Já Dagbjört tilkynnir það á blogginu sínu að hún sé búin að klukka mig (okkur á slepjunni). Þetta er víst nýjasta tíska sem allir bloggarar “lenda í”. Og reynir maður ekki alltaf að gera öðrum til geðs? Jahh ég geri það svona oftast! Nenni ekki að vera með mótþróa við öllu svo ég segi bara “Okey”. En þegar ég fer að hugsa málið að þá dettur mér aldrei neitt svona í hug (dæmi um þetta klukk má sjá á nýjustu færslunni hennar Dagbjartar)
Með öðrum orðum:
“Klukk er internetfár sem tröllríður bloggheimum þessa klukkutímana og felur í sér að viðkomandi fórnarlamb klukks á að skrifa fimm handahófskennd persónuleg atriði (sem hinn sótsvarti almúgi vissi ekki fyrir væntanlega) og klukka svo nokkur stykki bloggara til viðbótar.”
Já það er ekkert annað! Jæja off it goes og ég verð að segja að þessi færsla var lengi að fæðast. Vonandi einhverjum til skemmtunar. En þetta er bara ég – sjáum til hvort Lalli nennir að taka þátt í þessu
1) Ég get verið dáldið mikið íhaldssöm og/eða skipulögð – veit ekki hvað ég á að kalla það. Humm.. ef ég fæ eitthvað lánað þá skila ég því eins. Sbr ef ég “passa íbúð” fyrir einhvern er einhverra hluta vegna tek ég eftir því hvernig íbúðin er skilin eftir og ég skila henni eins líkt eins og hægt er. Td hef ég staðið mig að því að búa um öll önnur rúm frekar en mitt eigið, bara vegna þess að ég tók við því umbúnu. Eða ég set bókina á nákvæmlega sama stað og ég tók hana bara vegna þess að hún “á” að vera þar! Ég hef vott um það að ég fylgist ótrúlega vel með hvar hlutir (sem eru ekki á sínum stað). Fyrrum ónefndur vinnuveitandi átti það til að leggja hluti frá sér á ólíklegustu stöðum. Oftast gat ég svarað fyrir hvar þessu hlutur var þegar viðkomandi ætlaði að finna hann aftur
Hvernig eða hvaðan ég tek hluti upp úr skúffum eða skápum… æ já ég held ég þurfi ekkert að útskýra þetta betur. Stundum jaðrar þetta við að vera sjúkt. Viðurkenni það alveg, meirað segja mér blöskrar. Aumingja Lalli!!! HAHAHAHA
2) Að hugsa hvað á að vera í matinn eða hvað mig langar að borða – jesús. Not my favorit. Fyndist æðislegt að vera bara alltaf í mat hjá mömmu HAHHAa þá þarf maður ekkert að hugsa um mat – hann er bara á borðum milli 6 og 7. Verst hvað það er troðið alltaf við matarborðið! Þyrfti að bæta úr því.
3) Ég er ekki þessi týpíska stelpa sem ELSKAR að versla föt og skó og töskur og glingur. Ég er bara yfirhöfuð ekki þessi týpíska stelpa, hahaha hvernig svo sem hún er?!?!?!
4) Ég verð að fara að læra að borða grænmeti. Sérstaklega meðan ég bý hjá þessum hollustu-grænmetis-ávaxta-átaka-dugnaðarforkum. Og auk þess bara fyrir eigin heilsu. Veit samt ekki hvort mér tekst nokkurntímann að læra að borða lauk og sveppi. Til í ýmislegt annað!
5) Ég er enn í afneitun með að ég sé orðin “fullorðin”. Eins og mér finnst ég hafa verið að flýta mér að verða það þegar ég var unglingur, eða þú skilur meðan ég var á yngri stigum unglingsins. Núna er ég enn unglingur manstu.
Ég er enn að átta mig á því að Berglind sé mamma og Siggi sé pabbi og það í öðru veldi. Þarf oft að minna mig á þetta.
Öll þessi börn hjá þessum unglingum í kringum mig – hvernig stendur á þessu. Svo ekki sé minnst á giftingar and so on. Ég er greinilega stöðnuð í einhverri tímavillu.
Æhh datt ýmsilegt annað í hug þegar ég var að fara að sofa eða á leiðinni heim og svo gleymi ég því alltaf þegar ég ætla að setjast niður og skrifa það. Svo þetta fer bara svona. Margt sem ég væri til í að skipta út en það er ekki eins og þetta sé eitthvað próf!!! (vona ekki!!
)
Mér finnst eins og margir séu að misskilja síðasta blogg. Til að vera viss um að enginn misskilningur sé á ferð þá erum við ekki búin að gefast upp og finnast við ÞURFA að vera hérna. Höldum ótrauð áfram að leita að vinnum og vonast til að við fáum okkar íbúð fljótt. Erum loksins farin að skilja fullt í sjónvarpinu og getum hlustað á fólk tala um pappírsmál (kommúnan/ríkið) að mestu á sænsku og allt. Finnast þetta mikil framför á stuttum tíma og það er allt jákvætt. Svo endilega viliði vera svo væn halda áfram að senda orkustrauma, ég finn að það virkar
Annars lítið að frétta. Bíðum og bíðum og lærum og lærum.
Knúsar og milljón kossar til þín.
HD
P.s klukka nú á allt skyldfólk mitt og skyldfólk Lalla sem er með bloggsíður.