Já vaknaði kl rúmlega 9 og fór í fjallgöngu fyrir kl 11 og komin heim um hálf 1. Dagurinn allur eftir… Yndislegt.
Ég fór sem sagt ásamt Anítu og Ragnheiði í fjallaleiðangur upp á Úlfarsfell í morgunsárið og bongóblíðunni sem liggur nú yfir borginni. (okey það er ekkert massahlýtt – en það er sól) Við gengum upp og enn lengra upp skrifuðum okkur í gestabókina þar og fórum svo niður á við. Þetta var algjört æði og vonandi gerum við þetta nú að vana bara… helst allar helgar – 1x í viku er bara æði. Svo hægt að labba bara á malbikinu þess á milli. Unaður
Gulli og Sandra lentu á klakanum í gær og Steingerður frænka og Júlía fara í dag. Allt að gerast. En mikið verður nú gaman að hitta Gulla og Söndru aftur
jibbí
Jæja ætla nú að drífa mig í að teygja smá, fara í bað og drífa mig svo í útskrift hjá henni Hörpu Stefáns í smá stund. Gleðilegan uppstigningadag annars og endilega drífið ykkur út í góða veðrið.
P.s ég er meira að segja þreytt í höndunum eftir labbið…. djöfull er ég í lélegu formi. Djísúss…