Archive for November, 2005

Bakverk

Sunday, November 27th, 2005

Bakverk er sænska orðið yfir bakstur :) Og það er það sem við eyddum ÖLLUM deginum í. Byrjuðum daginn nokkuð snemma, fórum að hnoða um kl 11 í bæði laufabrauð og kleinur. Fyndið því þetta hefur alltaf verið tilbúið þegar maður mætir til ömmu og laufabrauðið auðvitað keypt bara í bakaríi og svo skorið af okkur.
Gulli tók með sér pastavélina til að gera kökurnar nógu þunnar til að hægt sé að skera í þær og steikja. Svo hnoðuðum við í laufabrauðsdeig og kleinudeig. Byrjuðum svo að búa til kökurnar og skera út. Allt gekk vel þó smá byrjunarörðugleikar með hugmyndir. En þar sem ein í hópnum er búin að vera að þessu á hverju ári síðan… hún fékk fyrst vasahníf í hönd þá var það smá innblástur fyrir þau 2 sem hafa ekki skorið laufabrauð í einhver 5 ár!! Mörg listaverkin urðu til að vanda og alltaf gaman að sjá ný vinnubrögð. Brutum nokkuð margar “reglur” sem við Gulli erum alin upp í :) Gaman að því.
Þegar við svo loksins vorum búin að skera um 40 kökur, hálfkringlóttar, ferkantaðar, þríhyrndar og í öllum hugsanlegum formum út, þá var bara kleinudeigið dregið úr ísskápnum og flatt út, snúið í snarheitum og steiking hafin. Allt gekk að óskum – þó það gengi frekar hægt reyndar að steikja þá var síðasta kleinan dregin uppúr pottinum um kl 8. Þá vorum við búin að útbúa heitt súkkulaði og það var geggjað með glænýbökuðum kleinum *vatn í munninn*.
Svo voru bara hamborgarar verkaðir og fleygt á pönnuna eftir að Lalli fékk netta klippingu. Svo nú erum við bara að verða reddí fyrir jólin. Verst að ég fæ ekki klippingu fyrr en næsta sumar!! :) Guð hvað það verður gaman! Óboy..
Svo dagur er að kveldi kominn og við öll mjög ánægð með afraksturinn. Gleði gleði gleði.

Auk þess sem við hjú hengdum upp seríur hjá okkur í morgun og gengum frá því sem eftir var. Búið tengja græjurnar og allt! Geggjað.

Annars eru fréttir dagsins þær að við erum að fá fyrstu gestina okkar um næstu helgi. Gaman gaman. Sigga, Halldór og amma Ásta hans Lalla koma öll á fimmtudaginn og verða fram á sunnudag. Geggjað gaman. Gott að maður á svefnsófa núna :)

Nýjar myndir eru að hlaðast inn á galleryið. M.a af íbúðinni okkar :) Gjörið svo vel að kíkja.

Jæja kveð að sinni, alldeilis kominn háttatími. HD og Lalli

Einmanna

Saturday, November 26th, 2005

Feeling littlebit lonley right now. Ég er að lenda í aðstæðum sem ég hef aldrei á ævi minni lent í. Það er enginn, ekki hræða logguð inn á msn. Og ekki heldur á skype. Lalli er sofandi og allir í hinni íbúðinni líka.
Samt náði ég Gunna litla í DK í smá stund í morgun. Nú er hann farinn og enginn eftir. Ekki einu sinni hræða sem er skráð “away”. Möguð upplifun. Kannski er þetta sign. Ég á að fara að gera eitthvað annað en að hanga í tölvunni. Kannski skelli ég mér í bað. Kann eiginlega ekki við að byrja að ryksuga íbúðina þegar Lalli sefur. Geri það á eftir þegar hann er vaknaður. Annars þegar ég er búin að ryksuga og ganga aðeins frá í eldhúsinu þá er íbúðin okkar eiginlega til fyrir myndatöku. Svo á næstu dögum (líklega í dag eða á morgun) ættu að koma myndir af íbúðinni okkar eins og hún er í dag. Gaman gaman.

Hér annars snjóar og slyddurignir á víxl. Veðurguðirnir greinilega ekki sammála um hitastigið úti miðað við hvað það rokkar slyddaði þegar ég kom fram rétt fyrir 9. Snjóaði svo þegar ég kommentaði hjá Brynju í UK og slyddar svo aftur núna. Magnað!! (Er íslenska veðurfarið að elta okkur??)

Þangað til næst, hafið það gott. Helga Dröfn

Fyrsti í aðventu

Friday, November 25th, 2005

er á sunnudag. Sem þýðir að ég get farið að opna jólapakkana. Jessss….
Þessi helgi er viðburðarík fyrir meira en bara að byrja að hengja upp jólaskraut. Því á morgun laugardag er stefnan tekin á jólamarkað í Rademachersmedjorna, sem eru eldgamlar smiðjur hérna í bænum. Í dag selja þeir handverk og svona til að sína gamla tímann og er þetta m.a í tengslum við safnið sem er hérna. Mjög flott safn – og kostar ingenting :) voða gaman.
Á sunnudaginn hefst svo gamanið, það sem við Gulli (amk) erum búin að bíða eftir lengi. Það er að skera út laufabrauð. Verst við gátum ekki verið samferða ömmu og co á morgun laugadag því Gulli er busy. En það er allt í lagi. Verðum með þau með okkur í anda á sunnudag. Keyptum okkur vasahnífa og fínerí í dag í Clas Ohlson… úlllalala. Geggjað gaman allt saman. Fyrir mig – og okkur hérna í svíþjóð verður þetta fyrsti í aðventu og fyrsti í jólabakstri. Svo fer maður bara að bretta upp ermar og henda í nokkrar smákökur og allt tilheyrandi.
Hef þetta þó ekki lengra í bili og segi bara gleðilega aðventu. Vonandi hafiði það sem allra allra best um helgina. Trevlig helg eins og svíinn segir. Kram og böns af kossum HD

Loksins heimili

Wednesday, November 23rd, 2005

Loksins loksins er þetta farið að líta út og virka á mann eins og heimili! :) já dótið manns gerir ótrúlegustu hluti fyrir svona íbúð. Manni finnst maður eiga heima hérna núna, tölvurnar mínar komnar og skrautið hennar Helgu Drafnar… DVD spilarinn, græjurnar og RÚMIÐ!!!!! shit hvað það var gott að sofa í alvöru rúmi, með eigin sæng og eigin kodda! Svo var gærkvöldinu eytt í að negla upp skraut og myndir og fengum við dygga aðstoð frá G-S innanhúsarkítektum ehf, sem er staðsett hérna í næsta húsi… sama hús og Gistihús Gulla og Söndru er í. þökkum kærlega veitta aðstoð.

Ferðalagið tók alveg á, ég keyrði 1000 kílómetra á 11 tímum.. en allt í allt var ég vakandi í 35 tíma yfir þessum flutningum. tapaði s.s. einni nótt c.a. Þetta gekk samt ótrúlega vel, ég leigði risastóra kerru hérna í Eskilstuna og keyrði með hana dinglandi aftaní bílnum til Vardera. Bíllinn eyddi svona 90% meira en vanalega vegna vindmótstöðunar, og það kom mér á óvart að það munaði eiginlega engu á eyðsluni hvort kerran var full eða tóm, hann eyddi sama bensíni báðar leiðir. Maður er allavega farinn að skilja hvers vegna þeir tala alltaf í “mil” svíarnir.. en það er mælieining sem er 10 kílómetrar. Hér nota þeir mikið allskonar mælieiningar sem við á íslandi erum ekki vön að nota.. Hektógrömm í stað 100 gramma, desimetra í stað 10 cm og þetta Mil sem ég var heillengi að fatta hvað væri :) enda tregur með eindæmum.

Ég byrja að vinna á mánudaginn næsta.. eða réttarasagt mæta í “þjálfun”. Ég hef enn ekki hugmynd um hvort ég fæ laun í þessar 4 vikur eða ekki, og ég veit ekkert hvað tekur við eftir 4 vikur. Spennandi líf :D Ég ætla að fara niðrá AMS að tala við þessa blessuðu konu sem á að sjá um mín mál þar, ég ætla að skreppa, setja st þarna niður og neita að fara fyrr en ég fæ að tala við hana! Nenni ekki lengur að vita ekkert um minn hag hérna, enda búinn að læra það að hér þarf maður að vera þver og ákveðinn ef maður ætlar sér að fá það sem maður vill.

Við fórum líka í gær í skólann sem HD er búinn að velja úr flóruni og töluðum við helvíti hressan gaur. Hann var sonur stofnanda skólans og gekk sjálfur í hann fyrir 20 árum. Hann er núna skólastjóri og kennari við hann auk þess að vera með eigin meðhöndlunarstofu. Lítur allt vel út og nú þarf ég bara að skíta nokkrum milljónum í viðbót svo Helga Dröfn geti lært þarna… :) Spennande eins og Svíinn segir.

Já, ég fékk heimavinnu frá konuni minni, hún skrifaði lista yfir það sem á að vera búið þegar hún kemur heim úr vinnuni í dag… mér líður eins og ég sé 10 ára aftur :D hehe… gaman að þessu.

verð að hætta núna, ef ég á að ná að klára allt sem stendur á listanum góða, ekki vill ég fá einhverja refsingu þegar hún kemur heim!!
Bless í bili,
Lallmaster

Flutningar á morgun

Sunday, November 20th, 2005

JEIIIIIIIIIIIIIIIIIIII get ekki beðið og já ég þarf ekkert að bíða neitt mikið lengur. Dótið kemur í hús annað kvöld. Lalli fer sennilega um miðnætti í kvöld af stað til Varberg sem er rétt sunnar en Gautaborg. Stefnir á að vera kominn þangað um 7 í fyrramálið, sækja svo dótið, raða því í kerruna, bruna heim aftur og bera það allt upp um kvöldmatarleiti á morgun (úff ég verð þreytt á að skrifa þetta!!) Held ég komi til með að eiga ákaflega þreyttan gutta á mánudagskvöld og þriðjudag. Dugnaðarforkurinn minn. Hann hefur þá eitthvað að gera þennan sólarhring :) Hann er búinn að tala svo mikið um leiða undanfarið að þetta ætti að duga honum fram í næstu viku þegar hann fer í vinnuþjálfunina. Þá er eins gott að hann sýni sína bestu hliðar svo hann fái áframhaldandi vinnu. Spenna spenna.

En í gær fórum við á jólamessu/markað. Það var æðislega gaman. Stappað af fólki-ógeðslega kalt og svo fór að snjóa… Gæti það verið betra?? Já það er svona hálfssentimetra lag yfir allt núna og eiginlega frekar hált. Engu að síður ákaflega jólalegt. Og talandi um jól, þá byrjaði ég að pakka inn jólagjöfum í gærkvöldi. Mjög gaman.

En já við komum til með að vera að setja upp heimilið okkar alla næstu viku, svo maður veit ekki hversu mikið verður skrifað.

Afmælisbörn næstu morgundagsins verða því nefnd hér: Hörður litli bróðir verður hvorki meira né minna 7 ára á morgun og amma hans Lalla á líka afmæli á morgun. Veit ekkert hvort hún kæri sig um að aldurinn hennar sé settur á opinbera síðu á netinu. En til hamingju með daginn bæði 2 og aðrir sem eiga þennan dag líka. Auk þess á hann Þorkell litli frændi (reyndar orðinn stærri en ég) afmæli á þriðjudag, best að skella því hérna inn líka.

Svarið við gátunni var “notaður smokkur”

Bless annars í bili og við heyrumst og sjáumst …. einhverntímann, Helga Dröfn