Ég segi eins og allir í dag: Hvað er málið með Júróvisjón? Var þetta grín í gær? Allt þetta hæfileikafólk að leika sér að syngja falskt og asnaleg lög? Og svo ekki sé minnst á að hana Bríeti Sunnu? Hvernig í ósköpunum komst blessuð stelpan áfram? Hún var sú allra falskasta í hópnum. Jiminn eini hvað ég hlýt að hafa lítið vit á tónlist
En já kjánahrollurinn einkenndi kvöldið. Vægast sagt.
Mér fannst hins vegar gaman að sjá Silvíu Nótt – þrátt fyrir að ég hafi yfirleitt haft frekar lítið álit á henni stelpunni þá var hún ekki alveg jafn ótrúlega ýkt eins og áður og þar með hafði ég bara dáldið gaman að henni.
Í dag, sunnudag, er ég bara búin að vera heima – í allan dag. Ég hef ekki einu sinni farið út á svalir! Ég fór reyndar niður í geymslu og þvottahús. En ég er svo sem ekki búin að sitja auðum höndum jafnvel þó ég hafi setið fyrir framan tölvuna og spjallað heillengi við Steinunni Margréti, aðeins við Berglindi Rut, Birki ofl. Ég er búin að ryksuga, skúra, þurrka af, hengja upp myndir, þvo þvotta, elda kvöldmat og dútla í ýmsu öðru. Svakalega dugleg.
Lalli fór upp á jökul í dag og því var ég bara ein hérna í þessu dúlleríi. Sem var bara mjög notalegt. Það er ofsalega gott stundum….
Annars ekkert að frétta
Bara Rope Yoga í fyrramálið. 6:15 baby jeahh.