Archive for July, 2006

Heim í heiðardalinn

Saturday, July 29th, 2006

Jæja þá erum við hjú búin í sumarfríi. Amk erum við komin heim úr sumarfríinu. Ég, HD, fer að vinna á mánudag og Lallus ekki fyrr en eftir verslunarmannahelgi.

Við hjú erum búin að þræða Vestfirðina nokkuð vel verð ég að segja. Rifjuðum upp gamla tíma á okkar “æskuslóðum” Lalli í Aðalvík á Hornströndum og ég í Bolungarvík. Æskubrek og yndi. Ekki spillti hvað veðrið var yndislegt. Æ lov it. Sól og aftur sól.

Getur verið að ég komi með betri ferðasögu síðar en látum þetta gott heita núna. Ég þarf að fara að henda í þvottavélar og taka meira upp úr töskum. Og hana nú.

HD

p.s það eru komnar myndir á http://www.slepja.com/gallery/album147 fyrir áhugasama og þar er létt ferðalýsing undir myndunum.

Annars er Sigurrós í kvöld sunnudag. Gaman gaman. Vonandi þó að hann hangi þurr rétt á meðan :)

Aníta

Thursday, July 20th, 2006

Við Aníta erum með einhverja undarlega tengingu. Spurning hvort við séum tvíburar sem hafa verið aðskildir strax eftir fæðingu. ALLLLTAF leyfi ég mér að fullyrða, hringir Aníta í mig þegar ég hef hugsað til hennar að ég þurfi að hringja í hana útaf einhverju. Eða bara ef það er langt síðan ég hringdi. Í gær staðfesti ég þetta – að ég væri nú ekki bara að segja þetta. Ótrúleg klisja í hvert sinn sem frökenin hringir “ég er einmitt búin að hugsa svo mikið til þín”. En það er ekki klisja. Í gærkvöldi hringdi síminn og ég sagði við Lalla, “ég þori að veðja að þetta sé Aníta” hahh og það var rétt. Mér finnst þetta dáldið spúkí – Aníta við ættum kannski að fara í DNA. Kannski við ættum að fá Hauk til að skoða þetta fyrir okkur ;)

Verslunarmannahelgin

Wednesday, July 19th, 2006

Ég verð nú bara að segja það að ég væri nú bara þokkalega til í að fara á þjóðhátíð í ár!! Ekki slæm böndin í ár.

Hvað ætlar annars landinn að gera í ár? Er einhver búinn að skipuleggja eitthvað?

Helgin afstaðin

Monday, July 17th, 2006

og ég nenni ekki að hafa mánudag! Er það eitthvað nýtt?

Ég er með harðsperrur eftir flutninga helgarinnar. Sólrún og Trausti eru þó loksins búin að komast inn í nýju íbúðina sína – vonandi alsæl :) Til hamingju með íbúðina. Hlakka til að koma þegar það er hægt að ganga um allt án þess að troðast. Skil bara ekki hvernig þetta dót komst allt fyrir í litlu gömlu íbúðina – herregud.

Afmæli helgarinnar afstaðið eða afstaðin öllu heldur. Sigga (tengdó) átti afmæli á laugardag og Ásta Kristín systir mín líka. ÁK hélt hinsvegar upp á sitt 6 ára afmæli á miðvikudag svo við gátum farið og notið dagsins á stórhátíðardaginn með henni Siggu. Jebb stórhátíðardagur kallast það þegar maður fyllir tuginn. 60 ár liðin.

Ég hef tekið þá dramatísku ákvörðun að vera bíllaus í einn og hálfan mánuð. Þetta var í raun ekkert erfið ákvörðun fyrr en ég þurfti að fara að sleppa bílnum fyrir alvöru! Fór með bílinn til pabba og skilaði honum. Búin að nota hann í bili. Ég ætla að taka STRÆTÓ í þennan rúma mánuð sem Gunni er á Golfinum. Ég held að þetta verði gott fyrir bumbuna. Labba smá - ekki veitir af. Ég er að reyna að líta jákvætt á þetta svo að þetta verði nú ekki neitt mál því þetta er jú ekkert mál…. Labba út í strætóskýli og láta keyra sig á áfangastað. Gæti ekki verið þæginlegra. Verst er að þá kannski er ég ekkert að skreppa hingað og þangað þegar ég á lausa stund! :s en það verður bara að venjast. Þið verðið að sætta ykkur við það hehehe.

Jæja best að grafa upp eitthvað klink og hlaupa í strætó. Verð víst að fara að vinna

Föstudagur til sælu?

Friday, July 14th, 2006

Ekki í þessu veðri! Dagurinn er búinn að vera og reyndar öll vikan, hálf kreisí! Dagurinn í dag tafðist helling – sem betur fer eru föstudagar ekki langir svo kl hálf 4 (hálftíma á eftir áætlun) var ég eins og sprungin blaðra. En það er gott – þá er nóg að gera. Right?

Ný borgarstjórn er aldeilis að láta taka eftir sér. Þeir eru búnir að tala um að taka breiðholtið í gegn fyrst og gera það almennilega. Þeir eru strax byrjaðir – eru að rífa niður skúra hérna á leikvellinum á bakvið hús hjá okkur. Ekki átti ég von á þessu. Verð nú bara að segja það. En það er gaman að það sé eitthvað sjáanlegt að gerast í þessari borg. Ekki verra að þeir byrji í bakgarðinum mínum híhíhíhí…

Góða helgi annars og hafið það sem allra best.