já, eins og glöggir lesendur sáu, þá er ekki mikið um rólegheit í okkar lífi eins og er. Búsett í sitthvoru landinu tókst okkur samt að komast að samkomulagi um íbúð sem ég bauð svo í. Við ætluðum ekkert að gera þetta núna, planið var að fara að skoða fyrst þegar HD kæmi heim og spara þangað til, gera þetta í rólegheitum. En neinei, ég sá þarna íbúð, ákvað að fara að skoða… og leist svona helvíti vel á þetta maður!
Ég bauð talsvert undir uppsettu og fékk talsvert lægra móttilboð en ég átti von á! sem er bónus
svo nú erum við eigendur að Dalseli 35 !!!! fáum afhent 1. apríl eins og áður hefur komið fram.
Ég henti inn myndum í ganni á slepjugalleríið, þær má líka nálgast HÉR.
Vinnan er brjáluð, fundir eftir fundi eftir fundi, og maður má ekki vera að því að vinna fyrir þessu hehe.. en þetta er rosagaman og ég hlakka mikið til að verða góður í þessu sem ég er að gera.
Jæja, nú er kominn tími á að kíkja í þorramat til Ástu ömmu hennar Helgu Drafnar, svo ég segi þetta gott í fréttum í bili.
kveðja,
Lalli litli