Archive for August, 2005

Jæja blogg blogg blogg…

Wednesday, August 31st, 2005

Miðað við bloggleysi vikunnar þá er NÓG að frétta :)

Tölvan sem hýsir Slepjuna, galleryið og Andmenninguna hrundi. Er lasin en hitinn hefur lækkað núna í augnablikinu. Keypt hefur verið ný vél sem á að taka við af þessari sýktu og verður skipt um a.s.a.p. Vonandi lifir þessi af nokkra daga í viðbót.

Allavega – við fórum í smá leiðangur á mánudag. Löbbuðum 5 kílómetra til að skoða Saab sem á var sett upphaflega 58 þús sænskar en við fengum hann á 42 þús… jeiiiii
Sem sagt keyptum saab á mánudaginn. Jebb þetta er ótrúlega vel með farinn bíll þrátt fyrir að vera orðinn alveg 9 ára gamall. Auk þess var bílasalan búin að gera allt sem þurfti að gera við bílinn til að koma honum út. Hann er sem sagt skoðaður án athugasemda. Frábært. Þannig að nú erum við frjáls ferða okkar og getum farið hvert á land sem er í atvinnuviðtal.

Við erum búin að fá 2 svör frá atvinnurekendum – sitthvort nei-ið. En það er allt í lagi. Erum alls ekki buguð. Maður veit að maður þarf að berjast talsvert til að fá vinnu. Í mínu tilfelli þarf ég að vera búin að vinna í Stokkhólmi og eiga minn kúnnahóp svo ég fái vinnu – grunar að það sé ofsalega víða. Datt þetta alveg í hug.
Við erum búin að sækja um í Dölunum, á skíðasvæði, sem við erum sérstaklega heit fyrir. (þeir sem þekkja okkur skilja það!) Erum alveg með fiðrildi í maganum yfir því. Fáum vonandi svar þaðan eftir miðjan mánuðinn. Þó við fengjum ekki vel borgað væri þetta GEGGJAÐ ævintýri!!!! Vitum reyndar ekki hvenær seasonið byrjar en það kemur í ljós.

Á morgun ætlum við að fara á H&M lagerinn hérna í Eskilstuna sem er stærsti H&M lager landsins – eiginlega “mið-stöðin” :) HAHAHa já þeir eru víst alltaf að leita að fólki – og Sandra var að tala um að fólk væri að fá ágætisbyrjunarlaun og ýmislegt hægt að gera þar! Amk hægt að vera þar þangað til við fáum skíðavinnuna (ótrúlega viss um að við fáum hana!!! huhumm… :) ) Annars eins og ég segi þá er auðveldara að fá vinnu þegar maður hefur einu sinni unnið einhverstaðar. Það er ábyggilegt. Veit að sumir – og nokkrir sérstaklega – eiga eftir að æpa upp yfir sig þegar þeir lesa þetta með H&M!! HEHE sjáum svo til hvað við fáum!!

Lalli er búinn að sækja um yfir 20 vinnur og hlýtur að fá jákvætt útúr einhverju af þessu. Hringdi í gær að minna á sig á einum stað í Gautaborg. Hún sagði að þeim hefðu borist þúsundir umsókna – en hún mundi eftir þessum Halldórsson frá Íslandi! Sem er gott. Svo ætlaði hún að láta okkur vita í næstu viku ef hann væri einn af þeim sem “fengju” viðtal. Spennandi.

Í augnablikinu búum við 6 manns og 2 kettir í þessari 3 herb íbúð. Við sem sagt búum í stofunni. HAHAHAH jebb þröngt mega sáttir sofa! Aumingja Gulli og Sandra. Þurfa á áfallahjálp að halda þegar við erum öll farin! Fá sennilega víðáttubrjálæði. Annars höfum við það held ég öll ótrúlega gott. Lifum (ennþá) í sátt og samlyndi.
Var reyndar mjög fyndið þegar þau komu heim frá Spáni – seint um kvöld – þá spurðu þau “má ég fá brauðsneið – má ég fá mjólk – má ég fá… ” Við hlógum öll rosalega að þessu. Eins og þau væru að koma í heimsókn c”, ) híhíhíhí.

Við erum í SFI ennþá – ég er byrjuð að lesa Anna, Hanna og Jóhanna á sænsku. Er ekki komin langt en þetta gengur ágætlega. Maður er farinn að skilja slatta. Lalli er farinn að skilja flestar auglýsingar og svona ef það er verið að tala við hann.
Við förum í próf á morgun eða hinn – sennilega svona stöðupróf. Fáum svo verkefnabækur og vonandi fer þetta að koma. Gerðum æfingar í dag sem tölvukennarinn fór yfir. Það gekk ágætlega. Smá dönskuslettur inná milli og eitt íslenskt orð hjá mér HAHAHAHa, en annars var hann mest hissa hvað við gátum! Vorum sko að skrifa á sænsku upp eftir sænskumáli og texta. Ekkert flókið en samt!! Ekki gera lítið úr okkur :)

Jæja þetta stóra fréttablogg er að verða ansi stórt og langt. Svo ég hætti í bili. Get vonandi bloggað annað kvöld um að við séum komin með vinnu HAHAHa dream on..
Knúsar og bestu kveðjur heim og til allra sem lesa. Ha det bra. Kys HD

Flöskudagur

Friday, August 26th, 2005

Já. Nú heyrum við fleiri tala íslensku heldur en bara það sem við segjum við hvort annað! Það eru ótrúleg viðbrigði! Og það eru fleiri í íbúðinni heldur en bara við! Sem er frábært :)

Lalli búinn að fá 1 svar… “nei”, sem er þó betra en ekkert svar. Vont að vita ekki hvort það er verið að lesa umsóknina eða hvort hún hafi kannski týnst. En við ætlum ekkert að gefast upp þó það sé smá gjóla – erum nú ekki algjörir ræflar! Bíðum enn eftir amk 16 svörum!! =) Vonandi leynast 2 já þar inní!

Sænskutímarnir okkar ganga vel. Þetta er nú bara sjálfsnám ennþá. Svona eiginlega 8 ára kennsluforrit, en það er samt nógu erfitt fyrir fólk sem kann ekki einu sinni allar tölurnar á sænsku. Þetta er reyndar mjög fyndið. Við sitjum með headphones og hlustum á orð og setningar sagðar og svo gerum við æfingar. Svo hlægjum við inn á milli og hermum eftir.
Förum svo á mánudaginn í eitthvað annað forrit og þar verður kennari með okkur. Sem verður gott. Hlakka til að fara kannski í smá “þroskaðari” leiki! Ekki það að hitt hafi verið áfallalaust sko!

Erum bæði hálf heiladauð í dag svo við látum þetta gott heita. Betra eru litlar fréttir en vondar fréttir – híhíhíhí..
Knúsar til þín sem nennir að lesa þetta. Helga Dröfn

SFI

Wednesday, August 24th, 2005

Vöknuðum við vekjaraklukku í morgun – já það var enn morgun…. klukkan var bara sjö-eitthvað! Við áttum að mæta í viðtal hjá “Svenska for indvantera” kl 8:30. Jossuss minn hvað við vorum skemmtilega mygluð bæði þegar klukkan hringdi. Ég var heillengi að spá í hvaða hljóð þetta væri!! Jæja við höfum svo sem óskaplega gott af þessu. En niðurstaðan úr þessu viðtali var sú að við ætlum að fara í tölvutíma á morgun, og næstu daga amk þangað til við fáum vinnu. Þetta er bara rosa nám sem þeir bjóða uppá. Mán-fös 8:30 -14:00 í amk 9 vikur og svo sérhæfðara framhald! Þetta er brjáluð vinna. Sjáum til samt hvort við förum á námskeiðið allt. En þetta er þetta “fríkeypis” námskeið (fyrir þá sem ekki skilja þá er þetta frítt/ókeypis) sem þeir bjóða upp á. Það verður bara gaman að fara að gera eitthvað. Hafa eitthvað sérstakt fyrir stafni dags daglega. Ætli við reynum ekki að mæta í þessa tölvutíma m. kennara daglega. Þetta er bara einn og hálfur tími. Borgar sig að nota tímann vel. Enda höfum við svo sem ekkert annað við tímann að gera.

Gulli, Sandra og Elsa koma annað kveld eftir heilmikið ferðalag og langan dag. Sendi Lalla útá völl að sækja þau. Ég er ekki enn komin með ökuskírteini og ég veit ekkert hversu mikinn farangur Elsa er með svo það er best að ég sé bara heima =) það er svo sem ekkert slæmt. Við erum svo sem nógu margar klukkustundir saman samt HAHAHA.

Jæja ekkert annað að frétta af okkur. Engar fréttir af vinnu enn! En allar klær eru úti. Ætli ég bauni ekki nokkrum nýjum myndum í dag. Örfáar frá Stokkhólmi og svona.
Knúsar til allra heima og heiman. HD

Stokkhólmur

Tuesday, August 23rd, 2005

Fórum í gær til Stokkhólms. Ég þurfti að komast í sendiráð Íslands og sækja mér um ökuskírteini sem ég gleymdi að gera áður en ég fór frá Íslandi. (tek ekki sama séns hérna á að vera ökuskírteinislaus eins og heima – nota bene ég hef alltaf komist upp með það heima, þ.e þessi skipti sem ég hef verið stoppuð!!) Vorum alveg heila eilífð að vinna í þessu ökuskírteinismáli því tölvukerfið hjá Ríkislögreglustjóra á Íslandi var bilað og þeir voru því ekki búnir að fá meilið sem við vorum að bíða eftir svari við! Jæja svo hringdi hún og þá rann þetta bara í gegnum faxtækið. Við búin að bíða í 2-3 tíma, fara á röltið og eitthvað vesen.
Ummm já, svo ætlaði ég að fara á 2 vinnustaði sem ég var búin að senda umsókn á og tala við yfirmenn. Komst reyndar bara á annan staðinn sem var alveg niðrí bæ en þar var yfirmaðurinn sem ég átti að tala við, ekki við. Verður hérna á morgun – hummm en ekki ég!! jæja ég hringi þá bara. Hinn staðurinn var aðeins fyrir utan miðborgina og kl var orðin svo margt að við ákváðum að láta það bíða. Hringja bara frekar.

En Stokkhólmur er ótrúlega falleg og dálítið sérstök borg. Miðborgin er þröng og þar er mikill hraði eins og allstaðar í miðborgum – meiraðsegja Reykjavík :) – en borgin tekur rosalega stórt og mikið svæði – en stór hluti af því er samt tré og sjór og brýr og þannig sem setur skemmtilegan svip á borgina. Hólar og hæðir, klettar og tré einkenna borgina ákaflega ólíkt Kaupmannahöfn. En mæli með því fyrir alla að heimsækja þessa borg. Hún er vel þess virði. Ekki samt reyna að keyra í miðborginni nema kannski í rólegheitunum á LÁGANNA tíma. :)

Já ferðin var sem sagt ekki beint til fjár. Nema ég fæ ökuskírteinið mitt. Önnur markmið ferðarinnar mistókust. :)

En bless í bili. sjáumstum vonandi fljótt Knúsar og kossar HD

Halló

Sunday, August 21st, 2005

Það er EKKERT að segja… veit ekki hvers vegna ég er að byrja þetta blogg!!! Efast einhvern veginn að það komi eitthvað gáfulegt fram hérna í dag. En jæja ég biðst hér með afsökunar á þessu “ekkert að segja” vandamáli og hefjast nú skriftir.

Við sitjum hérna 2 hálf dapurleg :) bíðum eftir að tíminn líði – lesum allar bækur sem við finnum hérna í hillum og allar greinar á netinu sem hægt er að grafa upp.
Ég held að Lalli sé búinn að finna draumamótorhjólið sitt og þrælfínan bíl svona sirka 394 sinnum síðustu daga :) okey ýkjur en ég held svei mér þá samt að hann sé búinn að segja svona 5x minnst að þetta sé akkúrat hjólið sem hann langar í! Nákvæmlega… En ég brosi bara og segi “Já þegar þú ert kominn með vinnu” :)
Hann er nú eiginlega að verða búinn að stúta Lord of the Rings bindunum þremur á álíka mörgum dögum og skilur ekkert í af hverju hann var ekki löngu byrjaður að lesa þær!

Annars var svo gott veður í gær að við sátum úti á víxl. Ég sat úti í sólinni um daginn og lalli fór út um kvöldið þegar það var komið myrkur og hann var að kafna úr hita hérna inni :) Þá fór hann út á svalir með tölvuna og kældi sig. Ég er eiginlega farin að kvíða fyrir vetrinum – við hljótum að fá þetta góða veður í hausinn einn daginn. Er það ekki alltaf þannig?

Æ hætt að bulla. Farin að gera eitthvað af viti. Knúsar til allra frá okkur. HD