Ég kvaddi á Heilsubrunninum á föstudaginn kl 14:20 með þessum orðum: Bless og góða helgi, ég er loksins komin í helgarfrí. Ég sótti Lalla í Hafnarfjörðinn kl 15:59, sá mér gott til glóðarinnar að nappa honum þarna og koma honum í Smáralind á heimleiðinni til að kaupa LOKSINS á hann buxur. Meðan við sátum í umferðarsultunni á Reykjanesbrautinni þá hringir síminn hjá mér og Fjóla Rut á Dong Fang er hinum megin línunnar og spyr hvort ég sé ekki á leiðinni til hennar?!?! “NEI” sagði ég bara eins og raun bara vitni. Þá hafði hún skráð mig og ég varð bara að bruna – eins hratt og hægt er að bruna Reykjanesbrautina á föstudegi kl 4!!
Jæja helgin var ótrúlegt en satt ekki tekin í vinnu eða meiriháttar vinnu. Á laugardagsmorgun tók ég mig til og brunaði austur á Selfoss til að innheimta nudd hjá henni Helenu minni. Það var dásamlegt. Alltaf gott að fara í nudd. Þegar ég var búin að fá olíuborna hárgreiðslu (rosa smart) og með krumpað andlit (annast einhver við ástandið?) þá kíkti ég í augnablik í heimsókn til hennar bumbulínu Tryggvadóttur (Þorbjörgu). Hitti svo vel á að mamma hennar og systir voru á leið í bæinn frá Hvolsvelli og komu við svo ég hitti þær líka. Ekki leiðinlegt það. Þegar ég hafði farið yfir heiðina í vesturátt lá leið mín í Bónus og svo heim á leið til að henda mat í ofninn og undirbúa að fá Bibbs og Gunns í samátu það kveldið. Rauðvínssull og lambaket var aðalsmerki kveldsins.
Sunnudagurinn fór svo í Sundmót Ármanns í Laugardalnum – gaman gaman!! – Og þar vann hann Árni Hlynur lil bró bronsið í 100 m. fjórsundi drengja. Dugnaður í drengnum.
Helginni hans Lalla var varið í að húka undir jeppó og skella millikassanum undir. Var vægast sagt duglegur drengurinn miðað við að hafa húkað aleinn alla helgina þarna undir blessuðum bílnum.
Það sem ber sennilega hæst til tíðinda þessa dagana er það að við Lárus verðum 5 barna foreldrar næstu helgi. Foreldrar mínir ætla að gera sér lítið fyrir og skella sér til Rússlands – nánar tiltekið Pétursborgar – þá helgina. Megagaman! Þess má geta að þau eru að fara í fyrsta sinn 2 saman til útlanda….. á ævinni… kannski kominn tími til þar sem ekki eru mörg árin í hálfraraldarafmælin! Reyndar verð ég meira og minna einstæð 5 barna móðir því Lárus stefnir á að klára jeppann (vonandi tekst það) svo við systkinin verðum að dúttla okkur saman alla helgina. Gaman saman.
Fátt annað í fréttum. Bara nóg að gera að vanda hjá okkur hjúum, innan sem utan vinnu. Bið að heilsa ykkur öllum og fariði nú vel með ykkur greyin mín.