Svona í framhaldi af því að tala um að kunna ekki að sofa út þá ælta ég að tilkynna það að við Lárus vorum svo djörf að vaka yfir Rockstar í “nótt” Vorum svo spennt yfir þessu öllu saman að við ákváðum að halda okkur vakandi þennan hálftíma sem við þurftum að bíða og svo þáttinn. Ég ákvað að ganga frá hérna til að halda mér vakandi. Ég tók af snúrunum, setti í þvottavél, tók úr uppþvottavél og þreif klósettið :þ Ýmislegt gert sér til dundurs þegar maður þarf að halda sér vakandi! En það tókst. Það var reyndar frekar erfitt að vakna í morgun – en hvenær er það ekki erfitt?
Dagurinn í dag í vinnunni var svipaður og vanalega. Labbaði svo í magadans og eftir magadansinn þá fékk ég far með Sólrúnu heim til hennar. Þaðan labbaði ég svo í 45 mín heim til mín. Þvílíkur mega hraustleikadagur
Vonandi fóru nokkur grömm þar HEHEHE Aníta var svo sæt að halda mér félagsskap hluta af leiðinni – hringdi í hana og blés eins og búrhveli meira og minna því ég var að labba upp brekku þegar ég talaði við hana HAHA
Annars er hún Ásta Sigrún að fara út á morgun. Gangi þér vel litla-stóra frænka mín.
Vonandi hafið þið hin það gott.