Archive for October, 2005

IKEA, loppisar og peningaeyðsla

Sunday, October 30th, 2005

Vera okkar hér hefur verið gulltryggð. Búið er að borga leiguna og kaupa inn svefnsófa og hillur og drasl fyrir óþægilega háa upphæð… EN! þá er amk. pláss fyrir gesti… Okkur reiknast til að við höfum pláss fyrir um 6-8 gesti (fer eftir hæð og sverleika) í okkar íbúð hverju sinni og getum plantað amk 2 hjá Gistihúsi Gulla og Söndru ef allt fer í bál og brand. Verið er að hanna bókunarkerfi sem sett verður á netið innan skamms.

En já, það var semsagt mikið fjör í gær! Við Helga Dröfn drifum okkur á lappir um 9 og þrifum íbúðina hátt sem lágt með lánsgræjum frá fyrrnefndu gistihúsi og leigðum svo stærstu gerð af kerru útá bensínstöð. Svo var étin dýrindis “Pizza a-la Gulli” í hádeginu og þvínæst brunuðum við Hin fjögur fræknu til nágranabæjarins Vesterås þar sem loppisar eru fleiri en fólk og þar er líka að finna IKEA verslun. Þess má geta fyrir ykkur sem ekki talið reiprennandi sænsku að orðið “loppis” þýðir eiginlega “fló-ó” á íslensku sem er stytting á “flóamarkaður”. Hér er allt á kafi í þessu enda Svíar annálaðir sparigrísir og nýskupúkar… kaupa aldrei neitt nýtt nema ekki sé vinnandi vegur að finna hlutinn á loppis :) nei, kanski smá ýkt.

Kerran sem við leigðum var 5.25 metra löng, en bíllinn er rétt tæplega 5 svo þarna má sjá að um enga smávægis hlussu var að ræða! Nú, ekki gátum við komið heim með hana aftur hálf tóma, svo við keyptum borð og hægindastól (fåtölj á sænsu :) ) á sitt hvorum loppisinum og keyptum svo hillu, sjónvarpsskáp (sem var alveg nauðsynlegt því við eigum ekkert sjónvarp) og svefnsófa í IKEA ásamt klósettbusta, sturtuhengi og ýmsu öðru smádóti. Heim var brunað og nú brá svo við að Rauðhetta, Saabinn okkar, eyddi 23 lítrum á hundraðið en ekki 8 eins og vanalega og skoppaði líka um eins og haltur flóðhestur. Ansi þung kerran sko :) Afrakstri dagsins var haugað í íbúðina og svo fórum við á “Fröslunda Pizza & Kebab” og átum á okkur gat. Mæli með “Kebabtallrik med strips (utan grönsaker)”, sem er fjall af kjöti og kebabsósu ásamt frönskum, og ekkert helvítis grænmetisrusl takk!!! :) . EEEEkta þynnkumatur, eða kvöldverður fyrir þreytta iðnaðarmenn. Vorum við svo þreytt eftir öll innkaupin að við hengum bara í sófanum á Gistihúsi Gulla og Söndru og gláptum á hryllingsmynd og fórum svo að sofa.

Dagurinn í dag (sunnudagur) hefur að mestu leiti farið í að setja saman IKEA þrívíddar-púsluspilin sem keypt voru í gær. Afrakstur þess má sjá á Galleríinu undir Svíþjóð – íbúðin á Högbovägen.

Þetta er helgin í hnotskurn. Á morgun byrjar Helga Dröfn að þvo þvott til að við eigum salt í grautinn, verður gaman að taka við hana viðtal eftir fyrsta daginn. Ég fer í skólann eins og venjulega og bíð eftir fleiri svörum um vinnur. Ég var reyndar að fá þær leiðinlegu fréttir að enn eykst atvinnuleysið í mið- og norður svíþjóð, nú var það eitt af stærri skógarhöggsfyrirtækjunum sem sagði upp 500 manns hérna í og kringum Eskilstuna. Vona að það hafi ekki áhrif á að ég fái vinnu.

Þetta er orðið nógu langt blogg í bili, heyrumst síðar…

Lalli og HD

Velkomin í heimsókn

Friday, October 28th, 2005

Nú erum við komin með íbúð og með lyklana í hendurnar OG ALLT. Skoðuðum 6 íbúðir í dag (maraþon-íbúðarskoðun) og féllumst á þá sem er næst Gulla og Söndru. Getum ekki farið OF langt frá þeim eftir allt sem við erum búin að tengjast hérna í þessari íbúð.
Já við semsagt erum í íbúð í næstu blokk við þá sem þau byrjuðu í, Högbovägen 1 er okkar og þau voru í númer 3. Íbúðin okkar er eins nema okkar er herbergi stærri. Ásta Sigrún nú verður auðvelt fyrir þig að koma í heimsókn.

Um helgina verður svo farið í svefnsófaleiðangur í Ikea og svo verðum við bara að bretta upp ermar og þrífa.

Allavega er fréttatilkynning komin út og verið bara velkomin í heimsókn allihopa

Íbúðir

Thursday, October 27th, 2005

Á morgun förum við hjón að skoða amk 6 íbúðir sem eru lausar núna. Ef við fjandakornið getum ekki fundið okkur eina af þessum 6 íbúðum sem okkur líst á þá ……. jæja ég ætla ekki að lofa neinu upp í ermina á mér.
Allavega ætti fólk að geta farið að panta sér ferðir til okkar. Ég bendi á ritarann minn í síma +46 708 865819

Ég er sem sagt aldeilis að fara að skipta um gír í næstu viku. Í staðinn fyrir að hafa lítið sem ekkert að gera verð ég í 100% vinnu á daginn og 2 kvöld í viku í skólanum. Auk þess sem ég verð í því að standsetja íbúðina mína sem ég er ótrúlega spennt fyrir að gera – þrátt fyrir að ég viti að fyrst um sinn verða húsgögn og annað verslað á loppisum og jafnvel bara ýmislegt notað sem bráða, bráða, bráðabirgða lausn. En óboy hvað ég hlakka til. Herregud! (Já ég er með herregud á heilanum!)

Við hjú fengum bæði atvinnutilboð í dag á Íslandi! :D HAHAHAHAHA þið getið ímyndað ykkur hvaða svör fóru þar um hönd – nú eða munn.
Lalli fær að vita þann 11. nóvember hvort hann fær vinnuna hjá Berglunds Åkeri AB eller ej. Þangað til heldur hann bara áfram að mæta í skólann og læra sænsku og er þess á milli heimavinnandi húsfaðir sem sér um útivinnandi frúnna sína. En spennandi fyrir mig. Er strax farin að hlakka til að koma heim í ilmandi hreint húsið og finna matarilminn streyma á móti mér. Úllallaalala

Ákvörðun tekin um framhaldið

Wednesday, October 26th, 2005

Eruði þyrst í miklar fréttir????

Já ég veit að þetta er annað bloggið mitt í dag. En það eru líka tíðindi að segja.
Við Lalli erum farin að skoða íbúðir hérna því ég já ég Helga Dröfn er komin með vinnu á undan kallinum mínum, Herregud!

Ég fékk sem sagt símtal í gær sem ég náði ekki (missed calls) og svo aftur í morgun þar sem ég var boðuð á fund bara sem fyrst. Ég sem sagt fór eftir skóla – kl 14:30 í viðtal hjá Berendsen Textil Service AB. Þar fékk ég eiginlega bara allar upplýsingar sem maður fær þegar maður er að byrja að vinna og svo bara var ég leidd um aðstöðuna og sagt hvernig allt gengi fyrir sig og svo bara var ég spurð hvernig mér litist á og hvenær ég vildi byrja. Sem sagt ég byrja að vinna á þvottahúsi sjúkrahúsanna á mánudaginn.

Á föstudag förum við svo að skoða íbúðir svo nú geta allir sem vettlingi geta valdið farið að bretta upp ermar og fundið dagsetningu á heimsókn ;) HAHAHAHAHAHHAHAA.
Ásta og Jákup, Haukur og Íris, Steinunn Margrét og Helgi og bara allir sem hafa áhuga og getu. Minni á skemmtilega jólamarkaði og svona fyrir jólin!
Nei okey kannski að sjá hvaða íbúð við fáum og hvenær. Reyndar er nóg af lausum íbúðum hérna lausum strax jafnvel. Mjög spennandi allt.

Við sem sagt stefnum á að kíkja á klakann í júlí á næsta ári. Hlakka til að sjá ykkur öll þar. Knúsar og kossar HD og Lalli í gleði gleði gleðivímu.

Bloggiblogg

Wednesday, October 26th, 2005

Skólinn segir ad ég eigi ad vera ad aefa mig í tölvunni – en ég er eitthvad svo grillud í höfudinu ad ég held ég bara bloggi!! Get ekki hugsad á saensku núna.

Til ad byrja med aetla ég ad segja ad ferdin okkar til Danaveldis var bara alveg geggjud. Vid sjáum ekki eftir einni mínutu thar. Takk allir sem tóku vel á móti okkur Ásta og Jákup thad var yndislegt ad eiga med ykkur dagsstund. Pottthétt ad vid komum aftur.
Var held ég búin ad segja frá flestu ödru sem vid gerdum í ferdinni. Ferdin heim gekk vel. Ferlega langt samt ad keyra thetta. En thad er samt gaman. Myndi ekki nenna ad gera thetta 4x á ári eda oftar. Herregud. En alltaf gott ad koma heim :) Heim heim heim. Já veistu ég held bara ad ég eigi heima á ótrúlega mörgum stödum. Mér fannst vid koma svolítid heim til Köben og svo komum vid aftur heim hingad til Eskilstuna og svo veit madur alltaf ad heimheim er á Íslandi. Hvad annad?

Jú jaeja. Á morgun förum vid hjú í thad sem kallast C-Test. Thá ljúkum vid c-nivå. Saenskunni er skipt í stig introduction, B-nivå, C-nivå og D-nivå. Vid vorum í raun ad byrja á C-nivå og höfum ekki einu sinni tekid B-testid (mont á mont ofan) og Lalli meiradsegja fékk ad taka aefingatest fyrir D-nivå og stódst thad med glaesibrag. Málid er bara ad ef hann klárar thad test thá faer hann ekki ad halda áfram í skólanum. Thá hefur hann bara stadist skólann og hefur ekkert hérna ad gera. En vid höldum nú ad thad sé betra ad amk vera hér og aefa sig í ad tala og hafa bara hreinlega eitthvad ad gera á daginn :) Allavega verdur bloggad um gengi prófanna eftir morgundaginn.

Èg fór í vidtal á nuddstofu í gaer í Stokkhólmi. Thad gekk bara svona prýdisvel. Ég myndi vera ad vinna alveg sjálfstaett og í raun vinna bara sjálf. Myndi ráda sjálf hversu mikid ég vill vinna og thannig. En samt á stofu med hárgreidslufólki, samtalstaekni og fleirum. Ég gaeti látid tau svara í símann fyrir mig och så vidare. Lítur allt voda vel út, EN (jebb alltaf thetta en) En thad er ofsalega langt ad fara. Thví thetta er ekki bara í Stokkhólmi heldur er thetta í úthverfi. Og thar sem thad er ofsalega erfitt ad fá íbúdir í Stokkhólmi thá aetla ég ad melta thetta adeins. Auk thess finnst mér frekar dýrar kröfurnar hennar. Leigan fyrir herbergid ef ég vill hafa thad ein er 4000 sek = ca 36-7 thúsund íslkr. Svo tharf madur ef ég skildi rétt líka ad borga fyrir hvern kúnna svo thetta er frekar dýrt finnst mér.
Er auk thess ad fara ad tala vid mann á eftir og ég held ad hann vilji fá mig – en thad kemur betur í ljós á eftir. Segi betur frá thví á sídar. Thad er samt ekki nuddvinna. En thad er allt í lagi.

Jaeja aetli thad sé ekki best ad reyna ad gera eitthvad svo ég hafi ekki samviskubit eftir prófid á morgun. Huhummmm

Kram og kyss HD