Eins og áður sagði fórum við Lalli útúr bænum á laugardagsmorgun. Það var reyndar komið hádegi þegar við brunuðum loksins útúr bænum því ég datt á bólakaf í Harry Potter og blendingsprinsinn og vegna þess hve lítið var eftir þá varð ég að klára. Nauðsyn! Svo vorum við að eltast við eitt hér og annað þar og þá æðir tíminn bara áfram.
Í stuttu máli: Ferðin gekk vel í alla staði. Veður nokkuð gott allan tímann. Við gistum á Hömrum í Kjarnaskógi í roki/gjólu nánast alla helgina. Keyrðum mikið, skoðuðum Goðafoss og brunuðum allaleið í Hljóðakletta, en þar var enn snjór og vitleysa svo við gátum ekki komist að þeim svo við eigum það ennþá eftir. Við fórum í sund á Akureyri, í bíó og ýmislegt svo það var margt brallað. Notaleg helgi vægast sagt.
Það sem kom mest á óvart: Það er án undantekninga hvað fólk almennt er orðið slappt í umferðareglunum…. eða umferðaröryggi eða bara sambland af þessu öllu. Öll þessi slys koma mér bara ekkert á óvart með tilliti til þess að amk 3x alla helgina (og þar af 2x á leiðinni norður) keyrðu bílar bara hreinlega í veg fyrir umferðina á þjóðvegi 1. Fólk bara að koma af bílaplani eða frá öðrum vegi. Sumir láta eins og þeir líti hvorki til hægri né vinstri. Það var kona sem fór fram fyrir rútu sem var fyrir framan okkur, hún var með barn í bílnum, keyrði á 80 km/klst og gaf svo stefniljós til hægri – eins og til að hleypa framúr -á beinni línu upp brekku. Er fólk klikkað? Skildi svo ekkert hvers vegna við fórum ekki framúr!!!!!!!!!!!! Finnst fólki þetta í lagi? Er henni alveg sama um barnið sem sat í bílstólnum aftur í hjá henni? Afsakið en ég er hneiksluð – vægast sagt. Og sérstaklega vegna þess að þetta var ekki eina dæmið. Lentum svo aftur í þessu með stefniljósið – einhver ætlaði að hleypa okkur fram úr á heilli línu þar sem ALLS engar aðstæður eru til framúraksturs.
Niðurlag helgarinnar; Fólk er fífl en helgin var góð c”,)
P.s myndir komnar á www.slepja.com/gallery