnina hennar Kristinu Óskar, dóttur Ástu frænku hans Lalla og Jákups. Þar voru sko ekki síðri veitingar – en reyndar allt óáfengt (sem betur fer!) Svakalega gaman að sjá prinsessuna loksins “live”, en ekki bara á mynd á barnalandi
Svo komu foreldrar Jákups og systur frá DK og Færeyjum. Svo þetta var fjölþjóðaskírn. Fór fram á íslensku að mestu og svo sænsku að hluta. Okkur Lalla fannst það ekkert leiðinlegt, hefði eiginlega mátt vera meira á sænsku hehehhee.
Jæja helgin annars bara róleg að öðru leiti. Áðan fór ég að versla – ferlega tóm um hvað ég ætti að hafa í matinn. Svo þegar ég kom í Krónuna þá var nýslátrað lambaket með afslætti. Mmmm…. svo ég keypti handa okkur einn hrygg. Ahhhh núna er hann í ofninum og lyktin er að drepa mig úr hungri. Get varla beðið. Svo sjaldan sem maður eldar svona hátíðarmat. Eiginlega bara svona matur sem maður fær bara í foreldrahúsum. En við ætlum sem sagt að fara að halda upp á þennan annars ágæta laugardag, sem hefur ekki neina þýðingu fyrir okkur aðra en að samgleðjast vinum og ættingjum þessa dagana. Afmæli útum allar trissur, nota bene Guðrún Anna í dag – kasólétt og vonast til að geta drifið sig á fæðingardeildina sem fyrst
og svo skírn dagsins.
Jæja þessum pistli er hér með lokið. Verði okkur að góðu. Adios alles. HD