Já, nú er maður staddur í höfuðborg Danaveldis. Ekki er um skemmtitúr að ræða, heldur er ég á námskeiði fyrir vinnuna. Ég er s.s. að verða Vmware sérfræðingur eins og Dabbi litli vinnufélagi.
Þegar ég bað um að fá að fara á þetta námskeið hugsaði ég mér gott til glóðarinnar að geta varið kvöldunum hérna í félagsskap góðra vina sem hér eiga heima (eða áttu heima núna ölluheldur) og ákvað því að vera á hóteli niðrí miðbæ en ekki útí Rassgati (eða Glostrup eins og það heitir á dönsku). Var búinn að plana pöbbarölt með Gunna, kanski tónleika eða tvo og koma Steinunni á óvart með því að mæta alltí einu í vinnuna til hennar og biðja um sjónmælingu.
EN NEI! aldeilis ekki. Gunni ákvað í snarhasti að flytja heim um leið og hann frétti að ég ætti leið um Dk í viku, helvítis mörðurinn… og til að bæta gráu ofaná svart þá keyptu Steinunn og Helgi sér miða heim, akkúrat vikuna sem ég er úti! Sit ég því einn niðrí lobbýi með fartölvuna í fanginu, sötra öl í miklum móð og ét Shawarma í kvöldmat. Búinn að skoða jólamarkaðinn á nyhavn og búinn að átta mig á því að það er bara ekkert gaman að hanga einn í útlöndum… Skil þig s.s. betur núna Birkir, this is not fun, ekki einusinni á launum. Ég hef samt notið þess dáldið að rölta um og horfa á furðufuglana hérna í köben, alltaf gaman að mannlífinu hérna. Svo hef ég etið alveg slatta af tyrkneskum og írökskum mat sem ég saknaði bara slatta síðan úr svíþjóð. Hér er nefnilega hægt að fá skyndibita sem er ekki bara hammari og franskar… kærkomin tilbreyting fyrir svona junk-food junkie like me…
Eitt sem ég ætla að miðla samt af fenginni reynslu… ekki borða Shawarma með extra chilli og fara svo á salernið að gera nr. 1 nema þvo hendur fyrst! og líka á eftir…
Nú s.s. svíður mig ekki bara í munninn……
Stuðkveðjur úr Köben,
Lalli