Archive for December, 2005

Síðasti erfingi ársins!

Friday, December 30th, 2005

Já fyrsta barnið í þessari annars barnatörn næstu mánaða er fætt. Storkurinn reyndar hefur greinilega lent í meðvindi því litla stúlkan átti ekki að koma fyrr en í janúar á nýju ári. En hver kvartar?? Ekki ég. Verst er að litla krúsínan er stödd í Kaupmannahöfn svo ég sé hana ekki strax. En mikið hlakka ég til að fá að sjá hana. Og svona fyrir ykkur sem þekkið eitthvað til þá var hún Steingerður stóra frænka og Mikael að eignast sitt fyrsta barn. Til hamingju kæra fjölskylda *kyss og knús* til ykkar allra. Hlakka til að sjá ykkur sem allra fyrst og gangi ykkur vel með telpuna.

Snjóþotugrín

Friday, December 30th, 2005

Í gær var farið í smá snjóþotugrín í litla brekku sem er hér í Eskilstuna. Rosagaman, keyptar voru ruslatunnuloks-rassaþotur fyrir mannskapinn (G og S áttu eina) og svo var brunað á staðinn.

Teknar voru þónokkrar salíbunur og allar rennsluaðferðir rannsakaðar af vísindalegri nákvæmni, og svo voru haldnar hinar ýmsu keppnir, s.s. Hver rennur lengst, flottasta veltan, frumlegasta aðferðin og hver er fljótastur niður. Svakalegt stuð :)

Ekki var tekin myndavél með því miður en ég tók 2 myndbönd upp á símann minn.

Hér og
Hér.

Þessar myndir eru á .3gp formi, og hægt er að sjá þær með því að nota Quicktime vídeospilarann.

Breytt áætlun

Tuesday, December 27th, 2005

Sæl veriði kæru lesendur til sjávar og sveita, nær og fjær.. þó aðallega fjær.

Já, breyttar aðstæður (eða ætti ég að segja óbreyttar) kalla á breytta hegðan og önnur plön. Margt hefur skeð hérna úti á síðustu dögum, ýmislegt misjafnt komið í ljós og annað sem var slæmt er óbreytt. Tími til kominn að gera gagngerar breytingar á planinu, vinna í að snúa dæminu við.

Ég, Lárus Rafn Halldórsson, er á heimleið.

Þetta er ekki það sem upphaflega var í ferðalýsingu sem samin var í febrúar 2005. En svona er lífið og enginn gat vitað að það yrði ómögulegt að fá vinnu hérna. En nú er maður eldri, reyndari og sterkari einstaklingur :) . Já.. þetta er sannarlega búinn að vera góður tími, erfiður í bland samt.

Til að gera langa sögu stutta skal stiklað á stóru í atburðarrásinni, sem í senn er spennuþrungin, ógnvekjandi og sorgleg. Eins og glöggir áhangendur hafa tekið eftir hef ég unnið undanfarið hjá Berglunds Åkeri hér í bæ. Þetta byrjaði allt með því að ég fékk viku reynslutíma hjá þeim snemma í haust. Voru þeir þá að eigin sögn talsvert ánægðir með mig en höfðu þá “tyvärr” (því miður) enga vinnu fyrir mig eftir vikuna. Fékk ég samt góð meðmæli og fannst þá þetta fyrirtæki alveg hreint ágætis kompaný.

Síðan fékk ég smá aukavinnu hjá þeim öðru hvoru, reyting hér og reyting þar, keyra aukakeyrslur og smotterí. Svo kemur að því að ég fæ að vita að hugsanlega sé laus staða hjá þeim. EN! þeir vilja ekki ráða mig beint inn á þeirri forsendu að ég sé nú ekki alltof ratvís í Eskilstuna og vilja fá aðstoð frá ríkinu í 4 vikur til að standa straum af þjálfun minni. Þetta er í boði vegna gríðarlegs atvinnuleysis í Svíþjóð, einn liður stjórnvalda til að auðvelda fólki að fá vinnu. Ég skildi aldrei alveg af hverju ég þyrfti 4 vikur til að læra að rata um 90 þúsundmanna þorp, enda kann ég ágætlega að lesa kort og hef leyst öll verkefni sem Berglunds hefur boðið mér vandræðalaust. (þar fyrir utan á ég prýðilegt GPS með götu-korti og leitunarmöguleika, en það er önnur saga)

Jæja, þetta er sett af stað og ég byrja að vinna 28. nóvember. Þá kemur í ljós að þetta er vinna á lager DHL hér í bæ við að hlaða í flutningabíla á kvöldin, tek ég við af manni sem var rekinn fyrir leti frá öðru fyrirtæki (ekki Berglunds) og á þetta starf ekkert sameiginlegt með útkeyrslu á vörum, hvað þá að um sé að ræða einhverja þjálfun í ratvísi, nú eða þjálfun af einhverju tagi. Ég fylgist með stráknum sem búið er að reka vinna vinnuna sína í 2 kvöld, og svo tek ég við. Ég vinn þarna í 4 tíma á kvöldin og held ég standi mig bara ágætlega, enda kom seinna í ljós að DHL menn voru mjög ánægðir með mig.

Kjarninn í þessum þjálfunarsamningi milli Berglunds og ríkisins er sá að Berglunds þarf ekki að borga mér laun meðan ég er í þjálfun, ég fæ skitnar 120 krónur sænskar á dag frá ríkinu á þessum tíma óháð því hvort ég sé að vinna 1 tíma á dag eða 10. En samningurinn gerir líka ráð fyrir því að ég sé í -þjálfun- og það sé einhver að vinna með mér eða amk. fylgjast með því sem ég er að gera!!! svo var ekki þarna.

Á þorláksmessukvöld, þegar ég er að vinna síðasta daginn minn skv. þessu “þjálfunarprógrami” þá spyr ég yfirmann DHL lagersins hvernig þetta verði í framhaldinu, hvort ég fái meiri vinnu eftir þetta prógram og hver borgi mér laun og svo framvegis. Hann kemur af fjöllum og segir mér að ég sé leigður af Berglunds til DHL á fullu kaupi (s.s. Berglunds fær að fullu greitt fyrir mína vinnu) og þeir hafi ekki heyrt um neitt að ég sé í þjálfun. (þess má geta að ég spurði að þessu þarna því mig var farið að gruna að þetta væri eitthvað gruggugt).

Semsagt, þá ætlaði Berglunds Åkeri sér aldrei að ráða mig í vinnu, heldur átti bara að nota mig sem ókeypis vinnuafl í þessar 4 vikur svo þeir gætu hirt leiguna af mér frá DHL og stungið henni í eigin vasa og segja mér svo að ég gæti því miður ekki fengið neina vinnu. Fallegt svona í desember.

Aníhú. Ég er s.s. búinn að fara um bæinn í dag, ná í staðfestingu þess efnis að DHL hafi greitt fullt gjald fyrir mig til Berglunds og svona og svo fór ég á fund hjá AMS, sem er Sænska vinnumálastofnunin og kærði þá. Þetta athæfi er náttúrulega ólöglegt, fyrir utan að vera siðlaust. Enn á ný er ég því algerlega atvinnulaus í Svíaríki og ekki nein önnur vinna í sjónmáli.

Þetta þýðir því að ég kem heim til Íslands í janúar að vinna, enda höfum við ekki efni á því að ég sé lengur hér úti að leita að vinnu sem virðist hvort eð er vera næstum vonlaust. Planið er að ég vinni heima á íslandi, búi ódýrt og haldi okkur uppi svona í sitthvoru landinu. Leiðinlegt en gengur alveg. Verst er að vera svona lengi í einu í sundur, það verður erfitt :(

Svona fór um sjóferð þá. Við sjáumst s.s. fljótlega uppúr 8. jan, en þá á ég pantað flug heim.

Jólakveðja,
Lárus

Stóri dagurinn búinn!

Sunday, December 25th, 2005

Aðfangadagur jóla var einmitt í gær…. Já við hjú áttum aldeilis notalegan og vægast sagt óvanalega rólegan dag í gær.

Ég upplifði dáldið svona eins og þegar ég var krakki – að bíða eftir jólunum. Vanalega þá vaknar maður bara að morgni og fær sér morgunmat og svona í rólegheitunum og uppúr hádegi þá fer maður að undirbúa og/eða drífa sig af stað í pakka- og jólakortaleiðangur með krakkana. Það stendur oftast yfir alveg fram til kl 4 eða 5 um daginn. Jebb margir staðir að fara á og spjalla og knúsast. Þetta af skiljanlegum ástæðum vantaði í gær. Svo við sátum hérna og horfðum á Andrés Önd eins og svíar og dúlluðum okkur í að ganga frá því sem átti eftir að gera – sjóða hangikjötið, búa til soufflé-ið og krydda kjötið. Gulli og Sandra kíktu yfir í smá jólaöl og smákökur til að stytta okkur og þeim stundirnar.
Við ákváðum líka að bíða eftir að klukkurnar hringdu heima á Íslandi kl 6 – en þá er klukkan náttúrulega 7 hjá okkur. Það var frábært. Við erum nú ekki vön að vera mjög lengi að borða en treinuðum matinn þó það lengi að okkur tókst að sitja til borðs í nánast 30 mínútur hehehehe. Kjötið var hrikalega gott, brúnuðu kartöflurnar tókust pörfekt (Lalli meistarakokkur á heiðurinn að þessu öllu!!) og svo var sósa og salat – en ekki hvað? Eins og ég segi þá tókst þetta ótrúlega vel miðað við fyrstu tilraun. Vorum svo paaaaaakkk södd hérna að ganga frá og koma okkur fyrir í stofunni. Pakkarnir voru svo rifnir upp og jólakort lesin. Takk allir fyrir okkur. Við fengum frábærar gjafir sem ég ætla ekkert að fara að telja upp hérna. Eftirrétturinn var bakaður og ísinn dreginn fram og kl ca 21:30 (að staðartíma) vorum við að gúffa í okkur góðgætið. Þá vorum við orðin svo södd og uppfull af sykri og góðgæti að við vorum eiginlega tilbúin að fara bara í rúmið. Hrikalegt át á okkur.
Drifum okkur svo í að hringja í nánasta fólkið okkar heima og hlupum svo yfir í næsta hús. Sátum þar og opnuðum pakkana frá hvort öðru og geyspuðum svo mikið undir það síðasta að þá var bara tími kominn til að drífa sig heim á ný.

Dagurinn var yndislegur í alla staði, rólegur og yfirvegaður, hehe. Hefðum þurft að sofa fram að hádegi til að geta haft bara nóg að gera allan daginn. Munum það næst Híhíhíhí… Skemmtileg upplifun á jólunum – en þó skrítið að hugsa heim og tala heim og átta sig á að maður er ekki þar sem maður er búinn að vera síðastliðin 25 ár. En það var samt minna erfitt en ég átti von á.

Gleðilega hátíð allir og vonandi áttuði yndisleg jól eins og við.

Aðfangadagur jóla er einmitt í dag…

Saturday, December 24th, 2005

Já dagurinn er kominn. Stóri dagurinn sem öllum börnum hlakkar mest til á hverju ári. Litli strákurinn minn var svo spenntur að opna pakkana að hann sofnaði ekki fyrr en kl 4 og var alltaf að vakna í morgun :( Veit nú ekki hvort hann sat hérna frammi og starði á pakkana eða eitthvað annað!!! :þ HEHEHE

Dagurinn í dag verður sennilega rólegri en nokkurntímann. Held að hann snúist fyrst og fremst um eldamennsku og undirbúning í eldhúsinu. Held þó að það sé fátt sem krefst mikils undirbúnings. Bara krydda kjötið, steikja og henda inn í ofn. Svo náttúrulega soufflé-ið…. jebb við sælkerahjú og súkkulaði/sykursæta parið ætlum sko að hafa þetta djúsí jól. Heimatilbúinn toblerone ís og soufflé í eftirrétt…. omg. Held ég hlakki mest til þess… úff. Við stefnum svo á að vera afvelta (að vanda) kl 8 að staðartíma og vera þá búin að kveikja á skype, webcam og gera allt reddí svo við getum bara fleygt okkur einhvert og legið þar þangað til við erum búin að jafna okkur þannig að við getum farið í næsta verkefni Jibbíííí…

En eins og áður sagði verður þetta sennilega rólegur dagur, engar hefðir sem við verðum að gera.Ekkert sem við getum gert. Maður er vanur að keyra út pakkana á aðfangadag og drepa tímann við það. Nema það er þá helst að við steikjum hangikjötið í dag – geggjað að fá lyktina í húsið.. nammi namm.

Gleðilega hátíð allir sem slysast hérna inn á þessum stóra degi. Efast reyndar um að það séu margir. Og hafið það sem allra best um jólin

Helga Dröfn og Lalli