Archive for December, 2006

Jólamyndirnar

Friday, December 29th, 2006

Tókum bara örfáar myndir þetta árið. Bara örfáar og flestar af jólatrénu hehehehe… mynidr má sjá hérna: http://www.slepja.com/gallery/album167 

Kveldið í kveld verður að öllum líkindum tekið í að spila. Síðasta vinnudegi ársins lokið :) jibbí – ég verð að segja að ég var greinilega með allt árið á bakinu á þessum annars stutta vinnudegi. Stuttur og ekki stuttur. Jæja what ever. Vinnuárið er búið og árið að verða búið og þá tekur bara nýtt og jafnvel enn betra ár við. Að mörgu leiti var þetta ár viðburðaríkt – mjög gott og mjög slæmt. Vonandi verður næsta ár örlítið afslappaðra í atburðunum :þ Ég höndla ekki svona öfgar – ég vill bara jafnvægi!

Jólin búin

Wednesday, December 27th, 2006

Þá er maður búinn að halda jólin og þá getur maður tekið bara niður jólaskrautið! Ætli maður leyfi því ekki samt að hanga yfir áramótin. Mér finnst alltaf eins og jólin séu búin á 3ja í jólum. Veit að það eru margir sammála mér.

Prinsessa Ástu og Jákups hefur fengið nafnið Kristina Ósk Jákupsdóttir. Myndar stelpa með falleg nöfn. Nöfnin koma frá ömmum hennar. Óskum henni til hamingju með nöfnin.  

Ekkert annars að frétta.

 

Kl er 20:00…

Sunday, December 24th, 2006

… og við erum búin að öllu. Lukum því fyrir ca 15 mínútum. 

Þá vorum við búin að: Elda, klæða okkur í spari, kveikja á öllum kertum heimilisins, borða, ganga frá, liggja á meltunni, opna pakkana, losa okkur við pappírsflóðið, lesa jólakortin, slappa aðeins meira af og borða smákökur og konfekt.

Fljótlega förum við bara á smá rúnt og svo í eftirrétt till mina foräldra.

Við erum ofsalega ánægð með gjafirnar okkar allar. Takk fyrir okkur :)

Heyrðu og já ég gleymdi nú aldeilis að segja frá jólagjöfinni í ár! Við Lalli ákváðum að splæsa á okkur 2005 módelinu af Toyotu Corollu!  Jólagjöfin frá okkur til okkar. Golf-helvítinu hefur því hér með verið lagt og mun ekki hreyfður aftur fyrr en seldur.

Aðfangadagur jóla er einmitt í dag..

Sunday, December 24th, 2006

Jæja þá er þessi stóri dagur runninn upp. Hann er ekki bara stór vegna þess að það er aðfangadagur jóla heldur á Halldór pabbi hans Lalla líka afmæli í dag.

Allt er löngu tilbúið í koti rólega fólksins. Nú er Lalli í sundi – ég ætla bara í sturtu fyrir kl 6. Ég nenni ekki 2x í bað í dag. Svo bara förum við að fara í jólagjafaleiðangur. Við erum reyndar búin að fara eitthvað. Ákváðum að kíkja í nokkrar heimsóknir í gær og í fyrradag, með pakka og jólakort. Mjög gaman að kíkja aðeins við í nokkrar mínútur og skoða jólastemminguna hjá fólki :)

Lalli valdi jólatréð – það tekur hálfa stofuna okkar. En það er reyndar mjög flott. Myndir koma af því bráðum inn á galleryið. Við ætlum að vera 2 ein hérna í kotinu. Borða saman pörusteik og opna pakkana. Þegar því er lokið og frágangi líka þá ætlum við að skreppa til mömmu og pabba í eftirmat. Upplifa fjörið þar og skoða hvað þau eru búin að fá í jólagjöf. Þá ættu mamma og pabbi Lalla að vera að koma heim og þá er bara að skjótast til þeirra og svo bara heim að sofa zzzzzz……

Ég er að horfa á Nemo á Stöð 1 :) ekkert smá gaman :þ

Jæja við óskum ykkur gleðilegra jóla og hafið það sem allra best.

p.s ég held að ég hafi ekki verið búin að segja frá því að Ásta og Jákup eru loksins búin að eignast litla dóttur. Hún kom LOKSINS þann 16. des eftir langa og stranga bið. En öllum heilsast vel og daman er yndisleg. Það er hægt að skoða gripinn undir linknum hérna til hægri “prinsessa Ástu og Jákups”

Fimmtudagur

Thursday, December 21st, 2006

Ég er búin að öllu. Meirað segja kaupa jólamatinn. Æði

Veðrið í dag er frábært. Mætti vera aðeins meiri ófærð. Dásamlegt.

Hafið það gott. HD