Archive for February, 2007

Ekkert að gerast

Monday, February 26th, 2007

hjá okkur. Lalli fór í jeppaferð og lét mig vinna á meðan. Hverslags húsbóndi er þetta eiginlega? Nei okey, þetta er ekki svona slæmt. Þeir fóru strákarnir og Hófí-kærasta Þorra langsum yfir Langjökul og á Hveravelli, gistu svo í Setrinu… sjá lýsingu á www.fjallabilar.com veit ekki af hverju ég er að lýsa ferð sem ég fór ekki!! Það var víst meiriháttar og veðrið súper.

Við Aníta erum nú ekki búnar að vera neitt rosalega duglegar að hreyfa okkur. Eða… réttara sagt hún er búin að vera að hreyfa sig en ekki ég – og ekki með mér :) Hún er alltaf á endalausum námskeiðum og eitthvað og ég er ekki alveg nógu dugleg að fara sjálf að labba og/eða synda. Í dag bætti ég úr því :) Í “hádeginu” mínu, kl 14, fór ég að labba aðeins í góða veðrinu í um hálftíma. Var svo að koma úr sundi þar sem ég synti alveg heila 600 m. Þetta getur stelpan :)   spurning hvernig framhaldið verður hehehe.. Ég verð bara að fara að vinna í að Aníta hætti þessum blessuðu námskeiðum útum allan bæ svo ég geti farið að hreyfa mig aftur eins og mér ber (á maður ekki alltaf að henda ábyrgðinni yfir á aðra?)

Árshátíð Actavis á laugardag. Spennandi. Það sem mér finnst mest spennandi á þessari árshátíð er eftirrétturinn. mmmmmm ferskir ávextir og súkkulaðigosbrunnar :) ég ætla ekki að klára aðalréttinn og ég ætla sko ekki að fara frá eftirréttaborðinu – hí hí hí… ég ætla að koma búttuð heim…. ahhhh ég get ekki beðið.

Jæja mæting snemma í fyrramálið. Vikulega kveðjan komin :þ HD

Lítið að frétta!

Wednesday, February 21st, 2007

Það er nú fátt að frétta. Fórum í sumarbústað í Húsafell um síðustu helgi með Dabba&Dísu og Oddi&Lúllu og prinsessunum þeirra. Jeppuðumst upp á Langjökul í mega flottu veðri. Ofsalega gaman hjá okkur, góður matur, afslöppun og góður félagsskapur. Vonandi bara fer maður fljótt aftur.

Við erum annars hress. Segi seinna ef eitthvað sérstakt er að frétta. er eitthvað heiladauð í dag. HD

Brotið blað í söguna!

Tuesday, February 13th, 2007

Ég held að ég geti sagt það með vissu að ég hef brotið blað í sögu, jahh amk mína sögu og jafnvel má það líklega kallast atburður í heimssögunni. Ég útbjó mér salat…. í heila máltíð. Með einhverju matarkyns sem ég hef ALDREI á ævinni keypt áður. Hahh shit happens eins og einhver snillingurinn sagði fyrr í sögunni :) Og þetta er bara ekki svo slæmt! Kannski ekki hversdagsmatur, en gott inn á milli. Gaman að hafa stigið þetta stórmerka skref sem sjálfsagt mörgum finnst kúkur á priki.

Svo ég haldi nú áfram að “monta” mig og segja af mér “hetjusögur” :) Þá fórum við Aníta í sund áðan eftir vinnu og við syntum heilan kílómeter – vei vei vei… við erum svo duglegar. Þó verð ég að viðurkenna að ef Aníta væri ekki nagli þá hefði ég líklega bara synt 800 m. Þá var heilinn minn farinn að segja mér að fara nú bara að hætta þessu. Takið eftir heilinn en ekki vöðvarnir! En með jákvæðu hugarfari og hörkunni í Anítu þá drifum við okkur áfram í kíló.     Takk Aníta :)

Jæja held áfram að borða salat…. Síjú leiter. Heilsufríkið

P.s – Við Aníta vorum í sundi með Jude Law. Ég er enn hálf móðguð út í hann að hafa ekki bankað í öxlina á okkur og heilsað – þó það væri nú ekki nema það!

Boston Legal

Sunday, February 11th, 2007

finnast mér HRÆÐILEGA góðir þættir. En ég verð eiginlega að hætta að horfa á þá. Ég verð alltaf svo svekkt þegar þeir eru búnir! Þá langar mig bara að horfa á fleiri þætti :)

Svona er ég nú skrítin.

Lalli snillingur

Saturday, February 10th, 2007

Lalli er að setja upp heimasíðu fyrir heilsunuddarann :)    www.heilsunuddarinn.com  smám saman kemur nýtt efni inn á síðuna. Vei vei vei… Við ætlum okkur stóra hluti með þessa síðu í framtíðinni. Svo haldið ykkur fast því spennan er rétt að byrja. Það er reyndar bara komið logo á síðuna og hugmynd um hvernig hún er uppsett. Engar upplýsingar komnar enn sem komið er – en það kemur.

Note: “framtíðin” er stórt orð og spannar laaaaaangan tíma :)

Hvernig lýst ykkur á fyrstu drög?