Þá er að koma að því. Ekki á morgun heldur hinn þá verð ég stödd í Rómaveldi hinu forna og slappa af eftir langt ferðalag (að mínu mati). Við Árni Hlynur verðum nýkomin upp á herbergi með kampavín og jarðarber….. nei okey kannski ekki gott að fylla drenginn fyrir fermingu. Jæja okey við verðum kannski í köldu fótabaði eftir þetta allt saman. Hótelið okkar heitir reyndar Hotel Champagne svo mér fannst þetta við hæfi. Sjáum svo til hvort við höfum orku í að drífa okkur út að borða strax eða hvort við gleypum í okkur samloku og förum að sofa. Allavega þá efast ég ekki um að við verðum glöð en þreytt.
Nú er þriðjudagskvöld og ég er enn ekki farin að pakka. Kl er 23:00 og ég ætti í raun að vera að fara að sofa – en ég ætla nú samt að pakka smá! Amk taka smá til því annað kvöld er ég eiginlega búin að plana svo mikið að ég sennilega fer tómhent út - nú eða gleymi helmingnum.
Kristján sagði mér áðan að hann hlakkaði 98% til að fara. Veit ekki alveg hvað það þýddi – ég sagði honum bara að ég hlakkaði alveg amk 100% til!! Ef ekki mikið meira. Mér skilst að amk allir aðstandendur og fararstjórar séu mikið spenntari en keppendur HAHAHA.. samstarfskona mömmu er móðir/aðstandandi og er að fara, hún sagðist vera að springa, kennarinn hans Kristjáns er fararstjóri og hann er víst að flippa….. Aðalmálið er að hafa gaman. Right?
Jæja ætla að pakka smá í staðinn fyrir að sitja hér og blogga innihaldslaust blogg. Góða nótt og hafið það gott. Hér verður líklega lítið bloggað meðan ég er í burtu, nema Séra Lárus taki sig til og bloggi eins og meiníak á meðan. Hvur veit.
Til allra þarna úti sem ég/við erum búin að vanrækja síðustu vikur biðst ég afsökunar (það eru víst ansi margir!), það er búið að vera meira en nóg að gera daga og kvöld. Stefnum á að bæta úr því sem allra fyrst. Huhhuummmmm… Vonandi tekst það sem fyrst eftir heimkomu mína. Ég kveð hinsvegar að sinni og óska ykkur alls hins besta. Ég er farin að borða pizzur og pasta og krúpa fyrir páfa. Adios